Fréttatíminn - 21.03.2014, Qupperneq 86
KYNNING
fermingar Helgin 21.-23. mars 201414
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Nýjar vörur í hverri viku stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
U pphaflega hugsaði ég bloggið
mest fyrir sjálfa mig
til að halda utan
um uppskriftirnar
mínar. Eins vildi ég
veita sjálfri mér að-
hald og hvatningu
til þess að prófa
reglulega eitthvað
nýtt og spennandi í
eldhúsinu og fannst
bloggið góð leið til
þess,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir
sem heldur úti vinsælu bloggi á
eldhussogur.com.
Fær 300 þúsund heimsóknir
á mánuði
Matarblogg Drafnar varð hins
vegar mörgum öðrum hvatning
í eldamennskunni því bloggið
fær nú um það bil 300 þúsund
heimsóknir á mánuði. „Ég held
að þessi fjöldi heimsókna endur-
spegli áhuga fólks á því að elda
einfaldan en jafnframt hollan og
góðan heimilismat,“ segir Dröfn.
„Matarblogg eru almennt
frábær vettvangur til þess að
deila góðum uppskriftum. Það
þarf hvorki að vera sérfræðingur
í matargerð eða bakstri til þess
að blogga um mat né til þess nýta
sér uppskriftir á matarbloggum -
bara hafa áhuga á góðum mat!“
Undirbýr fermingu í apríl
Dröfn er farin að huga að veiting-
um fyrir fermingarveislu sonar
síns sem haldin verður í apríl. „Í
fermingarveislunni ætlum við
bjóða upp á smáréttahlaðborð og
ég mun búa til hluta af þeim veit-
ingum sjálf og kaupa hluta þeirra
tilbúnar. Mér finnst mikilvægt að
njóta aðdraganda fermingarinnar
og dagsins sjálfs og langar því
ekki að binda mig alveg í eld-
húsinu fram að fermingu.“
Eitt af því sem Dröfn ætlar að
búa til sjálf á smáréttahlaðborðið
eru kjúklingaspjót sem hægt er
að grilla á útigrilli eða elda í ofni.
„Ég hef verið að prófa mig áfram
með kjúklingaspjót og góðar
marineringar. Ég er komin niður
á tvenns konar tegundir sem fjöl-
skyldan öll féll fyrir. Kjúklinga-
spjót henta afar vel á hlaðborð
því þau er hægt
að útbúa deginum
áður.“
Fermingarbarnið
ræður eftirrétt-
unum
Fermingarbarnið
hefur ekki mikla
skoðun á smárétt-
unum en veit hvað
hann vill þegar
kemur að eftirrétt-
um. „Sonur minn gaf mér frjálsar
hendur með smáréttina en hann
var nokkuð ákveðinn í hvaða
eftirrétti hann langaði að bjóða
upp á. Í boði verður meðal annars
kransakaka, súkkulaðigosbrunn-
ur fyrir ber og ávexti, sænsk
prinsessuterta og súkkulaðifrauð
með Dumle karamellum.“
Dröfn segir súkkulaðifrauðið
upplagt á eftirréttahlaðborðið því
það sé auðvelt að útbúa með góð-
um fyrirvara. „Súkkulaðifrauðið
er hægt að byrja að útbúa tveimur
dögum fyrir fermingu og leggja
síðustu hönd á verkið daginn
fyrir ferminguna. Það er borið
fram í litlum glösum eða skálum
sem gefa skemmtilegan svip á
hlaðborðið en síðast en ekki síst
er það svo dæmalaust gott!“
Litrík og einföld súpa
Nú um mundir er afar vinsælt
að bjóða upp á góðar súpur í
fermingarveislum og Dröfn gefur
einnig uppskrift að einni af sinni
uppáhalds kjúklingasúpu sem
hentar vel í fermingarveislur.
