Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Blaðsíða 30
að meta tafirnar til verðs, en án þeirra gæti þurft
að leita liðsinnis dómstóla til að ná rétti sínum.
Matið á því, itve marga daga verkið hefur raun-
verulega tafizt, getur hins vegar komið til kasta
dómstóla eða gerðardóms, ef um slíkt er samið.
í þessari grein eru líka ákvæði um rétt verk-
taka til að krefjast framlengingar á skilafresti,
hafi á verkinu verið gerðar breytingar, sem seinka
framkvæmdum, verkkaupi hefur ekki látið í té í
tæka tíð uppdrætti, efni, vinnu eða annað, sem
hann átti að lcggja verktaka til, eða óviðráðanleg
atvik tálma íramkvæmdum verulega. Óhagstæð
veðrátta telst sarnt ekki til óviðráðanlegra at-
vika, nema annað sé tekið fram í útboðsgögn-
um.
Vanefndir, úttekt og ábyrgð á verki
Almenn ákvæði eru í 25. og 26. grein um van-
efndir af beggja hálfu og hvernig að skuli farið,
ef slíkt hendir, og í 28. gr. eru reglur um úttekt.
„Verktaki tekur ábyrgð á verkinu í eitt ár, frá
því að hann skilaði því af sér.“ Þessi ákvæði 29.
greinar þýða, að verktaki á að bæta úr göllum,
sem fram kunna að koma á verkinu í heilt ár eft-
ir afhendingu þess, stafi þeir af því, að efni eða
vinna var lakari að gæðum en skylt var eftir
samningi. Komi gallar í ljós síðar, er ekki Jjar
með sagt, að verktakinn sé laus allra mála, hon-
um ber „að svara skaðabótum, ef gallarnir sann-
anlega stafa af svikum eða gáleysi hans sjálfs eða
starfsmanna hans,“ en um fyrningu slíkra galla
fer eftir ákvæðum laga um fyrningu skulda o. fl.
(nr. 14/1905).
' j)
Meðferð ágreiningsmála
í lokagreinum staðalsins eru ákvæði um reikn-
ingsskil og ágreiningsmál. Um reikningsskilin er
jtað m.a. að athuga, og rétt að undirstrika alveg
sérstaklega, að alltof oft veldur getuleysi verk-
kaupa til að standa í skilum á réttum tíma niikl-
um erfiðleikum fyrir verktakann. Þetta ætti ekki
að koma fyrir, ltafi verkkaupinn gert sér grein
fyrir því, hve mikið verkið muni kosta og aflað
sér J>ess fjár, sem til Jjarf. Hann hefur tekið á
sig verulegar skyklur með verksamningsgerðinni
um greiðslu tiltekinna fjárhæða á ákveðnum
tíma.
Ég hefi stiklað á stóru. Hægt hefði verið að
eyða mun lengri tíma í Jietta efni en til reiðu er.
Að lokum vil ég endurtaka þá ábendingu mína,
að nota staðalinn við verksamningagerð, hvort
sem verk eru boðin út eða ekki og livort sem
verkin eru stór eða smá; 10 Jms. kr. verksamn-
ingur við iðnaðarmann eða stórverktakasamn-
ingur upp á 20 millj. kr. eru jafnvel leystir með
staðlinum. Þarna standa margir hlutir, sem okk-
ur finnst ef til vill vera svo sjálfsagðir, að ekki
sé jrörf að minnast á Jrá, en geta samt sem áður
skipt verulegu máli, [icgar eitthvað bjátar á í
samstarfinu milli verktaka og verkkaupa.
Ég vona, að þessir þankar rnínir hafi orðið til
Jaess, að einhverjir áheyrenda minna geri sér
betri grein en áður fyrir þörfinni á að undirbúa
framkvæmdir nægilega vel, bæði tæknilega og
fjárhagslega.
SVEITARSTJÓRNARMÁL