Fréttatíminn - 23.05.2014, Page 36
Arturo Vidal, Chile
Aldur: 27 ára.
Félag: Juventus (Ítalíu)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 46/18
Landsleikir/mörk: 53/8
Þessi tikkar í öll boxin. Hann tengir
saman vörn og sókn og þeysist
markteiga á milli í 90 mínútur. Það
er eitt að geta hlaupið en Vidal skilar
einhverju á báðum endum vallarins.
Hann er lunkinn spilari sem býr til sóknir
og færi en hann er líka hörku tæklari og
brýtur niður sóknir andstæðinganna á hinum
enda vallarins.
Arjen Robben, Hollandi
Aldur: 30 ára.
Félag: Bayern München (Þýskalandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 45/21
Landsleikir/mörk: 73/22
Robben er kannski ekki allra en það
getur enginn efast um hæfileika hans.
Hann dansar framhjá varnarmönn-
unum og lætur svo vaða með sínum
magnaða vinstri fæti. Til að strá salti
í sár andstæðingana lætur hann þetta
meira að segja virka auðvelt.
Oscar, Brasilíu
Aldur: 22 ára.
Félag: Chelsea (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 47/11
Landsleikir/mörk: 29/9
Brasilíumenn hafa ekki spilað alvöru
landsleik í lengri tíma af því þeir tóku
ekki þátt í undankeppni fyrir HM. Það
er því erfiðara að spá nákvæmlega fyrir
um byrjunarlið þeirra en margra annarra
þjóða. Nær öruggt má þó telja að Oscar
verði falið það hlutverk að tengja saman
miðju og sóknarlínu liðsins. Hann hefur alla
kosti sókndjarfs miðjumanns, hann er leikinn,
snöggur og hefur auga fyrir sendingum.
Angel di Maria, Argentínu
Aldur: 26 ára.
Félag: Real Madrid (Spáni)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 51/11
Landsleikir/mörk: 43/9
Hinn eldsnöggi og skemmtilegi
kantmaður Angel di Maria verður í
eldlínunni í Brasilíu. Í stað þess að
vera ætlað að leggja upp mörk fyrir
Ronaldo, eins og hann gerir hjá Real
Madrid, á hann að búa til færi fyrir Messi
og Agüero eða jafnvel Higuain eða Lavezzi
ef þeim fyrrnefndu eru mislagðir fætur. Di
Maria er athyglisverður leikmaður. Hann er
ekki með neina stjörnustæla heldur setur bara
undir sig hausinn og leikur leikinn.
Mesut Özil, Þýskalandi
Aldur: 25 ára.
Félag: Arsenal (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 39/7
Landsleikir/mörk: 53/17
Það er vandfundinn hæfileikarík-
ari knattspyrnumaður. Hann
fer framhjá varnarmönnum
eins og svigmaður, sér leiðir
fyrir sendingar í gegnum vörnina
sem enginn sér, leggur upp aragrúa af
mörkum og skorar eitt og eitt sjálfur. Stóra
spurningin er hvort hann verði í réttum takti þegar mótið
hefst eftir langt og erfitt tímabil á Englandi, þar sem Wenger
keyrði hann út í stað þess að hvíla á réttum augnablikum.
Steven Gerrard, Englandi
Aldur: 33 ára.
Félag: Liverpool (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 36/14
Landsleikir/mörk: 109/21
Gerrard átti frábært tímabil í nýrri stöðu
sem aftasti miðjumaður hjá Liverpool.
Eftir að hafa látið Englandsmeistara-
titilinn renna sér úr greipum þarf hann
að komast yfir vonbrigðin og leiða sína
menn áfram. Nú er hann gamli maðurinn í
liðinu en eigi liðið að eiga möguleika á skilja
annað hvort Úrugvæ eða Ítalíu eftir í riðlinum
þarf hann að leika eins og ungur Gerrard;
vítateiganna á milli með tilheyrandi látum.
Eden Hazard, Belgíu
Aldur: 23 ára.
Félag: Chelsea (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 49/17
Landsleikir/mörk: 43/5
Belgíska liðið er ótrúlega spennandi og ljóst að margra
ára uppbyggingarstarf er farið að skila sér. Hazard er
stjarnan í liðinu, hann er tían sem á að láta áhorfendur
rísa úr sætum þegar hann fer af stað með boltann.
Hazard hefur verið í hálfgerðu stríði við Mourinho hjá
Chelsea sem vill að hann vinni meira fyrir liðið. Í þessu liði
þarf Hazard ekki að hugsa eins mikið um varnarvinnuna. Nú
þarf hann að skila mörkum og stoðsendingum.
Andrés Iniesta, Spáni
Aldur: 30 ára.
Félag: Barcelona (Spáni)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 52/3
Landsleikir/mörk: 95/10
Það vantar ekki miðjumenn í lið
Spánverja sem eiga titil að verja.
Iniesta hefur stundum verið kallaður
„vanmetnasti leikmaður heims“ vegna
þess að hann fær ekki jafnmikla athygli
og margir félaga hans í Barcelona og
spænska landsliðinu. Hann er með afburða
leikskilning, frábæra tækni og þótt hann
skori ekki mikið þá hefur hann einstakt lag á að
dúkka upp á réttum augnablikum.
Paul Pogba, Frakklandi
Aldur: 21 árs.
Félag: Juventus (Ítalíu)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 49/9
Landsleikir/mörk: 8/1
Hefur verið líkt við Patrick Vieira, landa
sinn. Það er ekki leiðum að líkjast því
Vieira þótti einn besti miðjumaður
sinnar kynslóðar. Vieira segir að
Pogba sé hæfileikaríkari leikmaður en
hann hafi verið og það er kannski ekki
fjarri lagi; Pogba er svipað byggður og
hann, sterkur og með langa leggi, en er að
auki mun sókndjarfari en Vieira var nokkurn
tímann. Hann er líka hörku skotmaður.
Magnaðir á miðjunni
Þrjár vikur eru þangað til flautað verður til leiks í
fyrsta leik á HM í knattspyrnu í Brasilíu. Fréttatíminn
tekur hér forskot á sæluna og skoðar tíu miðjumenn
sem eiga eftir að láta að sér kveða á mótinu.
Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty
Yaya Toure,
Fílabeinsströndinni
Aldur: 31 árs.
Félag: Manchester City (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 49/24
Landsleikir/mörk: 82/16
Yaya Toure var langbesti miðju-
maður ensku Úrvalsdeildarinnar í
vetur og hefur verið einn af þeim
bestu í sinni stöðu í heiminum um
árabil. Ótrúleg líkamsbygging gerir
það að verkum að hann geysist
fram og aftur um völlinn eins
og eimreið og tæknin er ótrúleg
miðað við svo stóran mann. Í vetur
kom svo í ljós að hann er frábær í
aukaspyrnum í ofanálag.
36 fótbolti Helgin 23.-25. maí 2014