„Þessi kjúklingasúpa er ekki
bara einstaklega bragðgóð
heldur jafnframt svo fallega litrík
og einföld að útbúa. Sætu kartöfl-
urnar gefa henni að auki svo gott
bragð og skemmtilega áferð. Mér
finnst best að nota Rose Poultry
úrbeinuð kjúklingalæri í súpuna
því kjötið er dekkra og bragð-
meira en kjúklingabringur og
mjög meyrt. Einn af kostunum
við að bjóða upp á þessa súpu
í fermingarveislu er að súpu-
grunninn er hægt að gera daginn
fyrir veisluna og þá þarf fátt eitt
annað en að bæta við kjúklingn-
um í súpuna á sjálfan fermingar-
daginn.“
Girnilegir réttir á fermingarhlaðborðið
Dröfn Vilhjálmsdóttir heldur úti hinu vinsælu matarbloggi
Eldhússögur þar sem hún deilir girnilegum uppskriftum með
lesendum sínum. Hér reiðir hún fram girnilegar uppskriftir að
réttum sem henta vel í fermingarveislurnar.
Asísk kjúklinga- og sætkartöflusúpa
(fyrir 4-5)
olía til steikingar
3 hvítlauksrif, söxuð smátt eða pressuð
1 ferskur rauður chili, fræhreinsaður og saxaður smátt
1 msk ferskt engifer, rifið
30 g ferskt kóríander, stilkar og blöð saxað í sitt hvoru lagi
2 tsk rautt karrímauk (currypaste) frá Blue Dragon
800 ml kjúklingasoð (gert úr ½ dl af fljótandi Oscar kjúklinga-
krafti)
1 dós Blue Dragon kókosmjólk (400 ml)
ca. 800 g sætar kartöflur, flysjaðar og skornar í bita
700 g úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
100 g Philadelphia rjómaostur með sweet chili
safi af 1 límónu (lime)
2 tsk fiskisósa (fish sauce)
hvítur pipar & salt
Olía hituð í stórum potti og hvítlauki, chili, engifer og kóríander
stilkum ásamt karrímauki bætt út í pottinn og steikt í um það
bil 2 mínútur. Því næst er kjúklingasoði, kókosmjólk og sætu
kartöflunum bætt út og soðið í 10-15 mínútur eða þar til sætu
kartöflurnar eru tilbúnar. Á meðan eru kjúklingalærin snyrt og
skorin niður í hæfilega stóra bita, krydduð með pipar og salti og
snöggsteikt á pönnu. Þegar sætu kartöflurnar eru orðnar mjúkar
er súpan maukuð í matvinnsluvél eða með töfrasprota þar til
áferðin er mjúk og kekklaus. Því næst er kjúklingnum bætt út
í súpuna ásamt Philadelphia ostinum og hún látin malla þar til
kjúklingurinn er soðinn í gegn. Að lokum er söxuðu kóríander-
blöðunum bætt út í ásamt limesafa.
Dumle-súkkulaðifrauð með karamelli-
seruðum hnetum (passar í ca. 10 lítil glös)
1 poki Dumle
karamellur (120 g)
3 dl rjómi
1 dl hnetur
(t.d. heslihnetur og kasjúhnetur)
2 msk sykur
½ msk smjör
hindber til skreytingar
Dagur 1:
Hneturnar eru grófsaxaðar og settar á pönnu ásamt sykri og
smöri við meðalhita, hrært stöðugt í blöndunni. Þegar sykurinn
hefur brúnast og hneturnar karamelliserast er þeim hellt á
bökunarpappír og leyft að kólna. Þegar hneturnar eru orðnar
kaldar eru þær muldar niður og geymdar í góðu íláti.
Karamellurnar eru klipptar í smærri bita. Rjómi hitaður í potti
og þegar hann er kominn nálægt suðu er karamellunum bætt út
rjómann og hrært þar til þær hafa bráðnað. Rjómablöndunni er
því næst hellt í skál og sett í kæli þar til blandan er orðin alveg
köld, best er að geyma hana í kælinum yfir nóttu.
