Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Blaðsíða 7
JÓN ÍSBERG, sýslumaður,
oddviti Blönduóshrepps:
BLÖNDUÓS-
KAUPTUN
100 ÁRA
Lög nr. 21 frá 15. október árið 1875, um lög-
gildingu verzlunarstaðar við Blönduós í Húna-
vatnssýslu kváðu svo á, að frá 1. janúar árið 1876
skyldi vera „löggiltur verzlunarstaður við Blöndu-
ós í Húnavatnssýslu. . .“. Frá sama tíma var leyft
að byggja þar sölubúðir og liafa þar fasta verzlun.
Aður höfðu Húnvetningar sótt verzlun til
Skagastrandar, Borðeyrar og Sauðárkróks. Yfir
Blöndu var að fara, og lentu menn þá oft í erfið-
leikum. Varð það m. a. röksemd fyrir löggildingu
verzlunarstaðarins.
Þannig var það og er enn, að Blönduós er fyrst
og fremst staður viðskipta og þjónustu. Héðan
hefur lítil útgerð verið stunduð, þó reru menn
til fiskjar allt fram til þess tíma, er fiskurinn
hvarf úr flóanum, en það var fyrir um aldar-
fjórðungi síðan.
Sjálfstætt hreppsfélag
Kauptúnið varð sérstakur lireppur árið 1914
(skipt úr Torfalækjarhreppi), og árið 1936 var
byggðin austan Blöndu sameinuð Blönduós-
hreppi (frá Engihlíðarhreppi). Þar ltafði kaup-
félagið hafið verzlunarrekstur árið 1895, og stuttu
síðar var gerður vísir að núverandi bryggju.
Vestan Blöndu er kauptúnið byggt úr landi
jarðarinnar Hjaltabakka, sem Jk'i var kirkjujörð.
Upp úr 1940 keypti hreppurinn allar lóðir af
ríkissjóði. Austan Blöndu var landið tekið eign-
arnámi af Enni, þegar kauptúnið var sameinað
í einn hrepp, svo nú eru engar eignarlóðir vestan
Blöndu og aðeins tvær byggingalóðir eignarlóðir
austan Blöndu.
Jöfn og stöðug þróun
Sýslumaður flutti til Blönduóss árið 1897 og
læknir sama ár. Kirkjan var flutt frá Hjaltabakka
til Blönduóss og vígð þar 13. janúar 1895 og
Kvennaskólinn fluttur árið 1901 frá Ytri-Ey.
Blanda var brúuð á árunum 1897 og 1898 og
brúin endurbyggð árin 1963 og 1964.
Fyrsti skráði íbúi Blönduóss var Thomas J.
Thomsen, og liggja jarðneskar leifar hans í
Hjaltabakkakirkjugarði og er leiðið það eina,
sem varðveitt hefur verið af kirkjugarðinum.
Árið 1920 voru íbúar 260, árið 1940 eru þeir 436,
árið 1960 eru þeir 597 og nú hinn 1. desember
1975 813. Það hefur því verið stöðug og jöfn
þróun.
Þjónustumiðstöð
Kauptúnið varð til af nauðsyn viðskipta, og
viðskipti og þjónustustörf hafa verið aðalstörf
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL