Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 82
M ikilvægt er að sinna við-haldi og endurnýjun fasteigna, bæði fyrir
eigendur þeirra og notendur. Sé
ástand fasteigna slæmt eða nota-
gildi þeirra óhentugt, hefur það
áhrif verðmæti, ásýnd og fleira. Því
er mikilvægt að fasteignum sé vel
við haldið. Sérfræðingar hjá Verk-
sýn ehf. sinna ráðgjöf á sviði við-
halds og endurbóta á mannvirkj-
um og búa yfir áratuga reynslu af
störfum við mannvirkjagerð.
Að sögn Andra Más Reynisson-
ar byggingafræðings sinna sér-
fræðingar Verksýnar öllum þáttum
ráðgjafar við framkvæmdir innan-
húss jafnt sem utan; úttektum og
ástandsgreiningum, útboðum,
gerð teikninga, verksamninga og
svo umsjón og eftirliti með verk-
legum framkvæmdum. „Húsfélög
og fasteignafélög eru algengir við-
skiptavinir, en einnig fyrirtæki
og einstaklingar með fasteignir
í sinni umsjá. Við höfum sérhæft
okkur í viðhaldsmálum og viljum
laga okkar starfsemi að þörfum
viðskiptavina á þeim markaði,“
segir hann.
Algengt er að stjórnendur hús-
félaga leggi mikla vinnu í umsjón
og jafnvel eftirlit með framkvæmd-
um. Framkvæmdirnar eru í mörg-
um tilvikum umfangsmiklar og
flóknar. Þjónusta Verksýnar nær
yfir flesta þætti sem annars myndu
hafna á borðum stjórnarmanna í
húsfélögum.
Almennt er skynsamlegt og
ekki síður hagkvæmt fyrir eig-
endur fasteigna að huga tímanlega
að undirbúningi framkvæmda, til
dæmis á vetrarmánuðum fyrir
komandi framkvæmdasumur.
„Góður undirbúningur leiðir yfir-
leitt til vandaðri og betri fram-
kvæmdar fyrir eigendur og not-
endur fasteigna,“ segir Andri.
Ákveðnir þættir framkvæmda,
eins og til dæmis málun og múr-
vinna, eru háðir veðri. Andri seg-
ir hins vegar hægt að sinna ýmis
konar viðhaldsframkvæmdum yfir
vetrartímann, eins og til dæmis
klæðningum, glugga- og glerskipt-
um og fleiru. „Vetrarframkvæmd-
ir kalla á ákveðnar ráðstafanir en
vel er hægt að nýta annan tíma en
hásumarið til framkvæmda. Það
er einnig hagkvæmt fyrir eigend-
ur og verktaka að lengja fram-
kvæmdatímann ef kostur er á því.“
KYNNING
6 viðhald húsa Helgin 23.-25. maí 2014
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Hljóðeinangrandi
Auðveld í þrifum
Ofnæmisprófuð
Slitsterk
TeppiTeppi
- á stigaganginn
Sérhæfð ráðgjöf um viðhalds-
framkvæmdir hjá Verksýn
Hjá Verksýn er
veitt ráðgjöf
um viðhald og
endurbætur á
mannvirkjum.
Sérfræðingar
fyrirtækisins
búa yfir ára-
tuga reynslu
af mann-
virkjagerð.
Framkvæmdin
verður betri
með góðum
undirbúningi.
N ú eru ábyrgir og fram-sýnir húseigendur farnir að huga að eignum sínum
og gaumgæfa hvað þurfi og megi
fyrir þær gera í vor og sumar.
Stöðugt og reglubundið viðhald er
bæði skynsamlegt og nauðsynlegt
til að viðhalda og auka verðmæti
fasteigna. Það borgar sig og er
eigendum til mikilla hagsbóta að
halda eignum sínum vel við og
endurbæta þær í takt við tímann
og nýjar og breyttar þarfir og kröf-
ur. Viðhaldsfé er ekki á glæ kastað
og það skilar sér oftast margfalt til
baka. Um það er reynslan ólygin.
Um þessar mundir er viðhalds-
iðnaðurinn að vakna til lífsins og
horfa til verka og þar er mikið
undir.
Hús eru forgengileg og ganga
úr sér hvað sem tautar og raular
óháð efnahagsástandi og fjárhag
eigenda á hverjum tíma. Ef hús
fá ekki það viðhald sem þarf og
nauðsynlegar endurbætur í takt þá
nagar tímans tönn þau miskunnar-
laust og verðmæti þeirra og nota-
gildi rýrnar. Það kemur eigendum
í koll ef þeir sinna ekki brýnu
viðhaldi. Þegar um einbýlishús
er að ræða, er viðhald að mestu
einkamál eiganda þess. Öðru máli
gengir um fjöleignarhús. Þar eru
eigendur sameiginlega ábyrgir.