Dagur 2:
Rjómablandan er þeytt í hrærivél þar til að hún hefur náð
æskilegum stífleika. Þá er blandan sett í rjómasprautu og
sprautað í um það bil tíu lítil glös eða skálar. Karamelliseruðu
hnetunum dreift ofan í hvert glas og skreytt með hindberjum.
Það er í lagi að setja plastfilmu yfir glösin og geyma þau í kæli
fram á næsta dag.
Kjúklingaspjót í hnetusósu
(Um það bil 14 grillspjót)
1 dl gott hnetusmjör
1 dós Blue Dragon kókosmjólk (400 ml)
1,5 msk fljótandi kjúklingakraftur frá Oscar
safi af 1 límónu (lime)
2 msk Blue Dragon sojasósa
1 msk rautt karrímauk (currypaste) frá Blue Dragon
2 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð smátt
2 tsk saxað kóríander í krukku frá Blue Dragon
2 msk olía til steikingar
900 g kjúklingabringur frá Rose Poultry
grillspjót (tréspjót þarf að leggja í bleyti í 30 mínútur fyrir
notkun)
Karrímauk og hvítlaukur er steikt í stutta stund upp úr olíunni í
potti. Þá er restinni af hráefnunum bætt út í, fyrir utan kjúkling-
inn, og hrært þar til allt er vel blandað saman. Látið malla í ca.
25 mínútur. Sósan smökkuð til með til dæmis meiri sojasósu eða
limesafa eftir smekk. Að lokum er sósunni leyft að kólna dálítið.
Kjúklingabringurnar eru skornar niður í hæfilega stóra bita.
Kjúklingabitunum er blandað saman við tæplega helminginn
af sósunni og sett í kæli í nokkrar klukkustundir, helst yfir nótt.
Kjúklingabitarnir eru því næst þræddir upp á grillspjót og þau
grilluð við meðalháan hita í um það bil 10 - 12 mínútur eða þar
til kjötið er grillað í gegn – tíminn er breytilegur eftir grillum.
Það er líka hægt að grilla kjúklingaspjótin í bakarofni við 225
gráður. Spjótin eru borin fram heit eða köld með restinni af
heitri sósunni.
Kjúklingaspjót í tælenskri grillsósu
(Um það bil 14 grillspjót)
4 msk Huntz tómatpúrra
4 msk púðursykur
4 msk Blue Dragon sojasósa
2 tsk cumin (krydd)
2 tsk saxað kóríander í krukku frá Blue Dragon
4 msk Blue Dragon sweet chilli sósa
5 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð smátt
1 dós Blue Dragon kókosmjólk (400 ml)
900 g kjúklingabringur frá Rose Poultry
grillspjót (tréspjót þarf að leggja í bleyti í 30 mínútur fyrir
notkun)
Öllum hráefnunum í sósuna, fyrir utan hvítlauk og kókosmjólk,
er blandað saman í pott. Á meðan suðan kemur upp er hrært
stöðugt í blöndunni þar til púðursykurinn er búinn að leysast
upp. Þá er hvítlauknum og kókosmjólkinni bætt út pottinn og
sósan látin ná suðu. Því næst er potturinn tekinn af hellunni og
sósan látin kólna.
Kjúklingabringurnar eru skornar niður í hæfilega stóra bita.
Kjúklingabitunum er blandað saman við tæplega helminginn
af sósunni og sett í kæli í nokkrar klukkustundir, helst yfir nótt.
Kjúklingabitarnir eru því næst þræddir upp á grillspjót og þau
grilluð við meðalháan hita í um það bil 10 - 12 mínútur eða þar
til kjötið er grillað í gegn – tíminn er breytilegur eftir grillum.
Það er líka hægt að grilla kjúklingaspjótin í bakarofni við 225
gráður. Spjótin eru borin fram heit eða köld með restinni af
heitri sósunni.
Dröfn Vilhjálmsdóttir