Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Síða 26

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Síða 26
urskostnaður mannvirkjanna sé tekinn með í reikninginn, athugað sé viðhald, mannahald við umsjón og stjórn mannvirkja, þar sem því er til að dreifa, kostnaður við rekstrarvörur o.s.frv. Þetta gildir að sjálfsögðu í misríkum rnæli, eftir jrví um hvaða tegund mannvirkja er að ræða. Viðhaldskostnaðurinn á olíumöl er t.d. allt ann- ar en á steinsteypu, sjálfvirkur búnaður í sam- bandi við veitukerfi getur stundum sparað mann eða menn, allt eru })etta atriði, sem koma þurfa mjög snemma til athugunar. Það er fyrst, eftir að slíkri frumathugun, sem hér hefur verið drepið á, er lokið, að raunveru- lega er unnt að taka ákvörðun um, hvort ráðast eigi í hina ráðgerðu framkvæmd. Þó er mikil vinna eftir, áður en framkvæmdin sjálf getur hafizt. Gera þarf fullnaðaruppdrætti og verk- lýsingu, þannig að í þessum tveim þáttum sé ákveðið, hvernig mannvirkið eigi að vera í hinni endanlegu gerð. Gera þarf skrá um efnisþörf, til að hægt sé að kaupa þá hluti, sem til mann- virkisins þarf, og gera ber nákvæma kostnaðar- áætlun. Tímaáætlun um framkvæmdina Þó er enn ógetið atriða, sem ekki mega gleym- ast í jjessu sambandi og nauðsynlegt er, að unnið sé að, áður en liafizt er handa um framkvæmd- ina sjálfa, og þau ekki síður mikilvæg en jjau, sem ég gat um áðan. En ]>að eru tímaáætlun um framkvæmdina og greiðslu- og fjáröflunaráætl- un. Fjármagnið er hvati alls jíess, er við ætlum að framkvæma. Peningalausir gerum við ekki neitt. Það verður aldrei brýnt nægilega fyrir mönnum, hversu mikilvægar jiessar fjáröflunar- og tímaáætlanir, sem tengjast verða saman, eru í raun, og ])að er allt of oft, sem látið er ráðast, hvernig Jsessu reiðir af í framkvæmdinni. Greiðslu- og fjáröflunaráætlun Fátt lield ég, að sé óþægilegra og ergilegra í sjálfu sér, en að lenda í peningahraki, þegar SVEITARSTJ ÓRNARMÁL framkvæmd er í miðjum klíðum og kemur að engum notum vegna peningaskorts, en hægt hefði verið að færast minna í fang og taka viðkomandi áfanga í notkun, ef hann hefði verið liæfilega stór, eða hugsað hefði verið fyrir j)ví í upphafi, í hvaða röð vinna ætti verkin. Raunverulega er j)að fyrst, jjcgar hingað er komið undirbúningi, að tímabært verður að taka ákvörðun um Jiað, hvernig síðan eigi að standa að framkvæmdinni sjálfri, hvort bjóða eigi verkið út, eða hvort sveitarfélagið vilji vinna verkið með eigin vinnuflokkum. Útboð — Verðbreytingar Útboðsformið hefur vissa kosti, m.a. þá, að hægt er j)á að fá samningsbundið verð fyrir verkið í heild, og j)ar með staðfestingu á ])ví, að kostn- aðaráætlun sú, sem gerð hefur verið um verkið, sé raunhæf. Við eigum að vísu við j>ann vanda að stríða í jæssu sambandi, sem er verðbólgan, sem alltaf Jjarf að reikna með, og breytir krónu- tölu allra áætlana, sem gerðar eru. En kostnað- aráætlunin verður að vera ])annig úr garði gerð, að hún sé miðuð við ákveðið verðlag, ákveðinn verðlagsgrundvöll, og })að er alveg sama að segja um tilboð samkvæmt samningi. Þar verður einn- ig að vera miðað við ákveðinn verðlagsgrund- völl, og við útboðsformið verður að setja reglur um ])að, hvernig fara eigi með breytingu á verði, ef eða Jjegar verðlag breytist. Tveir aðskildir þættir Ég vil í Jaessu sambandi benda á eitt atriði. Það rnundi oft valda minni erfiðleikum og leið- indum í sambandi við kostnaðaráætlanagerð og framkvæmdir, ef reynt væri nægilega að gera upp á milli þeirra tveggja þátta, sem aðallega geta valdið breytingum á verði verka. Annars vegar eru J)æi' breytingar, sem gerðar eru á verkgrund- vellinum sjálfum, eftir að kostnaðaráætlun er gerð og ákvörðun tekin um, að framkvæmd skuli hafin. Þá geta komið til atvik, sem aldrei

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.