Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 24
– fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! 890 kr.pk. Verð áður 1299 kr.pk. Ísbland eitthvað fyrir alla, 16 stk. 31% afsláttur www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Nanogen Hárvörur 20% afsláttur Gildir út maí Auka hárvöxt, þykkja og gefa fyllingu. Trefjar hylja skallabletti. Aukin vellíðan og meira sjálfsöryggi með góðri hárumhirðu. Hann frelsar Búkollu sem hafði verið í haldi ógnarstórrar tröll- skessu. Þegar hann er kominn á veg kemur skessan æðandi á eftir en Búkolla er göldrótt og hjálpar Karlssyni að tefja fyrir henni með hjálp hinna miklu frumkrafta eða elementa, eldinum, loftinu, vatninu og loks jörðinni sjálfri sem steingerir tröllið að lokum. Lausnin er fundin. Engin ræður við náttúruöflin. Karlsson kemst heim með Búkollu sína og urðu karl og kerling því ósköp fegin. Allir helstu teiknarar á öndverðri 20stu öld glímdu við að mynd- lýsa Búkollu. Listamenn eins og Ásgrímur Jónsson taka til hendinni í myndlýsingum þjóðsagna. En Strandamaðurinn Tryggvi Magnússon var í raun stærsti íslenski sérhæfði teiknarinn. Hann er í raun aðalfrum- herjinn í merkingunni að hann verður fyrsti atvinnuteiknarinn. Hann eins og Muggur kemst til meginlands Evrópu og Bandaríkjanna og smitast mjög af anda hinnar rómantísku stefnu sem er andstæðan við raunsæið og veruleikann. Rómantíkin fer innávið inn í lönd drauma okkar bæði þá háleitu og hinna myrku. Tryggvi myndskreytti mikið fyrir börn. Hann teiknaði til dæmis Gagn og gaman og Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum og festir ímynd hinna ís- lensku jólasveina í hugum okkar. Tryggvi lést árið 1960 sextíu ára gamall. Síðan fer hópur nýrrar kynslóðar til Kaupmannahafnar á milli- stríðsárunum til að læra hagnýta grafík eins og faggreinin var þá kölluð. Í þeim hópi var Halldór Pétursson ásamt systur sinni Ágústu Péturs- dóttur Snæland. Þau voru börn Péturs Hall- dórssonar borgarstjóra og alþingismanns. Það má nefna að hann var í einkatímum hjá Guð- mundi Thorsteinsson (Muggi) á unglingsárum sínum. Halldór fer líka til Bandaríkjanna eins og Tryggvi. Halldór tekur við sem aðalteiknari landsins næstu áratugi og sinnir myndskreyt- ingu barnabóka á stórkostlegan hátt. Halldór lést líka fyrir aldur fram árið 1977, 61 eins árs gamall. Endurútgáfa á úrvali á íslenskum þjóðsögum úr safni Jóns Árnasonar nú á þessu herrans ári 2014 minnir um margt á þetta tímabil frá aldamótunum 1900 fram eftir 20stu öld. Það er Útgáfufélagið Heimur sem gefur út. Freydís Kristjánsdóttir var fengin til að myndlýsa. Það gerir hún sannarlega á sinn hátt en samt með sama blæ og vormenn íslenskrar myndlista. Þegar vel tekst til festast þessar ímyndir sérstaklega í hugarfylgsnum barna. Á margan hátt finnur samtíminn fyrir nýrri rómantískri bylgju. Við leitum innávið og vilji er fyrir hendi að yfirgefa efnishyggju og leita eftir skilningi á dýpri verðmætum. (17550 Goddur) Guðmundur Oddur Magnússon – Goddur – prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands Mt. (17550 Freydís - hafa þessa mynd stærsta) (17550 Tryggvi) (17550 Ásgrímur) (17550 Halldór) (17550 Muggur) Tryggvi Magnússon (Óvíst ártal): Forsíða á barnabók um Búkollu. Ásgrímur Jóns- son (1949): ... sér hann hvar kemur ógnar- stór tröllskessa á eftir sér og önnur minni með henni. Halldór Pétursson (1949): Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina. Legg ég á og mæli um að það verði að svo stórri móðu að ekki komist yfir nema fuglinn fljúgandi. Muggur (1914): Nautið drakk undir eins upp alla móðuna. 24 íslenskar þjóðsögur Helgin 23.-25. maí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.