Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 45

Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 45
útivist og hlaup 45Helgin 23.-25. maí 2014 Þ eir sem ætla sér að hlaupa maraþon ættu að stefna á New York maraþon því hlaupið er vægast sagt stórkost- leg upplifun frá upphafi til enda,“ segir Þórey Gylfadóttir, hlaupari hjá hlaupahópi Fjölnis í Grafar- vogi, sem tvisvar sinnum hefur hlaupið New York maraþon. Hlaupið fer fram 2. nóvember og í ár bjóða Bændaferðir í fyrsta sinn upp á hópferð í hlaupið. „New York maraþon er oft nefnt áhorfendamaraþon, enda eru mörg hundruð þúsund manns meðfram allri braut- inni að fylgjast með og hvetja hlauparana áfram með hrópum og dynjandi tónlist. „You can do it“ eða „You are looking good“ heyrir maður gjarnan frá fólki sem horfir með gleði og aðdáun á okkur hlauparana,“ segir Þórey. Hlaupaleiðin, 42,2 km, liggur um öll fimm hverfi New York borgar. Frá Staten Island um Brooklyn, yfir í Queens, inn á Manhattan og þaðan yfir í Bronx og aftur inn á Manhattan, í Harlem áður en hlaupið endar í Central Park. „Það er ævintýri líkast að hlaupa í New York og upplifa hversu ólík hverfin eru. Það var sérkennilegt að fara úr Brooklyn þar sem íbúar fagna hlaupurum með gleðilátum og hlaupa inn í hverfi strangtrúaðra gyðinga, þar sem allt féll skyndi- lega í dúnalogn því gyðingarnir stóðu hljóðir og horfðu á. Kon- urnar í kjólum með hárkollur og karlarnir í svörtum frökkum og virtist fátt um finnast þó gatan fylltist af rúmlega 50.000 hlaup- urum. Það var einnig magnað að nálgast Manhattan og heyra óminn í áhorfendum sem voru meðfram First Avenue. Að enda svo í Central Park var topppur- inn.“ Bæði fyrir byrjendur og lengra komna Í New York maraþoninu er hlaupið heilt maraþon, 42,2 kíló- metrar, og hentar það bæði þeim sem hlaupa hratt og ætla sér að slá persónuleg met, sem og þeim sem hlaupa eftir hjartanu og eru ekki með hugann við tímann en Þórey segir að byrjendur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að vera stoppaðir af því brautin er KYNNING Hlaup um öll hverfi New York borgar New York maraþonið er af mörgum talið skemmtilegasta maraþon í heimi. Hlaupið hefst á Staten Island og endar í Central Park. Þórey Gylfadóttir hefur tvisvar sinnum tekið þátt og segir það algjörlega frábært að upplifa stórborgina á hlaupum. Bændaferðir eru umboðsaðilar fyrir World Marathon Majors á Íslandi. New York maraþonið er eitt af þeim hlaupum. Hinar borgirnar eru  Tókýó  London  Berlín  Chicago  Boston Margir hlauparar hafa það að mark- miði að safna þessum hlaupum. Þórey Gylfadóttir með hendur á lofti í New York maraþoninu. „Það er ævintýri líkast að hlaupa í New York og upplifa hversu ólík hverfin eru,“ segir hún. opin í átta klukkustundir frá því hlaupið hefst. Bændaferðir umboðsaðilar New York maraþons á Íslandi Erfitt getur reynst fyrir almenning að komast að í svo vinsælu hlaupi eins og New York maraþonið er. Öruggasta leiðin er að bóka hjá umboðskrifstofum sem fá rás- númerum úthlutað sem einungis eru ætluð til sölu í viðkomandi landi. Þannig er tryggt að til leiks komi hlauparar hvaðanæva að úr heiminum. Starfsfólk Bændaferða hefur margra ára reynslu af skipulagn- ingu hópferða í hlaup um allan heim. Í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á hópferð í New York maraþonið. Hópurinn leggur af stað frá Keflavík föstudaginn 31. október og kemur til baka að morgni dags miðvikudaginn 5. nóvember. Gist verður á Comfort Inn Manhattan hótelinu en þaðan er aðeins nokkurra mínútna gang- ur að helstu kennileitum borgar- innar, eins og Times Square, Empire State Building, Madison Square Garden og Rockefeller Center. Fararstjóri verður Matt- hildur Hermannsdóttir. Nánari upplýsingar um ferðina má nálgast á vefnum www. baendaferdir.is. Yfirdýnur Starlux springdýnurSvampdýnur STARLUX OG MEDILINE HEILSURÚM Stærðir: 80 x 200 cm 90 x 200 cm 100 x 200 cm 120 x 200 cm 140 x 200 cm 160 x 200 cm 180 x 200 cm Dýnur og púðar sniðnir eftir máli eða sniðum. Með eða án áklæðis. Mikið úrval áklæða Dýnudagar 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur Eggjabakkadýnur mýkja og verma rúmið, þykktir 4-6 cm. Tilvaldar í sumarhúsið, ferðabílinn og tjaldvagninn 30% afsláttur Mikið úrval af svefnstólum og sófum í stöðluðum stærðum eða skv. máli 20-40% afsláttur Dýnudagarstanda til lok júní.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.