Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 76

Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 76
fermingar Helgin 21.-23. mars 20144 Gamaldags rakaraklipping í tísku hjá strákum Í vor er hártískan hjá strákum undir áhrifum frá Mad Men þáttunum, snyrtilegt hjá eyrum og á hnakka og toppurinn greiddur til hliðar. Mjög sítt hár er í tísku hjá stelpum og vinsælt að setja í það liði eða fléttur. É g mæli alltaf með því að krakkar fylgi ekki ýktum tískustraumum þegar verið er að greiða fyrir ferminguna, heldur hafi hlutina sígilda. Ég veit til dæmis um fólk sem fermdist í kringum 1987 og var í bermúda buxum, með risastóra axlapúða og brodda og þolir ekki ferm- ingarmyndina sína,“ segir Nonni Quest, eigandi hársnyrtistofunnar Kristu/Quest og formaður meist- arafélags hársnyrta. Hjá strákum er mikið í tísku núna að vera með gamaldags herraklippingu og segir Nonni hártískuna minna á Mad Men sjón- varpsþættina. „Þetta eru þessar gömlu, virkilega vel útfærðu her- raklippingar. Þá er hárið snyrtilegt í kringum eyrum og á hnakka. Svo er toppurinn greiddur til hliðar. Það má því segja að gömlu rak- araklippingarnar séu að ryðja sér aftur til rúms og svo sannarlega kominn tími til,“ segir hann. Sítt hár er vinsælt hjá stelpum og segir Nonni það vissa áskorun fyrir hársnyrtifólk. „Þá er hárið þungt og erfiðara viðfangs. Nú er mjög vinsælt að vera með sígildar greiðslur, eins og liði eða fléttur en minna um uppsett hár.“ Sé sett skraut í hárið er tískan í vor að hafa það mjög smátt í sniðum. Nonni Quest hársnyrtimeistari mælir með því að fermingarbörnin séu með klassíska hárgreiðslu. Sítt hár er mikið í tísku hjá stúlkunum og fléttur vinsælar. Hártískan hjá strákunum er undir áhrifum frá sjónvarpsþáttunum Mad Men. Liðir eru vinsæl fermingargreiðsla hjá stelpum í vor. Siðmennt hefur staðið fyrir borgara- legri fermingu í 25 ár og hafa vinsæld- irnar aukist ár frá ári. Nú í vor ætla um 304 ungmenni að fermast borg- aralega hjá Siðmennt en í fyrra voru þau 209 svo aukningin á milli ára er 45 prósent. Þegar fyrsta athöfnin fór fram árið 1989 voru 16 ungmenni sem fermdust borgaralega. Nú í vor verða samtals 9 athafnir á 6 stöðum á landinu. Þrjár í Reykjavík, tvær í Kópavogi og ein á Akureyri, Flúðum, Fljótsdalshéraði og á Höfn í Hornafirði. Undirbúningur borgara- legrar fermingar felst í því að börnin sæki námskeið þar sem þau eru undirbúin undir það að verða fullorðin með öllum þeim réttindum og skyld- um sem því fylgja. Þar er til dæmis farið yfir samskipti unglinga og full- orðinna, fjölskylduna, siðfræði, gagn- rýna hugsun, mismunandi lífsviðhorf, frelsi, ábyrgð, hamingju, gleði, sorg, samskipti, mannréttindi og réttindi unglinga, jafnrétti, siðfræði, efahyggju og trúarheimspeki, baráttu fyrir friði, samskipti kynjanna, umhverfismál, fordóma, sorgarviðbrögð og fleira. Hope Knútsson, formaður Sið- menntar, hafði frumkvæði að því að bjóða upp á borgarlegar fermingar á Íslandi og sagði frá því viðtali í Fréttatímanum september í fyrra að þegar börnin hennar tvö voru að komast á fermingaraldur skrifaði hún blaðagrein þess efnis að þau ætluðu að verða fyrst á Íslandi til að fermast borgaralega og bauð öðrum að vera með. „Síminn hjá mér byrjaði að hringja þá og hefur ekki stoppað síðan, í tuttugu og fimm ár,“ sagði hún. -dhe Sífellt fleiri kjósa borgaralega fermingu Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22 borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108 urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115 Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek, Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11 Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því! Nánar um sölustaði á facebook Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull. Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu hári og dömum á öllum aldri. Fáanleg í 12 litum VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 36% þeirra sem beita drengi kynferðislegu ofbeldi eru ókunnugir karlar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.