Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 56
56 heilsa Helgin 23.-25. maí 2014
KYNNING
Í sland er í okkur öllum og þá er átt við Ísland allt, hinar af-skekktu slóðir á útnesjum og
hinar fjölförnu rétt við þéttbýlið.
Allt á þetta land streng í hjörtum
okkar og með því að heimsækja
það og allar þess grónu rústir þá
vitum við enn betur en áður hver
við erum,“ segir Páll Ásgeir Ás-
geirsson göngugarpur, leiðsögu-
maður og útivistarfrömuður sem
var að senda frá sér bókina „155
Ísland: Áfangastaðir í alfaraleið.“
„Þessi bók á sér þá forsögu að
sumarið 2008 kom út bók sem hét
101 Ísland-áfangastaðir í alfaraleið.
Hún fékk góðar viðtökur og því
var ráðist í það að stækka hana og
endurbæta og fjölga viðkomustöð-
um um ríflega 50%. Þetta þýddi að
við Rósa Sigrún, eiginkona mín og
félagi til margra ára, þvældumst
um gervallt Ísland í fyrrasumar í
leit að heppilegum viðbótum. Eins
og við fyrri bókina var það haft að
leiðarljósi að benda fólki á staði
sem væru minna þekktir en vin-
sælustu ferðamannastaðir,“ segir
Páll Ásgeir.
Páll Ásgeir hefur áður skrifað
allnokkrar bækur um ferðir og
útivist, þar á meðal Útivistarbók-
ina, Hálendishandbókina og Horn-
strandir - gönguleiðir og áfanga-
staðir.
Hann viðurkennir að í nýju
bókinni séu býsna margir staðir
á Vestfjörðum svona miðað við
heildina „og skrifast það á æsku
höfundar sem ungur bast þeim
fjórðungi böndum sem slitna
ekki,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
GönGur 155 áfanGastaðir Í alfaraleið við þjóðveGi landsins
50% meira Ísland
Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir þvældust saman um allt land til að
finna efni í bókina. Mynd/Hari
G uðrún Helga Kristjánsdóttir, mynd-listarkona úr Grindavík, hefur dvalið á Heilsuhóteli Íslands að Ásbrú í Reykja-
nesbæ og leiddi dvölin til ýmissa óvæntra
ævintýra og síðast en ekki síst til betri heilsu.
Færeyskur listamaður, sem er tíður gestur á
hótelinu, hefur skipulagt ferð Helgu og níu
annarra íslenskra listamanna til Færeyja í
næstu viku. Þar er ætlunin að heimsækja
listamenn og söfn, mála landslagið og halda
óformlegar samsýningar með færeyskum
listamönnum.
Streitan á bak og burt
Dvölin á Heilsuhóteli Íslands hefur verið Guð-
rúnu Helgu góð reynsla og segir hún streituna
líða úr sér við að ganga inn á hótelið. „Það er
virkilega þægilegt að dvelja á Heilsuhótelinu.
Herbergin eru mjög notaleg og inni á þeim
er eldhúskrókur og sjónvarp. Á morgnana er
boðið upp á hollan morgunverð og þeir gestir
sem vilja geta látið mæla blóðþrýsting og
blóðsykurstuðul hjá hjúkrunarfræðingi sem
þar starfar.”
Boðið upp á hollt grænmetisfæði, súpur og
safa. Ekki er neinn fiskur, kjöt eða kaffi á boð-
stólum. Gestir geta borðað eins og þeir vilja og
boðið er upp á vatn og te að drekka. „Ég fann
strax hvað mataræðið var hreinsandi og gott.
Það var virkilega gott að sleppa kaffinu,” segir
Guðrún Helga.
Einn dag í viku er vatnsdagur á hótelinu
og þá hreinsa gestir líkama sinn og borða
ekkert, heldur drekka aðeins te og vatn. „Það
er hugsað til að hreinsa líkamann af öllum
óæskilegum efnum. Ég var orðin svöng um há-
degi og velti því fyrir mér hvort ég myndi lifa
daginn af. Þetta var svo í fínu lagi og greini-
legt að hugarfarið skiptir miklu máli í slíkum
hreinsunum.“
Án tölvunnar
Að dvölinni lokinni fann Guðrún Helga mikinn
mun á líðan sinni og segir hún það ekki síst
því að þakka hvað hún hvíldist vel á Heilsuhót-
elinu en hún ákvað að vera ekki með síma og
tölvu með sér þar. „Þessi tæki eru svo miklir
orkuþjófar að það var mjög gott að sleppa þeim
og hvílast.“ Ýmis afþreying er í boði á kvöldin
fyrir þá gesti sem það kjósa.
Þegar Guðrún Helga dvaldi þar kom Sig-
ríður Klingenberg í heimsókn sem og Ásdís
Einarsdóttir, grasalæknir úr Reykjanesbæ.
Þá er gott safn bóka og kvikmynda fyrir
gesti.
Guðrún Helga þekkir marga sem dvalið
hafa á Heilsuhótelinu og segir hún algengt að
fyrstu vikuna sé fólk að ná streitunni úr sér.
„Það eru svo margir sem fara aftur og aftur og
koma til að baka fullir af orku og fróðari um
mataræði og mikilvægi þess að fá góðan svefn.
Eftir dvölina finnur maður hvað það virkar vel
í dagsins amstri.“
Hollustan góð fyrir listina
Guðrún Helga er með vinnustofu í Grindavík
þar sem hún sinnir starfi sínu og einbeitir sér
að kraftmiklum og litaglöðum olíumálverkum
og fær innblástur úr náttúrunni á Reykjanesi.
Eftir dvölina á Heilsuhótelinu er hún betur
meðvituð um það sem hún borðar og er miklu
orkumeiri þegar mataræðið er valið vel. „Það
er mikilvægt að hafa orku til að fá innblástur.
Ef maður er vel hvíldur hefur maður meiri
orku til að framkvæma og vinna úr hugsunum
sínum.“ Nánari upplýsingar um verk Guðrúnar
Helgu má nálgast á síðunni http://helgakrist-
jans.com/.
Litrík dvöl á Heilsuhóteli Íslands
Eftir dvöl á Heilsuhóteli Íslands var Guðrún Helga Kristjánsdóttir, myndlistarkona úr Grindavík, endurnærð og margs vísari
um mikilvægi góðs mataræðis og hvíldar. Hún segir mikilvægt að hafa orku til að vinna úr hugsunum sínum í listsköpun.
Myndlistarkonan Guðrún Helga Kristjánsdóttir fann mik-
inn mun á líðan sinni eftir dvöl á Heilsuhóteli Íslands.
Þar er aðeins boðið upp á hollt grænmetisfæði, súpur
og safa, vatn og te. „Ég fann strax hvað mataræðið var
hreinsandi og gott. Það var virkilega gott að sleppa
kaffinu,“ segir hún.
Það eru margir
sem fara aftur og
aftur og koma til
að baka fullir af
orku og fróðari
um mataræði og
mikilvægi þess að
fá góðan svefn.
Eftir dvölina
finnur maður
hvað það virkar
vel í dagsins
amstri.