Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 66
Melissa Whitaker, fiðrildafræðingur frá Harvard, er einn höfunda Wide Slumber sem frumsýnt verður á laugardag í Tjarnarbíói. Hún verður einnig með námskeið í innrömmun fiðrilda í Tjarnarbíói auk þess að flytja fyrirlestur um heillandi hamskiptaferli fiðrilda í Tjarnarbíói á sunnudag. Ljósmynd/Hari  Listahátíð Nýtt tóNLeikhúsverk frumsýNt í tjarNarbíói Draumóramenn og brjálaðir vísindamenn geta bjargað heiminum Wide Slumber er nýtt tónleikhúsverk sem frumsýnt verður um helgina á Listahátíð í Reykjavík. Verkið kemur úr smiðju VaVaVoom leikhópsins og plötuútgáfunnar Bedroom Community. Að verkinu kemur fjöldi listamanna en þar að auki hefur hópurinn fengið til liðs við sig vísindamenn á sviði svefnrannsókna og fiðrildarannsókna. Melissa Whitaker, einn höfundanna og starfandi fiðrildafræðingur við Harvard háskóla er komin til Íslands til að vera viðstödd frumsýninguna í Tjarnarbíói á laugardag. É g byrjaði á því að læra líffræði og vann við líffræðirannsóknir í nokk-ur ár. En svo þegar ég var að vinna í doktornum rambaði ég inn á fiðrilda- rannsóknarstofu og varð algjörlega ást- fangin,“ segir Melissa Whitaker, doktor í fiðrildafræðum við Harvard háskóla. Auk þess að rannsaka fiðrildi hefur Melissa hannað snjallsímaforritið „The Butterfly Guide“ til að gera fiðrildafræði aðgengi- legri almenningi. „Margir sem vinna í þessu segjast hafa verið með fiðrildaháf í hendi síðan þeir voru litlir en ég uppgötv- aði ekki töfraveröld fiðrildanna fyrr en ég var að nálgast þrítugt. Þá færði ég mig alveg yfir í fiðrildin og næstu ár fóru í að rannsaka þau. Á þeim tíma uppgötvaði ég eina fiðrildategund sem er alveg mögnuð en það eru „Lycaenid“ fiðrildin. Þessi fiðrildi eiga í samlífi við maura og þau eru alveg ótrúlega heillandi og á margan hátt mjög furðuleg.“ Hamskipti túlkuð með leik, söng og brúðum Verkið er innblásið af ljóðabókinn „Wide Slumber for Lepidopterists“ eftir A. Rowlings en á sviðinu er heimur ham- skiptanna skapaður með hjálp tónlistar, leikhúss og brúðuleikhúss. „VaVaVoom hafði samband við mig alveg út í bláinn því þau vildu fá innsýn í þennan heim um- skiptanna frá sérfræðingi. En svo var ég bara svo ótrúlega spennt fyrir verkefninu að þetta þróaðist út í meira samstarf.“ Melissa hefur unnið mikið í kringum listamenn en aldrei tekið formlega þátt í jafn umfangsmiklu verkefni. „Þetta er svo áhugavert ferli því það eru engar reglur. Við vorum ekkert alveg viss um það sem við vorum að gera því það var alveg nýtt fyrir okkur. En við horfðum á hvert annað með aðdáun og virðingu fyr- ir starfi hvers annars og reyndum svo að flétta reynsluheimana saman. Samtalið hófst í desember í gegnum tölvuna en svo hittumst við í New York í vor þar sem ég sá strax að þessi hópur listamanna er að gera eitthvað alveg nýtt. Ég hef aldrei séð hamskipti, ferli sem er mér kunnugt sem líffræðingur, túlkuð á þennan hátt. Þetta er önnur leið til að rannsaka, en leið sem ég trúi virkilega á,“ segir Melissa sem hefur mikla trú á samstarfi listamanna og vísindamanna. Samruni lista og vísinda mikilvægur „Ég hef óbifandi trú á samruna lista og vísinda og held að það sé áskorun nútímans að vinna að frekari samstarfi milli þessara annars aðskildu greina. Við erum að horfast í augu við svo mikið af vandamálum akkúrat núna í heiminum, hvort sem það eru gróðurhúsaáhrif, dýr í útrýmingu, fólksflutningar eða fæðuör- yggi. Ég hef fulla trú á því að það séu til lausnir við þessu öllu þarna úti einhvers- staðar, við þurfum bara að finna þær. Þær eru ekki ófundnar vegna skorts á tækni eða þekkingu, heldur vegna skorts á ímyndunarafli. Ég held að það sé ákveðið bakslag í gangi núna þegar kemur að því að virkja ímyndunaraflið og eina leiðin til að bjarga því er með hjálp draumóra- manna og brjálaðra vísindamannanna. Þess vegna er svo mikilvægt listamenn og vísindamenn vinni saman.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Á þeim tíma uppgötvaði ég eina fiðr- ildategund sem er alveg mögnuð en það eru „Lycaenid“ fiðrildin. Þessi fiðrildi eiga í samlífi við maura og þau eru al- veg ótrúlega heillandi. Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið) Fös 23/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas Síðustu sýningar BLAM (Stóra sviðið) Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar! Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið) Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00 Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012 Ferjan (Litla sviðið) Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Fim 12/6 kl. 20:00 Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k Fös 13/6 kl. 20:00 Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið) Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson Dagbók Jazzsöngvarans – Síðustu sýningar VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR Góð samskipti milli þín og barna þinna er besta leiðin til að vernda þau gegn kynferðislegu ofbeldi! 66 menning Helgin 23.-25. maí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.