Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Page 31

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Page 31
GUNNAR TORFASON, verkfræðingur: VERÐBREYTINGAR OG SUNDURLIÐUN VERKKOSTNAÐAR Við gerð kostnaðaráætlana, útreikning tilboða og samningu skilgreina, höfum við hjá verkfræði- stofunni Hagverk s.f., þráfaldlega rekið okkur á vöntun samræmingar við slíka vinnu. Eru í því sambandi fjölmargir þættir, sem endurskoðunar og endurbóta þyrftu við, og í framhaldi af liinu ágæta erindi Skúla Guðmunds- sonar langaði mig aðeins að drepa lítillega á tvö atriði, sem snerta útboð verklegra frarn- kvæmda og rekstur verksamnings. Eru það ann- ars vegar verðbreytingar og liins vegar sundur- liðun tilboða, en í staðlinum ÍST 30 eru engin ákvæði um þessi mál. Verðbreytingar Nauðsynlegt er, að í útboðsgögnum korni skýrt fram, eftir hvaða reglurn reikna skuli verðbreyt- ingar. Bæði er, að hér á landi eru verðbreytingar örar og því miður er nær eingöngu um verð- hækkanir að' ræða, og hins vegar er hér oft um viðkvæm mál að ræða, sem auðveldlega geta valdið miklum deilum, töfum og jafnvel mála- ferlum, ef ekki er tekinn af allur vafi strax í útboðsgögnum. Sérstaklega á þetta við, ef verk standa lengi yfir. Líklega er ekki aðalatriðið, hvaða aðferð er notuð við verðbótaútreikninga, og reyndar lík- legt, að ekki verði unnt að beita einni og sömu aðferðinni við allar tegundir verklegra fram- kværnda. Er það mjög mikilvægt, að aðferðin, sem fyrir valinu verður, sé afdráttarlaus og ein- föld í meðförum. Útreikningur verðbóta Allir, sem um útboð og tilboð hafa fjallað, kannast við hinar ýmsu aðferðir, sem beitt er. Nægir að nefna sem dæmi: L Samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar. 2. Samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar með jafnri (línulegri) hækkun innan hvers gildistímabils. 3. Skipting tilboðsupphæðar í liði t.d. akst- ur, vélavinna, sement o. s. frv., og eru hækkanir reiknaðar út frá þeirri hundraðs- lilutahækkun, sem verða kann á einstökum liðum á samningstímabilinu. 4. Verðuppbætur greiddar samkvæmt sannan- legum verðhækkunum á efni, vélum og vinnu á samningstímabilinu. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.