Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Qupperneq 32

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Qupperneq 32
Fleiri valkostir, bæÖi einfaldari og flóknari þekkjast, en nóg um það. Þótt hér á ráðstefnunni hafi mest verið rætt um jarðvinnu ýmiss konar, þurfa sveitarfélög einnig að byggja hús, svo sem skóla, félagsheim- ili o. 11, og er ég ekki síður með slík verk í huga í þessu spjalli mínu. Á undanförnum misserum hafa verðbreyting- ar verið svo sveiflukenndar og miklar, að okkur lijá Hagverk liefur reynzt sérstaklega erfitt að fylgjast með og endurnýja einingarverð okkar í húsbyggingum. Býst ég við, að fleiri hafi sömu sögu að segja. Mismunandi hækkanir á innlendum og er- lendum efnum, flóknar tilfærslur á launagi'eiðsl- um og launatengdum gjöldum og ennfremur breytingar á skattalögum, ásanit tímabundinni spennu á vinnumarkaðnum, hafa gert manni ill- mögulegt að fóta sig á hálum ísi verðbólgunnar. Eitthvað af auknum kostnaði hafa verktakar e.t.v. tekið á sig eða mætt með hagræðingarað- gerðum, en annað er að koma fram eða á eftir að koma fram. Mjög óljóst er einnig, hvort allar hækkanir á Reykjavíkursvæðinu hafa náð út í sveitarfélög- in, en líklega er það í mjög mismunandi mæli í hinum ýmsu landshlutum. Tillögur til úrbóta Ég vil benda hér á fjögur atriði, sem ef til vill gætu veitt bæði verkkaupa og verktaka rneira öryggi við verksamningagerð og við uppgjör verka: 1. Samræming þeirra aðferða, sem beitt er við útreikning verðbreytinga, og afdráttar- laus skýring á aðferðinni (aðferðunum). Mætti hugsa sér, að Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins eða Samband íslenzkra sveitarfélaga eða hugsanlega báð- ir þessir aðilar í sameiningu, gæfu út leið- beiningarrit um meðferð verðbreytinga. 2. Sundurliðun tilboða verði samræmd. Nán- ar verður rætt um þennan þátt hér á eftir. 3. Vísitala byggingarkostnaðar verði reiknuð og gefin út örar heldur en verið hefur, t.d. á tveggja mánaða fresti, eða jafnvel mán- aðarlega. 4. Gefin verði út skrá, t.d. mánaðarlega, yfir verð á helztu byggingarefnum ásamt helztu töxtum véla, verkamanna og iðnaðar- manna. Slík skrá má ekki vera of ítarleg, en líklegt, er, að komast mætti af með milli 20 og 30 einingarverð. Erlendis eru slíkar skrár oft birtar í fagtímaritum. Hér er ekki um slíkt að ræða, og væri því hugs- anlegt, að skráin birtist í Hagtíðindum, enda ekki óeðlilegt, að hún verði gerð af sömu aðilum og reikna út byggingarvísi- töluna, en þar er Hagstofan aðili að. Sundurliðun tilboða Stundum hefur verið sagt: „Því meiri sundur- liðun, Jjví lægri tilboð.“ Oft virðist mikill sann- leikur fólginn í Jressu, enda má búast við ná- kvæmar reiknuðum tilboðum, eftir Jiví sem sund- urliðun er meiri. Dæmi eru þó um Jiað, að auk- in sundurliðun virðist hafa haft þveröfug áhrif, Ji.e. valdið hærri tilboðsupphæðum. Ríkjandi venjur við sunduiliðun tilboðsupp- hæða virðast einkum hafa haft Jn'enns konar markmið: 1. Að vera leiðbeinandi við hlutagreiðslu til verktaka og ákvarðandi við magnuppgjör. 2. Að auðvelda og vera grundvöllur undir útreikninga á verðbótum til verktaka. 3. Handahófskennd skipting, sem engum til- gangi virðist Jijóna. Allar aðferðirnar hafa það sameiginlegt, að unnt er að koma við innbyrðis samanburði milli Jieirra tilboða, sem berast, og auk Jiess bera Jiau saman við kostnaðaráætlun verkkaupa, hafi lnin verið gerð og henni skipt á sama hátt. En yfirleitt hafa Jiær þann ókost, að niðurstöð- ur úr einstökum tilboðsliðum eru eingöngu not- hæfar til innbyrðis kostnaðarsamanburðar við Jiað mannvirki, sent fjallað er um hverju sinni, en ekki er unnt að flytja fengna reynslu, Ji.e. verð SVEITAItSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.