Fréttatíminn - 23.05.2014, Side 44
44 útivist og hlaup Helgin 23.-25. maí 2014
Gerður úr glænýjum lífrænum
rauðrófum. Þessi safi er með
sterku jarðarbragði en ískaldur
verður hann sætur. Rauðrófusafi
er einstaklega öflugur til að bæta
heilsu og líðan fólks. Lækkar blóð-
þrýsting, eykur kraft og orku, virkar
vel fyrir kynhvötina og getur hægt
á elliglöpum. Rannsóknir sýna að
keppnisfólk sem notar rauðrófusafa
fyrir keppni eru oft dugmeiri og ná
lengra, aukin súrefnisupptaka er oft
ástæða þess.
Múltí sport er blanda vítamína og steinefna fyrir alla
sem njóta þess að hreyfa sig. Náttúrulegur orkugjafi,
sem eykur orku og eflir súrefnisupptöku en það er
eitt það mikilvægasta til að ná árangri og gefa okkur
aukinn kraft. Skammturinn dugar í 1-2 mánuði. Múltí
sport kemur okkur lengra.
Arctic root extra sterkt er fyrsta burnirótin á markað-
inum og er framleidd í grænmetishylkjum svo að upp-
takan í líkamanum verði betri. Þegar það vantar viljann
til að koma sér af stað í göngutúrinn, ræktina, sundið,
golfið eða eitthvað sem þér þykir skemmtilegt, þá er
Arctic Root extra sterkt rétta bætiefnið. Það virkar
innan tveggja tíma frá inntöku, eykur einbeitingu,
frumkvæði, lífsgleði og minnkar streitu.
100% náttúrulegt rauðrófu „extrakt“ fyrir alla sem
vilja viðhalda góðri heilsu. Rauðrófan eykur blóðflæði,
súrefnisupptöku, snerpu, orku, úthald og fitubrennslu
og er því sérlega áhrifarík fyrir íþróttafólk. Notkun:
2 hylki á dag með mat. Beetroot fæst í flestum apó-
tekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Nánari upplýsingar á: www.gengurvel.is
Biotta rauðrófusafi
nýtist betur í líkamanum
Múltí sport orka
í útivistina
Arctic Root kemur
þér í gang
Ofurfæða
í hylkum
Mikið framboð er af alls kyns bætiefnum og ofurfæði sem sögð eru bæta líkama og sál.
Bætiefni og ofurfæða fyrir útivistina
KYNNING
M argt bendir til þess að hollara sé að hreyfa sig úti en inni. Þegar sólin
skín fáum við D-vítamín í kroppinn
og svefninn verður betri sem hefur
margvísleg góð áhrif á heilsuna. Þá
mælist minna af streituhormóninu
kortisól eftir hreyfingu utandyra
en inni.
Rannsókn sem gerð var fyrir
þremur árum af vísindamönnum
hjá Peninsula College of Medic-
ine and Dentistry sýndi að andleg
heilsa batnar til muna við það að
stunda hreyfingu utandyra, sam-
anborið við innandyra. Æfingar úti
gefa meiri orku og minnka reiði og
þunglyndi.
Þegar við hlaupum, göngum og
hjólum úti á margs konar undirlagi
er álagið á vöðvana fjölbreytt en
ekki einhæft eins og þegar æft er
á upphitunartækjum í líkamsrækt-
arstöð. Það er líka hressandi að fá
á sig vindinn og regnið ef þannig
viðrar. Öll útivera gerir okkur gott
svo þó við séum ekki nema nokkr-
ar mínútur á dag úti að hreyfa okk-
ur skipta þær máli og gera okkur
hressari.
Í samvinnu við
Félag íslenskra
fótaaðgerðafræðinga
Hvert sem leið þín liggur
Margnota hlífðarhúð
Með sjálflímandi yfirborði.
Hægt að sníða eftir þörfum,
þvo og nota aftur og aftur.
