Fréttatíminn - 23.05.2014, Page 54
54 heilsa Helgin 23.-25. maí 2014
KYNNING
KYNNING
F élag sjúkraþjálfara hefur um nokkurra ára skeið staðið að samfélagsverkefni í ýmsum
sveitarfélögum sem felur í sér að
kortleggja gönguleiðir þar sem
ekki er meira en 250–300 metrar á
milli bekkja. Þannig er stuðlað að
frekari hreyfingu í nærumhverfi
sem hentar eldri borgurum og
þeim sem lakir eru til gangs og
þeim gert kleift að fara út að ganga
og setjast niður á bekki með jöfnu
millibili.
Kristinn Magnússon
sjúkraþjálfari segir að
í Hafnarfirði hafi verk-
efnið verið unnið í sam-
vinnu sjúkraþjálfara
í Hafnarfirði, ásamt
Öldrunarráði Hafnar-
fjarðar, Félagi eldri
borgara í Hafnarfirði
og Framkvæmdasviði
Hafnarfjarðar. „Hópur-
inn hefur í samvinnu
kortlagt gönguleiðir
í nærumhverfi Hafnar-
fjarðar. Þessum gönguleiðum
verður veitt sérstök athygli
þegar kemur að snjóruðningi og
hálkuvörnum auk þess að kannað
verður hvort bæta þurfi lýsingu á
leiðunum. Með stuðningi félaga-
samtaka, fyrirtækja og Hafnar-
fjarðarbæjar hafa verið settir
niður 28 nýir bekkir og eru þá
ótaldir bekkir bæjarins sem hafa
verið færðir til svo verkefnið verði
sem glæsilegast,“ segir hann.
Áætlað er að þessum sérstöku
gönguleiðum verði fjölgað með ár-
unum. Leitað var til Iðnskólans í
Hafnarfirði um samstarf við hönn-
un bekkja sem hægt væri að nota
á svæðum eins og við Ástjörn og
Hvaleyrarvatn og tæki mið af um-
hverfinu. Það hefur það verið sett
inn í námskrá og verður áfram í
vinnslu á næstu önn.
Hafnarfjörður bætist
nú í hóp sveitarfélaga
sem hafa tekið þátt
í þessu verkefni en
gönguleiðir af þessu
tagi má einnig finna
í Garðabæ, Kópavogi
og Mosfellsbæ. Fyrir
norðan eru leiðir á
Akureyri, Húsavík og
Kópaskeri.
Kristinn segir að
ráðgert sé að fjölga
leiðum smám saman í
samvinnu við sveitarfélögin og
félög eldri borgara á hverjum
stað. „Félag sjúkraþjálfara hvetur
fólk til að kynna sér leiðirnar
sem eru í boði og hvetja fólk
að drífa sig út að ganga sér til
heilsubótar og láta það ekki aftra
sér þótt göngugetan sé takmörk-
uð. Það er stutt í næsta bekk!“
Kortleggja gönguleið-
ir fyrir eldri borgara
Félag sjúkraþjálfara hefur kortlagt gönguleiðir í nokkrum
sveitarfélögum þar sem stutt er á milli bekkja. Þetta hentar
eldri borgurum og öðrum sem eru lakir til gangs. Gönguleiðir
milli bekkja hafa nú verið skráðar í Hafnarfirði.
Kristinn Magnússon.
Femarelle
er fáanlegt
í apótekum,
heilsuverslunum
og í heilsuhillum
stórmarkaða.
Nánari upplýs-
ingar má nálgast
á icecare.is og á
Facebook-síðunni
Femarelle.
Femarelle er dásamlegt fyrir
konur á breytingaskeiði
Fermarelle er náttúruleg vara, unnin úr soja og vinnur á einkennum tíðahvarfa hjá
konum. Hitakóf, nætursviti, skapsveiflur og verkir í liðum og vöðvum eru algeng
einkenni tíðahvarfa. Virkni þess hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undan-
förnum 13 árum.
„Ég las um Femarelle og leist vel á að prófa
hormónalausa meðferð og hef tekið það inn
í nokkra mánuði og er búin að endurheimta
mitt fyrra líf,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir,
71 árs. „Mér hafði ekki liðið nógu vel og var
farið að finnast óþægilegt að vera mikið
innan um fólk. Mér fannst ekki gott að vera í
hávaða og hafði því einangrast félagslega,“
segir hún.
„Eftir að ég hafði tekið Fermarelle í sex
mánuði hætti ég að svitna eins og áður og
er núna í sama bolnum allan daginn og er
hætt að finna fyrir verkjum. Það besta er
að börnin mín og tengdabörn hafa orð á
því hvað ég sé orðin hress. Að auki hef ég
misst 11 kíló án þess að reyna
það sérstaklega.
