Fréttatíminn - 23.05.2014, Page 24
– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
890 kr.pk.
Verð áður 1299 kr.pk.
Ísbland eitthvað fyrir alla,
16 stk.
31%
afsláttur
www.lyfja.is
Lægra verð
í Lyfju
w.lyfja.is
Nanogen
Hárvörur 20%
afsláttur
Gildir út maí
Auka hárvöxt, þykkja og gefa fyllingu.
Trefjar hylja skallabletti.
Aukin vellíðan og meira sjálfsöryggi
með góðri hárumhirðu.
Hann frelsar Búkollu sem hafði verið í haldi ógnarstórrar tröll-
skessu. Þegar hann er kominn á veg kemur skessan æðandi á eftir en
Búkolla er göldrótt og hjálpar Karlssyni að tefja fyrir henni með hjálp
hinna miklu frumkrafta eða elementa, eldinum, loftinu, vatninu og
loks jörðinni sjálfri sem steingerir tröllið að lokum. Lausnin er fundin.
Engin ræður við náttúruöflin. Karlsson kemst heim með Búkollu sína
og urðu karl og kerling því ósköp fegin.
Allir helstu teiknarar á öndverðri 20stu öld glímdu við að mynd-
lýsa Búkollu. Listamenn eins og Ásgrímur Jónsson taka til hendinni í
myndlýsingum þjóðsagna. En Strandamaðurinn
Tryggvi Magnússon var í raun stærsti íslenski
sérhæfði teiknarinn. Hann er í raun aðalfrum-
herjinn í merkingunni að hann verður fyrsti
atvinnuteiknarinn. Hann eins og Muggur kemst
til meginlands Evrópu og Bandaríkjanna og
smitast mjög af anda hinnar rómantísku stefnu
sem er andstæðan við raunsæið og veruleikann.
Rómantíkin fer innávið inn í lönd drauma
okkar bæði þá háleitu og hinna myrku. Tryggvi
myndskreytti mikið fyrir börn. Hann teiknaði
til dæmis Gagn og gaman og Jólin koma eftir
Jóhannes úr Kötlum og festir ímynd hinna ís-
lensku jólasveina í hugum okkar. Tryggvi lést
árið 1960 sextíu ára gamall. Síðan fer hópur
nýrrar kynslóðar til Kaupmannahafnar á milli-
stríðsárunum til að læra hagnýta grafík eins og
faggreinin var þá kölluð. Í þeim hópi var Halldór
Pétursson ásamt systur sinni Ágústu Péturs-
dóttur Snæland. Þau voru börn Péturs Hall-
dórssonar borgarstjóra og alþingismanns. Það
má nefna að hann var í einkatímum hjá Guð-
mundi Thorsteinsson (Muggi) á unglingsárum
sínum. Halldór fer líka til Bandaríkjanna eins
og Tryggvi. Halldór tekur við sem aðalteiknari
landsins næstu áratugi og sinnir myndskreyt-
ingu barnabóka á stórkostlegan hátt. Halldór
lést líka fyrir aldur fram árið 1977, 61 eins árs
gamall.
Endurútgáfa á úrvali á íslenskum þjóðsögum
úr safni Jóns Árnasonar nú á þessu herrans
ári 2014 minnir um margt á þetta tímabil frá
aldamótunum 1900 fram eftir 20stu öld. Það
er Útgáfufélagið Heimur sem gefur út. Freydís
Kristjánsdóttir var fengin til að myndlýsa. Það gerir hún sannarlega
á sinn hátt en samt með sama blæ og vormenn íslenskrar myndlista.
Þegar vel tekst til festast þessar ímyndir sérstaklega í hugarfylgsnum
barna. Á margan hátt finnur samtíminn fyrir nýrri rómantískri bylgju.
Við leitum innávið og vilji er fyrir hendi að yfirgefa efnishyggju og
leita eftir skilningi á dýpri verðmætum.
(17550 Goddur)
Guðmundur Oddur Magnússon
– Goddur –
prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands
Mt.
(17550 Freydís - hafa þessa mynd stærsta)
(17550 Tryggvi)
(17550 Ásgrímur)
(17550 Halldór)
(17550 Muggur)
Tryggvi Magnússon (Óvíst
ártal): Forsíða á barnabók
um Búkollu.
Ásgrímur Jóns-
son (1949): ...
sér hann hvar
kemur ógnar-
stór tröllskessa
á eftir sér og
önnur minni
með henni.
Halldór Pétursson (1949): Taktu hár
úr hala mínum og leggðu það á jörðina.
Legg ég á og mæli um að það verði að
svo stórri móðu að ekki komist yfir
nema fuglinn fljúgandi.
Muggur (1914):
Nautið drakk
undir eins upp alla
móðuna.
24 íslenskar þjóðsögur Helgin 23.-25. maí 2014