Fréttatíminn - 23.05.2014, Side 50
50 matur & vín Helgin 23.-25. maí 2014
vín vikunnar
Bordeaux rauður
Frakkland er vagga vínmenningarinnar og allir víngerðarmenn með sjálfsvirðingu miða vín sín við það besta þaðan. En það fer létt með að æra
óstöðugan að ætla að skilja víngerð blessaðra Frakkanna. Það eru ótal héruð og undirhéruð, mismunandi uppskerur svo ekki sé talað
um fjölda framleiðandanna sem langflestir eru með einhvern rosa flottan kastala á miðanum. Bordeaux er engin undantekning.
Bordeaux býr að frábærum jarðvegi og afar heppilegu loftslagi og þar eru ræktuð mörg af bestu vínum veraldar en
líka aragrúi af meðalvínum og örugglega fullt af ekkert sérstökum vínum.
Þar er talað um vín ræktuð á „hægri bakkanum“ og „vinstri bakkanum“ en
þó ekki á bakka sömu árinnar og svo er það svæðið á milli ánna tveggja,
Dordogne and Garonne, auk svæðisins sem er eitt af aðalsvæðunum sunnan
við Gironde sem er ós ánna tveggja. Einmitt á því svæði er Medoc héraðið
þar sem framleidd eru mörg frábær vín eins og Château Margaux og Châ-
teau Mouton Rothschild sem koma frá svæði sunnarlega í Medochéraðinu
sem kallast Haut-Medoc. Sagt er að á þessum hluta Medochéraðsins séu
framleidd fleiri frábær vín á hvern hektara en annars staðar í heiminum.
Vín vikunnar er ágætis fulltrúi Haut-Medoc svæðisins þó það teljist ekki til
dýrari og frægari vína svæðisins. Það hjálpar eflaust að 2010 var gott ár í Bordeaux. Bordeaux-blöndur eru
yfirleitt bragðmikil vín með dökkum ávexti og sólberjum og frekar miklum tannínum sem þurfa tíma til að mildast. Það
lýsir þessu víni ágætlega. Þó er það í léttari kantinum auk þess sem það er smá eik í því. Gott með fitumeira kjöti, sérstaklega ef það
er grillað eins og lamba prime með fiturönd.Chateau Hanteillan
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Bordeaux blanda
Uppruni: Frakkland, 2010
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.698
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Klassískir kokteilar
Það var fyrst á bannárunum í Bandaríkjunum, í kringum
1920-30, sem kokteillinn fór virkilega á flug. Þá neyddust
barþjónar til að finna upp leiðir til að gera nánast
ódrekkanlegt bruggið drykkjarhæft og helst ljúffengt
til að halda viðskiptavinum ánægðum. Blöndur þessar
reyndust svo vinsælar að þær lifa góðu lífi enn í dag og
hafa borist um heim allan. Hér eru nokkrir klassískir og
góðir sem vel þess virði er að prófa.
Mint Julep
Drykkurinn á rætur sínar að rekja til
suðurríkja Bandaríkjanna þar sem eig-
endur plantekranna sátu á veröndinni og
sötruðu hann bróðurpart dagsins.
1-2 msk. af sykursírópi
15 myntulauf
Mulinn ís eða ískurl
6 cl Bourbon viskí (Jack Daniel’s)
Setjið myntulaufin í glasið og bætið
sykursírópinu við. Merjið varlega,
það er líka ágætt að nudda myntuna
létt í höndunum áður
en hún fer í glasið til
að losa um olíurnar.
Mikilvægt er að fara
varlega með myntuna
og alls ekki að merja
hana mikið. Myntan
er viðkvæm og verður
bitur ef hún er of mikið marin. Kúf-
fyllið glasið af ískurli og hellið vel af
bourbon yfir ísinn. Gott er að hræra
létt upp í drykknum, annað hvort með
röri eða skeið. Þannig blandast sírópið
og myntan saman við bourbonið svo úr
verður frábær blanda.
