Fréttatíminn - 21.03.2014, Qupperneq 74
fermingar Helgin 21.-23. mars 20142
Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur
Mikið úrval af gjafavöru
fyrir dömur og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Léttar
ferðatöskur
Kortaveski úr leðri
frá kr. 3900. Nafngylling kr. 1100.
Tru virtu
ál kortahulstur.
Kr. 7200 Kemur í veg fyrir
skönnun á kortaupplýsingum.
Skartgripaskrín-
Lífstíðareign
Sjá ítarlegar
upplýsingar á
www.drangey.is
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er
gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið
fær skeytið eða bréfið í hendurnar en
andvirðið rennur til jafnaldra fermingar-
barnsins sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu
fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á
www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á
skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út,
sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman
að fá pening og
„Gjöf sem gefur“.
Mig langar til að
einhver sem er
ekki eins heppinn
og ég fái að njóta
með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum
munaðarlaus. 1.990 kr.
fermingarskeyti á Íslandi
dugar fyrir 3 hænum.
Þær gefa okkur fullt
af eggjum.
5.000 kr. gjafabréf á
Íslandi myndi gefa
okkur geit.
Eða kannski reiðhjól.
Þá kæmist ég á markað
með uppskeruna okkar
og við fengjum pening.
Óskalistinn minn:
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
69
1
T
víburasysturnar
Ásta og Heiða Krist-
insdætur fermast
núna á sunnudaginn
í Grafarvogskirkju.
Þær hafa undirbúið stóra daginn
í allan vetur og sótt fermingar-
námskeið hjá kirkjunni þar sem
þær hafa fræðst um kristna trú og
Mamma saumaði fermingarkjólana
Tvíburasysturnar Heiða og Ásta Kristinsdætur fermast núna
um helgina í Grafarvogskirkju. Þær hafa tekið virkan þátt í
undirbúningi veislunnar og bakað veitingar með mömmu
sinni. Á undirbúningsnámskeiði fyrir ferminguna söfnuðu þær
fyrir vatnsbrunni í Afríku með fermingarsystkinum sínum.
Ásta og Heiða Kristinsdætur fermast núna á sunnudaginn í
Grafarvogskirkju. Fermingarbörnin þar verða um 230 talsins og
fermd í 12 hópum. Systurnar völdu sér ritningargrein úr fyrsta
sálminum sem þær lærðu þegar þær voru yngri. Ljósmynd/Hari.
lært ýmislegt tengt lífsleikni. Þær
systur eru líka í Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu og skírast þar og
fá blessun í apríl.
Hópurinn sem Ásta og Heiða
fermast með æfði sig fyrir ferm-
ingarathöfnina í kirkjunni í vik-
unni og fékk blaðamaður að fylgj-
ast með. Greinilegt er að það er að
mörgu að huga fyrir fermingar-
börnin og eins gott að standa upp
og setjast á réttum tíma. Stærsti
höfuðverkurinn fyrir flesta er þó
sennilega að muna ritningartext-
ann sinn og bera hann fram skýrt
og skorinort.
Grafarvogssókn er stór og
fermast þar um 230 börn í vor, í 12
hópum. Fyrstu hóparnir fermast
næsta sunnudag. Hvert ferm-
ingarbarn velur hvaða ritningar-
grein það fer með í athöfninni og
til hliðsjónar hafa prestarnir tekið
saman lista af hugmyndum. Þær
systur Ásta og Heiða ætla með
sömu ritningargreinina og voru
ekki nokkrum vafa þegar kom
að valinu. „Ritningin okkar er úr
fyrsta sálminum sem við lærðum
svo við kunnum hana mjög vel,“
segja þær. Heiða bætir við að hún
sé pínu kvíðin yfir því að gleyma
textanum. Til allrar hamingju
fá fermingarbörnin þó að hafa
með sér miða til að kíkja á ef þau
skyldu gleyma sínum texta.
Eins og áður segir hafa Ásta og
Heiða sótt fermingarnámskeið í
vetur og undirbúið sig undir ferm-
inguna. Hluti af undirbúningnum
var að láta gott af sér leiða og
söfnuðu ungmennin pening sem
notaður verður til að byggja vatns-
brunn í Afríku. „Við fengum dósir
og gengum með þær í hús og
söfnuðum pening. Þetta var hluti
af stærra verkefni og gert í öllum
kirkjum í Reykjavík, held ég,“
segir Ásta.
Ásta og Heiða eru líka í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu og
skírast þar og fá blessun í apríl
og ætla slá veislunum vegna þess
og fermingarinnar í Grafarvogs-
kirkju saman núna á sunnudag-
inn. Aðspurðar hvort ekki hafi
verið strembið að læra fyrir báðar
athafnirnar segja þær svo ekki
vera. „Við notum sömu bókina,
Con Dios, svo það var ekki svo
flókið. Við erum að mestu leyti
að læra það sama.“ Þær segja
töluverðan mun á kirkjunum
tveimur. „Í Hvítasunnukirkjunni
er öðruvísi tónlist. Meira svona
popp og allir syngja með lyfta upp
höndum. Það getur verið svolítið
skrítið fyrir fólk að upplifa það í
fyrsta sinn.“
Systurnar hafa tekið virkan
þátt í undirbúningi stóra dagsins
í vetur. „Við erum búnar að vera
að undirbúa og finna sal og svo-
leiðis. Svo höfum við líka hjálpað
mömmu og vinkonu hennar að
baka sumar kökurnar, sem var
mjög skemmtilegt.“
Móðir þeirra saumaði kjólana
eftir þeirra óskum og ætla þær að
vera eins á fermingardaginn. „Við
verðum í hvítum kjól með víðu
pilsi og blúndu að ofan og á erm-
um. Yfir verðum við svo í svörtum
blazer-jakka og í svörtum skóm
við.“ Myndatakan er afstaðin en
hana fóru þær í eftir prufuhár-
greiðsluna.
Þegar Ásta og Heiða eru
spurðar hvers vegna þær hafi
ákveðið að fermast stendur ekki
á svari. „Til að staðfesta trúna á
Guð fyrir fólki.“ Þær segja flesta í
sínum bekk fermast, einhverjir þó
í annarri kirkju.
Systurnar fá Mac Book Air
tölvu í fermingargjöf frá for-
eldrum sínum en áttu þó ekki að
fá að vita það fyrir ferminguna.
„Mamma sagði okkur það óvart.
Það eiginlega datt út úr henni,“
segir Ásta og þær hlæja báðar
dátt.