Fréttatíminn - 23.05.2014, Page 85
Helgin 23.-25. maí 2014 viðhald húsa 9
RaftækjaúRval
15% afsláttur af raftækjum þegar þau eru
keypt með innréttingu.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 • Laugardaga kl. 11-15
ÞvottahúsBaðherbergi Sérsmíði Pottaskápar Allar útfærslur
friform.is
ElDHúSDaGaR
25% afSlÁttUR af ÖllUM ElDHúS-
INNRÉttINGUM Í MaÍ
vIð HÖNNUM oG tEIkNUM fyRIR þIG
Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu,
anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér
hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og
vönduð raftæki á vægu verði.
þItt ER valIð
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst
við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem
þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
fjÖlbREytt úRval af HURðUM, fRaMHlIðUM, klæðNINGUM oG EININGUM,
GEfa þÉR ENDalaUSa MÖGUlEIka Á að SEtja SaMaN þItt EIGIð RýMI.
25 % afSlÁttUR Í MaÍ
Sérkostnaður –
Sameiginlegur kostnaður
Eigandi skal sjá um og kosta
allt viðhald og allan rekstur á
séreign sinni, þ.m.t. á búnaði,
tækjum og lögnum hennar. Telst
slíkur kostnaður, hverju nafni sem
nefnist, sérkostnaður. Sameigin-
legur kostnaður er kostnaður sem
snertir sameign, sameiginlega
lóð, búnað og lagnir, svo og vatns-,
hita- og rafmagnskostnaður. Sam-
eiginlegur kostnaður er fólginn
i viðhaldi, viðgerðum, endurbót-
um, endurnýjunum, umhirðu og
rekstri á sameign, úti og inni. Það
er skilyrði þess að kostnaður teljist
sameiginlegur að ákvörðun hafi
verið tekin í samræmi við laga-
fyrirmæli.
Löglíkur að kostnaður
sé sameiginlegur
Það eru löglíkur á því að kostn-
aður í fjöleignarhúsi sér sameigin-
legur en ekki sérkostnaður. Sömu-
leiðis eru líkur á því að kostnaður
sameiginlegur öllum fremur en
sumum. Gildir hér líka að þurfi
menn að klóra sér í hausnum þá
bregst það varla að um sameigin-
legan kostnað allra sé að tefla.
Hlutfallsskipting er meginregla
Það er meginregla að sameigin-
legur kostnaður skiptist eftir hlut-
fallstölum. Jöfn kostnaðarskipting
í ákveðnum tilvikum felur í sér
undantekningu frá þeirri megin-
reglu. Ber að skýra megnregluna
rúmt en undatekningarreglurnar
þröngt. Eru alltaf yfirgnæfandi
löglíkur fyrir því að tilvik beri að
fella undir meginregluna en ekki
undantekninguna. Segja lögin
skýrt og skorinort að meginreglan
gildi nema ótvírætt sé að tilvik falli
undir undantekningarregluna um
jafna skiptingu.
Jöfn skipting er undantekning
Þessi kostnaður skiptist að jöfnu:
1. Óskipt bílastæði og aðkeyrslur.
2. Sameiginlegt þvottahús.
3. Lyftur. Viðhald og rekstur.
4. Dyrasími, sjónvarps- og út-
varpskerfi, póstkassar, nafn-
skilti o.fl. þ.h. ( jöfn afnot).
5. Rekstur og umhirða sameignar
og lóðar.
6. Hússtjórn og endurskoðun.
7. Afnotagjöld og félagagjöld.
Kostnaðarskipting
í fjöleignarhúsum
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
Þröng túlkun
Það ber að túlka þessar undan-
tekningar þröngt og ef minnsti vafi
er um það hvorum megin hryggjar
tilvik á heima þá ber skilyrðislaust
heimfæra það undir meginregluna
um hlutfallsskiptingu en ekki und-
antekningarregluna. Jöfn kostn-
aðarskipting byggist á sanngirnis-
sjónarmiðum. Það er hins vegar
illmögulegt að komast hjá því að
kostnaðarskiptingarreglur virðist
stundum óréttlátar og ósann-
gjarnar. Reglurnar byggja á því að
skiptingin sé sanngjörn í fleiri til-
vikum en hún er það ekki. Þessar
reglur eru að mestu ófrávíkjan-
legar þegar um íbúðarhúsnæði
og blandað húsnæði er að tefla.
Eigendum er almennt óheimilt að
semja um aðra skiptingu kostn-
aðar en lögin segja.