Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 39
sumaríslendingar
Upplifið sól og sumaryl með ekta rjómaís
með kókos, ástaraldin, mangó og súkkUlaðidropum
Sýning helguð
Michel Butor
Sýning á bókverkum Michels Butor og
tólf listamanna verður opnuð í Þjóðar-
bókhlöðu á Listahátíð í Reykjavík á
mánudaginn, 26. maí klukkan 16.
Michel Butor er sagður einn af
fremstu höfundum hóps sem umbylti
skáldsögunni í Frakklandi um 1960
undir merkjum nýju skáldsögunnar
(„nouveau roman“). Butor hætti
að skrifa skáldsögur á sjöunda
áratugnum. Síðan hefur hann skrifað
mjög mikið af ritgerðum, ljóðum,
ferðasögum og alls kyns tilrauna-
textum. Áratugum saman hefur hann
einbeitt sér að textum fyrir mynd-
listarbókverk, hefur gert fjölda slíkra
verka með afar mörgum myndlistar-
mönnum og haldið fyrirlestra um
bókverk víða.
Sýningarstjóri er Bernard Alligand
sem hefur valið á sýninguna bókverk
tólf listamanna sem hafa unnið með
Michel Butor. Frumkvæði að verk-
efninu á Sigurður Pálsson skáld sem
hefur jafnframt unnið bókverk með
Bernard Alligand. Þeir Sigurður og
Alligand sýndu fyrsta sameiginlega
bókverk sitt í Þjóðarbókhlöðunni árið
2007. Sýningin stendur til 29. ágúst.
Við opnunina flytja ávörp Marc
Bouteiller, sendiherra Frakklands,
Sigurður Pálsson og Michel Butor.
Tónlistarhópurinn KÚ-
BUS vakti athygli þegar
hann lék Kvartett um
endalok tímans fyrir fullu
húsi í Tjarnarbíói í haust.
Nú er komið að öðrum
viðburði hópsins í Iðnó
næstkomandi sunnudag,
klukkan 20, undir heit-
inu Gekk ég aleinn. Við-
burðurinn nú er stærri að
umfangi og hefur undir-
búningur tekið um eitt ár.
KÚBUS fékk til liðs við
sig Hjört Ingva Jóhanns-
son píanóleikara, tónskáld
og meðlim í hljómsveit-
inni Hjaltalín til að útsetja
og semja dagskrá byggða
á sönglögum eftir Karl
Ottó Runólfsson. Söngv-
ararnir Hildigunnur Ein-
arsdóttir mezzósópran
og Jón Svavar Jósefsson
baritón túlka lögin ásamt
kammerhóp og Friðgeir
Einarsson leikstjóri hefur
umsjón með sviðsetningu.
KÚBUS langar, að því
er fram kemur í tilkynn-
ingu, að varpa nýju ljósi á
lög Karls Ottós sem eru
samin í einstökum og
persónulegum stíl og búa
yfir sannri og djúpri róm-
antík þar sem dramað fer
alla leið. Mörg þeirra eru
þekkt og dáð en hópurinn
lagðist yfir allt höfundar-
verk Karls og gróf einnig
upp óþekkta og gleymda
gimsteina. - jh
Stórsveita-
maraþon í Hörpu
Stórsveit Reykjavíkur stendur fyrir
árlegu Stórsveitamaraþoni á veitinga-
staðnum Munnhörpunni í tónlistarhús-
inu Hörpu á sunnudaginn klukkan 13-16.
Að vanda býður Stórsveitin til sín
yngri og eldri stórsveitum landsins
og leikur hver hljómsveit í um það
bil 30 mínútur. Að þessu sinni koma
eftirfarandi stórsveitir fram: Stórsveit
Reykjavíkur, Stórsveit Skólahljómsveita
Reykjavíkurborgar, Stórsveit Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar, Stórsveit
Tónlistarskóla FÍH, Stórsveit Tónlistar-
skóla Garðabæjar og Stórsveit Öðlinga.
Stórsveitamaraþonið er nú haldið
í 18. sinn en þessi skemmtilega uppá-
koma er þáttur í uppeldisviðleitni
Stórsveitar Reykjavíkur. Dagskrá verður
fjölbreytt og skemmtileg og gera má
ráð fyrir að flytjendur verði um 120.
Sveitirnar eru á ólíkum getustigum og
aldri; allt frá börnum til eldri borgara.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á
meðan húsrúm leyfir, en áhorfendum
er frjálst að koma og fara á meðan
maraþonið stendur yfir.
Michel Butor.
TónlisT Dagskrá byggð á sönglögum karls OTTós runólfssOnar
Gekk ég aleinn Dagskrá KÚBUS á sunnudaginn
byggir á söng-
lögum eftir Karl
Ottó Runólfsson.
Helgin 23.-25. maí 2014 menning 39