Viðhald húseigna er mikið þjóð-
þrifa- og almannaheillamál þar
sem hagsmunir allra fara saman.
Viðhald er nauðsynlegt til að verð-
mæti fasteigna haldist og aukist.
Það er eigendum til hagsbóta og
líka veðhöfum og tryggingarfélög-
um. Viðhald skapar vinnu, tæki-
færi og verðmæti. Þegar fé skortir
til stórra hluta er einmitt ástæða
og lag til að hlúa að því sem fólk á
fyrir og búa í haginn.
Á viðhaldsviðinu getur vel orðið
mikil athafnasemi öllum til hags
og heilla; húseigendum, við-
haldsgeiranum, iðnaðarmönnum,
verktökum og samfélaginu öllu.
Viðhalds- og byggingariðnaðurinn
er risi í álögum, nú í dvergslíki,
og má ekki sofa lengur og koðna
niður og staðna. Með öllum ráðum
og samstilltu átaki þarf að rjúfa
þá stöðnun og þann doða sem ríkt
hefur. Hér eru fín hjól sem liðka
má og hafa burði og möguleika til
að snúast og virka og það vel.
Í rússíbanareiðinni og þensl-
unni miklu var þrautin þyngri að
fá verktaka í viðhaldsverk. Grasið
þótti grænna í nýbyggingum og
viðhald húsa sat á hakanum. Nú er
öldin önnur. Það er ljós í myrkr-
inu fyrir húseigendur að geta nú
valið úr verktökum og náð góðum
samningum. Stjórnvöld hafa líka
gert ráðstafanir til hvetja til við-
halds og að örva viðhaldsgeirann
með endurgreiðslu virðisauka-
skatts (100% af vinnu á byggingar-
stað. Að því leyti árar vel til við-
halds.
Verktakar eru því miður margir
veikburða eftir áföll og hremm-
ingar. Það skapar áhættu og
óvissu fyrir viðsemjendur þeirra
og kallar á vönduð vinnubrögð af
hálfu húsfélaga. Þá fylgir sá bögg-
ull skammrifi að eigendur eiga
yfirleitt ekki digra viðhaldssjóði
né aðrar feitar fúlgur og allra síst á
tímum kaldakols. Lánamöguleikar
eru ekki samir og fyrrum þegar
gullið flóði. Peninga skortir víða til
viðhalds og á því stranda mörg góð
áform. Ef þeir eru ekki fyrir hendi
er tómt mál að tala um viðhald þótt
þörf sé brýn og aðstæður að ýmsu
öðru leyti ákjósanlegar.
Þessu næst nokkur orð og ráð
til eigenda og húsfélaga í fram-
kvæmdaham. Hvernig skal að
málum standa og hvað er til ráða
og hvað er að varast.
Góður undirbúningur viðhalds-
framkvæmda í hvívetna er lykilat-
riði og mjög mikilvægur og einnig
það að velja góðan og ábyrgan ráð-
gjafa og verktaka. Of mörg dæmi
eru um viðhaldsframkvæmdir
sem farið hafa illa af stað og endað
illa og í flestum tilfellum er um að
kenna slælegum undirbúningi og
lélegri ráðgjöf og einnig röngu vali
á verktökum. Það skammgóður
vermir að spara á undirbúnings-
stiginu. Þar er grunnurinn lagður
og ef hann er veikur þá er ekki við
góðu að búast.
Ekki er til nein einhlít regla
um það. Verk eru mismunandi og
aðstæður sömuleiðis. Í fjöleignar-
húsum þarf að liggja fyrir lögleg
ákvörðun.
Þegar hún liggur fyrir, er rétt
að fá hlutlausan sérfræðing til
að meta ástand hússins og við-
gerðarþörf. Í því ástandsmati felst
yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt
sundurliðum verkliðum með áætl-
uðum magntölum. Húseigendur
eru hvattir til að snúa sér til tækni-
manna og fyrirtækja sem fram-
kvæma slíkt mat en framkvæma
þau ekki sjálfir eða fá fúskara til
þess.
Sé um minni verk að ræða er
hægt að óska eftir tilboðum frá
verktaka, byggðum á magntöl-
um og verklýsingu samkvæmt
ástandsmati. Við stærri verk eru
úttektaraðilar jafnan fegnir til að
fullgera útboðs- og verklýsingu og
standa að útboði.
Mikilvægt er fyrir eigendur að
gæta þess að viðurkenndir meist-
arar standi fyrir viðhaldsverkum
þar sem slík verk eru oft mjög
vandasöm. Þá er líka mikilvægt að
leitað sé til hæfra ráðgjafa.
Húseigendur skulu forðast eins
og heitan eldinn að eiga viðskipti
Hollráð til hús eigenda