Ástæðan er sú að mér
líður betur og ég get
hreyft mig óhindrað.
Ég er svo ánægð með
Femarelle hylkin að
ég mæli með þeim við
allar vinkonur
mínar.“
„Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta
vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í
blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni með
vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á
þeim tíma var að byrja á breytingaskeið-
inu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann
fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum,
líkamlegri vanlíðan og vaknaði oft upp á
nóttunni.“
Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle
inn í aðeins 10 daga hurfu öll einkenni
breytingaskeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan
svefn, finn ekki lengur fyrir hitakófum
eða fótaóeirð og líður mun betur á allan
hátt og er í góðu jafnvægi. Ég get
ekki ímyndað mér
hvernig mér liði í
dag ef ég hefði
ekki kynnst
þessu dásamlega
undraefni.“
Soffía Káradóttir.
A ntrópósófískir þerapistar og listamenn standa fyrir viku námskeiði með öllu
tilheyrandi í Skálholti dagana 6.-
12. júlí næstkomandi.
„Við viljum bjóða þeim sem
koma og dvelja hjá okkur í sumar
upp á bæði tíma og rúm til endur-
næringar fyrir líkama og sál hvort
sem viðkomandi hefur nýlega
stigið upp úr veikindum, erfiðum
aðstæðum í lífinu eða hefur ein-
faldlega áhuga á heilsusamlegu
og uppbyggjandi sumarfríi í fal-
legu og afslappandi umhverfi,“
segir Aðalheiður Jóhanna Ólafs-
dóttir, einn skipuleggjandi Heilsu-
vikunnar í Skálholti.
„Við Heilsuvikuna starfa handa-
og tónþerapistar, list- og músíkþe-
rapistar og eurythmyþerapistar.
Það má meðal annars geta þess
að frá Þýskalandi kemur Angelika
Jaschke, formaður alþjóðasam-
taka eurythmyþerapista (IKAM/
ForumHE). Hún kemur til með að
bjóða upp á einkatíma í eurythmy-
þerapíu. Auk þess kemur Sibylle
Bürgel músíkþerapisti frá Sviss
sem býður upp á bæði einkatíma
og kórleiðslu,“ segir Aðalheiður
enn fremur.
Hugmyndin að Heilsuvikunni
vaknaði fyrir rúmu ári í gegnum
vinnu við stofnun fagfélags fyr-
ir mannspekilækningar (e. ant-
hroposophical medicine) á Ís-
landi. Ákveðið var að bjóða upp
á vikudvöl byggða alfarið á antró-
pósófískum þerapíum og listum.
Þó nokkrir einstaklingar á Íslandi
hafa menntun í antrópósófískum
þerapíum og listgreinum. Flestir
þessara aðila starfa í dag við Wal-
dorfskólana, í Skaftholti og á Sól-
heimum.
Þessir einstaklingar ásamt
þerapistum frá Svíþjóð, Þýska-
landi og Sviss hafa nú sett saman
heila viku þar sem heildarramm-
inn er ró, lífrænt fæði og hrynj-
andi. Daglega fá allir gestir ein-
staklingsþerapíu að eigin vali og
mikið dekur. Dæmi um dekur-
meðferðir eru fótaböð, bakstrar
og vafningar. Einnig verður boðið
upp á hrynlist (eurythmy) fyrir
hópa og listrænt verkstæði verður
opið síðdegis þar sem hægt verð-
ur að fá handleiðslu við leirmótun
og málun.
Að sjálfsögðu hefst hver dagur
á ljúffengum morgunmat, göngu
um fallegt umhverfið með fræðslu
um jurtir og kennslu í að tálga í
birki. Í lok hvers dags er svo boð-
ið upp á samtöl og fyrirlestra um
næringu hjá dr. Philipp Busche
frá Þýskalandi. Síðast en ekki síst
er gestum boðið á hina þekktu
Skálholtstónleika.
Þeir sem hafa áhuga á nánari
upplýsingum er bent á heimasíðu
Heilsuvikunnar
www.healthweeks.is.
Heilsan í fyrirrúmi í sumar –
heil vika af dekri í Skálholti
Eva Ólöf Hjaltadóttir.
Fjöldi nýrra bekkja hafa verið settir upp í Hafnarfirði og aðrir hafa verið færðir til.
Þetta er hluti af samfélagsverkefni sjúkraþjálfara til að hvetja eldri borgara og aðra
sem eiga erfitt með gang til frekari hreyfingar.