Mojito
Mojitoinn er með frægari útflutnings-
vörum Kúbu en
dregur þó nafn sitt
af afríska orðinu
mojo sem þýðir
eitthvað á þá leið að
vera tekinn töfrataki.
4 mintulauf
1 teskeið sykursíróp
Safi úr heilli ferskri límónu
6 cl ljóst romm
Ísmolar
Sódavatn
Límónubátur til skreytingar
Blandið saman myntulaufunum, sykur-
sírópinu og límónusafanum í hátt glas.
Merjið myntulaufin
þannig að olían í þeim
losnar úr læðingi og
blandast við sírópið og
límónusafann. Passið að
merja ekki of mikið því
þá verður myntan bitur
á bragðið. Fyllið glasið af klaka og hellið
síðan romminu yfir og hrærið vel. Fyllið
svo upp með sódavatninu og skreytið
með límónubáti og myntugrein.
Cosmopolitan
Þessi kokteill á rætur sínar að rekja til
San Francisco. Þar var hann vinsæll á
börum samkynhneigðra á áttunda ára-
tugnum.
4,5 cl vodka
3 cl appelsínulíkjör
3 cl trönuberjasafi
3 cl ferskur límónusafi
Ísmolar
Límónusneið til skreytingar
Hálffyllið kokteil-
hristara með ísmolum og
hellið vodkanu, líkjörnum,
trönuberjasafanum og
límónusafanum út í.
Hristið og síið svo í kælt
martiniglas og skreytið
með límónusneið á glasbrúninni.
Daiquiri
Þessi er algjör klassík og á uppruna
sinn á Kúbu, líkt og mojito. Hann dregur
nafn sitt af strönd einni á sunnanverðri
eyjunni. Það voru bandarískir námuverk-
fræðingar fluttu drykkinn yfir sundið
til heimalandsins og sagan segir að
drykkurinn hafi verið í miklu uppáhaldi
hjá JFK sjálfum.
6 cl ljóst romm
2 msk. ferskur límónusafi
1 tsk. einfalt sykursíróp
Ísmolar
Límónusneið til skreytingar
Setjið rommið, límónu-
safann og nóg af klaka
í hristara og hristið
vel og duglega. Síið
svo í kælt glas (helst á
fæti) og skreytið með
límónusneiðinni.
Trivento Char-
donnay Reserve
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: Argentína,
2013
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
Kr. 1.799
Ágætis Chardonnay
frá Mendoza í Arg-
entínu á góðu verði.
Ferskt og sýruríkt
með suðrænum
ávöxtum. Ekta fínt
á sólríku síðkvöldi
og passar vel með
fiskmeti hvers
konar, t.d. laxi með
vænum skammti af
hollandaise-sósu.
Ramon Roqueta
Reserva
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Blanda af
Tempranillo og Ca-
bernet Sauvignon
Uppruni: Spánn, 2008
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
Kr. 1.899
Spánverjarnir
eru hrifnir af því
að blanda saman
hirðþrúgu sinni,
Tempranillo, við
hina erki frönsku
Cabernet Sauvignon
.Þetta vín hefur
ágætis mýkt með
ávexti og vanillu í
bragði. Hér væri
ekki úr vegi að fá
sér góðan harðost
eins og Primadonnu
með.
Appassimento Originale
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Blanda af Merlot og Primitivo
Uppruni: Ítalía
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum: Kr. 6.599 3 lítrar
Í þessu víni hefur hluti þrúgnanna
fengið að þorna og þar með eykst
áfengis- og sykurmagnið í víninu.
Það er kröftugt og þétt og þú
finnur fyrir tannínunum og gott
að grilla heilmikið af rauðu kjöti
og bjóða vinum í veislu þegar þú
opnar kassann.
Cheddar ostar
verða varla betri
en þessir
Föstudagspizzan
Pizza sælkerans
er bökuð úr Kornax brauðhveitinu