Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 84

Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 84
8 viðhald húsa Helgin 23.-25. maí 2014 Í fallegu rúmlega aldargömlu húsi við Grandaveg í Vesturbæ Reykjavíkur býr blaðamaður- inn og rithöfundurinn Björn Þór Sigbjörnsson ásamt fjölskyldu. Hús- ið stóð áður við Laugaveg 63, rétt ofar en Kjörgarður er nú. Árið 1984 var húsið flutt þaðan á Grandaveg. Húsið sem stóð við hliðina á Lauga- veginum, númer 61, var einnig flutt þá á sama stað svo þrátt fyrir flutn- inginn hafa húsin tvö alla tíð staðið hlið við hlið. Töluvert viðhald fylgir svo gömlu húsi og kveðst Björn vera alveg ómögulegur þegar kemur að smíð- um og fær því yfirleitt fagmenn til að sjá um endurbætur. Hann segir þó æskilegt að eigendur svo gam- alla húsa kunni eitthvað fyrir sér með hamarinn. „Tengdapabbi er mikill hagleiksmaður og hefur að- stoðað okkur. Fyrri eigendur húss- ins voru mjög natnir og áhugasamir og gerðu sitt besta til að halda því fallegu svo við höfum notið góðs af því,“ segir hann. Skráð byggingarár hússins er 1984 og því telst það aðeins þrjátíu ára gamalt þrátt fyrir að vera í raun yfir hundrað ára. Húsið er því ekki friðað. Við endurbætur á húsinu hafa Björn og Ástríður Þórðardótt- ir, kona hans, verið trú uppruna þess. „Við tökum því mjög alvarlega að eiga svo gamalt hús og finnst við verða að hafa það eins nálægt upprunalegri mynd og hægt er. Allt sem við höfum gert hefur fallið að húsinu og lögum um friðuð hús.“ Alla hjúskapartíð á Grandavegi Nú í vetur var skipt um alla glugga í húsinu og á undanförnum árum einnig um tröppur og palla auk þess sem eitt og annað smálegt hefur verið gert. Smiður sem þau þekkja tók að sér að skipta um gluggana en Björn hafði hugsað sér að lakka þá sjálfur og bað smiðinn um ráðleggingar. „Ég fékk nokkur góð ráð, eins og til dæmis að ég þyrfti að spartla í þá og nota olíu- lakk. Svo ætlaði ég að dunda mér við þetta í vor og sumar.“ Þær fyrir- ætlanir urðu að engu því smiðurinn hvíslaði því að Ástríði að Björn væri ekki rétti maðurinn í verkið; betra væri að fá faglærðan málara svo vel myndi takast til. Skemmst er frá að segja að Björn ætlar að hlýða því. Þau Ástríður eru þó liðtæk í garð- ræktinni og segir Björn í gaman- sömum tón að aldrei hafi þurft að kalla til sérfræðing í sláttinn eða snyrtingu beða. Björn og Ástríður keyptu húsið fyrir tíu árum en þau bjuggu áður í lítilli blokkaríbúð við Grandaveg- inn. „Við skoðuðum nokkur hús í hverfinu en þetta varð fyrir valinu. Það var mjög stutt á milli svo við gátum borið búslóðina þegar við fluttum.“ Þau hafa því alla sína hjú- skapartíð búið við Grandaveginn og kunna því einstaklega vel. „Hérna Fékk ekki að lakka gluggana sjálfur Björn Þór Sigbjörnsson býr ásamt fjölskyldunni í yfir aldargömlu húsi við Grandaveg í Vesturbæ Reykjavíkur. Við endurbætur á húsinu hafa þau verið uppruna hússins trú en láta fagfólk um smíðarnar. Björn ætlaði sjálfur að lakka gluggana í sumar en smiður hvíslaði því að konunni hans að betra væri að fá faglærðan málara svo vel tækist til. neðar í götunni eru svo þjónustu- íbúðir fyrir aldraða þannig að við sjáum fyrir okkur að búa alla okkar tíð hérna við Grandaveginn,“ segir hann. Valsmenn versli við KR-inga Sonur þeirra hjóna, Sölvi, æfir fótbolta með KR og segir Björn að í seinni tíð sé nálægðin við Frosta- skjól einn helsti kosturinn við að búa á Grandavegi. „Þangað geng ég oft til að fá loft í lungun. Mér finnst líka gott að vera nálægt sjón- um og í göngufæri við miðbæinn.“ Þegar húsið stóð við Laugaveg voru þar reknar verslanir af ýmsu tagi og af auglýsingum að dæma voru það lágvöruverðsverslanir því orðin ódýrt og billegt koma þar oft fyrir. Síðar var veitingastofa í húsinu, úrsmiður, blómaverslun og raftækjaverslun sem eitt sinn auglýsti í Valsblaðinu: „Valsmenn verslið við KR-inga" og segir Björn gaman að því, enda séu þau fjöl- skyldan dyggir stuðningsmenn KR. Björn starfaði áður sem dag- skrárgerðarmaður á Rás 2 og blaðamaður hjá Fréttablaðinu. Frá árinu 2011 hefur hann starfað sjálfstætt við blaðamennsku og ritstörf. Hann vinnur yfirleitt við borðstofuborðið heima og þaðan er útsýni yfir Lýsisreitinn og á haf út. Á reitnum hafa undanfarna mán- uði verið sprengingar vegna ný- byggingar sem þar á að rísa. Björn fann vel fyrir sprengingunum en segir ekkert hafa skemmst. Þegar blokkin rís nýtur sjávarútsýnisins ekki lengur við. „Til stóð að byggja blokkina fyrir hrun en það tafðist svo við höfum notið útsýnisins til hins ýtrasta í millitíðinni. Við munum sakna þess en fylgjumst í staðinn með mannlífinu sem eykst í götunni með öllum nýju íbú- unum.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Áður stóð húsið við Laugaveg 63 en var flutt á Grandaveg árið 1984. Þegar húsið stóð við Laugaveg voru þar reknar verslanir af ýmsu tagi, veitingastofa, blómaverslun og raftækjaverslun. Ljósmynd/Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.