Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Síða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Síða 29
haldi, sumpart fyrir aðgerðir opinberra embætt- ismanna, og þegar hennar nýtur ekki lengur við, er hætt við, að sveitarfélögin þurfi að auka til muna fjárveitingar sínar til þessara mála. Samstarf við Æskulýðsráð ríkisins Lög um æskulýðsmál voru samþykkt árið 1970, og Æskulýðsráð rikisins (Æ.R.R.) fyrst kosið í desember sarna ár. Ráðið er þannig kos- ið, að menntamálaráðherra tilnefnir formann- inn, landssamtök æskulýðsfélaga kjósa þrjá full- trúa og Samband íslenzkra sveitarfélaga tilnefn- ir einn fulltrúa. UMFÍ hefur átt fulltrúa í Æ.R.R. allt frá byrjun og mjög gott samstarf hefur skapazt, þá hefur œskulýðsfulltrúi ríkis- ins, Reynir G. Karlsson, veitt samtökum okkar ómetanlega fyrirgreiðslu í hvívetna. Þrátt fyrir takmarkaðar fjárveitingar til ÆRR, hefur stefnumótun þess og stuðningur við frjálst æskulýðsstarf í landinu þegar borið góðan ávöxt. Nægir þar að nefna stuðning þess við leiðtogamenntunina með útgáfu fræðsluefnis og fjárstyrkjum til félagsmálafræðslunnar. Þá hef- ur ÆRR staðið fyrir námskeiðum um land allt fyrir félagsmálakennara og útskrífað af þeim rúmlega 200 leiðbeinendur. Um þessar mundir hafa verið haldin 100 almenn félagsmálanám- skeið með fræðsluefni ÆRR með rúmlega 2000 þátttakendum, og hafa námskeiðin bæði verið haldin á vegurn æskulýðsfélaga og skóla. Vonazt Vaxandi áherzla er nú lögð á sem almennasta þátttöku í íþróttum og útivist. Myndin var tekin af hópi pilta 14 ára og yngri við upp- haf víðavangshlaups í Reykjavík árið 1972. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.