Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 52
Helgin 21.-23. mars 201452 tíska
V ið komum úr líkri átt, erum hönnuðir, stílistar og framleið-endur, og höfum verið að vinna
við að framleiða föt fyrir aðra hönnuði í
mörg ár. Svo fórum við að rekast á þetta
vandamál, að það væri erfitt að finna
skyrtur á Íslandi sem passa almenni-
lega,“ segir Ólafur Tómas Guðbjörnsson
einn eigenda Skyrta Reykjavík.
Fyrirtækið, sem er lítið og rekið af
fimm vinum, framleiðir handgerðar
klæðskerasniðnar skyrtur fyrir karla og
konur. Fyrsta skyrtan var sniðin í ágúst
í fyrra og síðan hafa 1500 skyrtur verið
saumaðar.
„Þetta virkar þannig að fólk kemur
á Klapparstíg 16 þar sem skrifstofan
okkar er, og er mælt svo hægt sé að sér-
sníða skyrtuna í framhaldinu. Svo er
næsta skref að velja efnið en við erum
með yfir 400 efni og mynstur til að
velja úr og leggjum mikið upp úr því
að vera einungis með hágæðaefni. Við
skiptum skyrtunni niður í einingar svo
það er hægt að velja mismunandi efni og
mynstur eftir hluta skyrtunnar. Sumir
vilja hanna sínar skyrtur alveg sjálfir en
aðrir vilja aðstoð og handleiðslu stílista.
Terry er með svakalega reynslu en hann
vann til dæmis hjá Gucci og Burberry’s,
segir Ólafur Tómas. „Það er mjög gaman
að koma til okkar, við bjóðum upp á
huggulegt umhverfi, gott nýmalað kaffi
og einlæga og persónulega þjónustu.“
Þegar skyrtan hefur verið hönnuð er
hún send í framleiðslu til Indlands þar
sem hún er handgerð í lítilli verksmiðju
sem sérhæfir sig í klæðskerasaumuðum
fötum. „Leslie Dunghan, framkvæmda-
stjórinn okkar, er indverskur en hefur
búið á Íslandi í sex ár. Hann er frá Banga-
lore í Indlandi og þekkir þar fjölskyldu
sem rekur þessa verksmiðju sem var ein
ástæða þess að við fórum út í þetta. Við
byrjuðum á að prófa skyrtur þar fyrir
okkur og útkoman var svo góð að við
stukkum á tækifærið.“
Ef viðskiptavinurinn er ánægður með
útkomuna er svo ekki flókið að ná sér í
nýja skyrtu því Skyrta Reykjavík geymir
öll málin svo hægt er að panta nýja hve-
nær sem er. „Þá sendir þú bara tölvu-
póst eða hringir og pantar nýja skyrtu í
nýjum lit eða efni. Og svo færðu skyrtu
heim til þín sem passar 100%. Nema þá
að aðstæður hafi breyst og þú þurfir
að stækka eða minnka skyrtuna, en þá
kostar ekkert á fá nýja mælingu.“ Von
er á standard línu frá þessu framsækna
fyrirtæki sem mun byggja á meðaltali
þeirra 1500 skyrtna sem framleiddar
hafa verið nú þegar. Ólafur Tómas segir
útkomuna hljóta að falla í kramið því
„hún byggir eiginlega á íslenskri skyrtu-
erfðagreiningu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Klæðskerasniðnar skyrtur
seldar á Klapparstígnum
Skyrta Reykjavík framleiðir handgerðar klæðskerasniðnar skyrtur fyrir fólk
sem veit hvað það vill. Ólafur Tómas Guðbjörnsson segir að 1.500 skyrtur
hafi verið saumaðar síðan fyrirtækið hóf starfsemi í ágúst í fyrra.
Herratíska skyrta reykjaVík Hefur fengið góðar Viðtökur
...við erum
með yfir
400 efni og
mynstur til
að velja úr
og leggjum
mikið upp úr
því að vera
einungis
með há-
gæðaefni.
KYNNING
Frá vinstri: Leslie Dcunha framkvæmdastjóri, Ólafur Tómas Guðbjartsson markaðsstjóri, Sæþór Dagur Ívarsson sölustjóri og Íris
Sigurðardóttir hönnuður. Á myndina vantar Terry Devos stílista. Ljósmynd/Hari
t öffarinn Karl Lagerfeld er kominn með nýjan ilm bæði fyrir herra og dömur, fullkomna parið. Kvenilmurinn er andstæður af ferskum
blómum, metalic rose, með eldfimri blöndu af lime og
tærum kvenleika magnoliunnar. Upplýstur með Frangip-
ani blómi, flauelsmjúkri ferskju, umvafin sensual musk,
undirstrikað svörtum amber viðartóni. Herrailmurinn
er tímalaus og öfgafullur, karlmannlegur fougere þar
sem Lavender er beint í tóna af grænni Fjólu. Safaríkur,
brakandi ávaxta tónum af eplum. Með ávanabindandi
þægilegum þurrum tón af amber/ viðar köldum krydd
tónum líflegum tindrandi karekter.
Nýtt frá Karl Lagerfeld
ibuxin rapid
400 mg hraðvirkt ibuprofen
30 töflur
20% afsláttur
til 14. apríl
20% afsláttur af völdum vörum
SMÁRALIND
esprit.com
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
MJÚKT OG
FRÁBÆRT
Bolur í stærðum
S,M.L.XL
á kr. 2.500,-
buxur á kr. 1.995,-
fæst líka í svörtu
Full búð af
nýjum vörum
Laugavegur 58 · S. 551 4884 still@stillfashion.is stillfashion.is
Taxfree
dagar