Klædd tábergshlíf
Mjúkur gelpúði hlífir
táberginu gegn álagi
og núningi.
Þunnar til hliðanna
en þykkari fremst til að
taka við álagi.
Gelhlíf fyrir hæl
Frábær margnota vörn
gegn hælsæri. Mjúkur
gelpúði hlífir hæl og hásin.
Liðhlíf fyrir litlutá
Liggur þétt við fótinn
og hlífir gegn núningi
frá skófatnaði.
Gelhettur fyrir tær
Heelen er stór íslensk vörulína sem býður uppá einfaldar lausnir við algengum
fótavandamálum. Heelen vörurnar má allar þvo og nota aftur og aftur, þær taka
ekki óþarfa pláss í skófatnaði, eru afar einfaldar í notkun og koma með góðum
íslenskum leiðbeiningum.
Ekki þjást að óþörfu,
taktu Heelen með í ferðalagið
og njóttu dagsins.
Fæst í apótekum og Flexor stoðtækjaverslun.
Undirbúðu fæturna fyrir gönguna!
Betra að hreyfa sig
úti en inni
Það er að margra mati uppskrift að
frábæru sumarkvöldi í Reykjavík að
taka þátt í Miðnæturhlaupi Suzuki.
Í fyrra tóku um 2.000 manns þátt
í hlaupinu en samkvæmt viðhorfs-
könnun sem gerð var að hlaupi loknu
myndu 96% þátttakenda mæla með
hlaupinu við vini og ættingja. Erlendum
þátttakendum hefur fjölgað ár frá
ári og eru nú þegar á fjórða hundrað
erlendra gesta skráðir. Hlaupið fer
fram í 22. sinn kvöldið fyrir Jónsmessu,
mánudaginn 23. júní.
Miðnæturhlaup Suzuki hefst og endar í
Laugardalnum og að því loknu er öllum
þátttakendum boðið í Laugardals-
laugina. Þrjár vegalengdir eru í boði;
hálfmaraþon, 10 km og 5 km. Leiðin í
hálfu maraþoni liggur um Elliðaárdal
og Víðidal en einnig er hlaupið hjá
Rauðavatni og gegnum golfvöllinn
í Grafarholti. 10 km hlauparar fara
hring í Elliðaárdalnum og 5 km hlaupa
í Laugardalnum. Að mestu er hlaupið á
stígum en allar hlaupaleiðir eru mældar
samkvæmt alþjóðlegum reglum.
Fyrstu þrír hlauparar í hverri vega-
lengd fá verðlaun auk þess sem fyrsti
hlaupari í mark í hverjum aldurs-
flokki er verðlaunaður. Sigurvegarar í
hverri vegalengd fá einnig glæsilegan
Camelback drykkjarbakpoka og brúsa
ásamt gjafabréfi í Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka. Allir þátttakendur í Mið-
næturhlaupi Suzuki fá auk þess viku-
passa í líkamsrækt í Laugardalnum en
bæði World Class og Hreyfing heilsulind
bjóða þátttakendum frían aðgang gegn
Miðnæturhlaup Suzuki –
frábært sumarkvöld í Reykjavík
framvísun hlaupnúmers.
Miðnæturhlaup Suzuki er hluti af
Powerade Sumarhlaupunum en það er
mótaröð fimm hlaupa í Reykjavík þar
sem hægt er að safna stigum og vinna
til verðlauna. Nánari upplýsingar
um mótaröðina má finna á www.
marathon.is/powerade.
Skráning í Miðnæturhlaup Suzuki
er í fullum gangi á vefnum www.
marathon.is/midnaeturhlaup en
þar má einnig finna allar nánari
upplýsingar um hlaupið. Forskrán-
ingu á netinu lýkur sunnudaginn
22. júní, einnig er hægt að skrá
sig á hlaupdag þar til hálftíma
fyrir hlaup en þá er þátttökugjald
hærra og eru því allir hvattir til að
forskrá sig.