Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Qupperneq 39
Séð yfir fundarsalinn í barnaskólahúsinu á Seyðisfirði.
undir rekstri þeirra, og minnir
fundurinn á tillögur stjórnar Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga um,
að lilutdeild í söluskattstekjum
yrði mörkuð landshlutasamtökun-
um í þessu skyni."
Tillaga þessi var samþykkt sam-
hljóða.
Leiguíbúðir
Að tillögu Guðmundar Magnús-
sonar, sveitarstjóra, og fleiri, gerði
fundurinn svofellda ályktun uni
leigufbúðir sveitarfélaga:
„Aðalfundur SSA 1975 skorar á
Húsnaeðismálastjórn og félagsmála-
ráðherra að breyta reglugerðinni
um 1000 leigufbúðir sveitarfélaga
þannig, að sveitarfélögunum verði
heimilað að gera við lok fram-
kvæmda kaup-leigusamninga við þá,
sem kaupa skuldabréf til fjár-
mögnunar liluta sveitarfélaganna í
íbúðarbyggingunum."
Tollvörugeymsla á
Austurlandi
Vigfús Ólafsson og aðrir fulltrú-
ar Reyðarfjarðarhrepps á fundin-
um lögðu fram svofellda tillögu að
ályktun, sem samþykkt var:
„Aðalfundur SSA 1975 samþykk-
ir að fela stjórn SSA að kanna'
möguleika á stofnun tollvöru-
geymslu á Austurlandi.“
Framsögumaður allslierjarnefnd-
ar C, sem fjallaði um þessar tillög-
ur, var Sigurður Hjaltason, sveitar-
stjóri Hafnarhrepps.
25% sjóðurinn til eins
landshluta í senn
Jóhann Klausen, bæjarstjóri, var
talsmaður allsherjarnefndar A, og
mælti m. a. fyrir eftirfarandi til-
lögu, sem stjórnin flutti og var
samþykkt einróma:
„Aðalfundur SSA 1975 samþykk-
ir að beina þeim eindregnu til-
mælum til þingrnanna kjördæmis-
ins, samgönguráðherra og fjárveit-
inganefndar Alþingis, að tryggt
verði, að þéttbýlisstaðir á Austur-
landi fái fjártnagn úr 25% sjóði
þéttbýlisfjár árið 1976, vegna var-
anlegs frágangs á gatnakerfi og
annars áfanga við að koma bundnu
slitlagi á götur í þéttbýli. Aðal-
fundurinn telur, að liagkvæmt sé,
með tilliti til nýtingar fjár úr 25%
sjóðnum, að því sé heint í einn
landsfjórðung í senn, í stað þess að
dreifa því í smáskömmtum á of
marga staði, þar sem engum um-
talsverðum árangri yrði náð neins
staðar með því móti.“
Vegamál
Þá gerði fundurinn þrjár sam-
þykktir um vegamál:
Sú fyrsta var jress efnis, að á
næsta ári verði hafin vegagerð um
Hvalnesskriður og Þvottárskriður
og henni lokið svo fljótt sem kost-
ur er; önnur var um fjögurra ára
áætlun um vegarlagningu milli
Fljótsdalshéraðs og Vopnafjarðar
sem næst ströndinni og sú þriðja
um bætt vegakerfi út um liinar
dreifðu byggðir á Austurlandi.
Sveitarfélög skipti við
innanhéraðsstofnanir
Svofelld tillaga borin fram af
Jóhanni Klausen var samþykkt
sem breytingartillaga við tillögu
stjórnar um sama efni:
„Aðalfundur SSA 1975 samþykk-
ir, að sambandið stuðli að hættri
verkfræði- og arkitektaþjónustu á
Austurlandi. 1 því skyni samþykkir
fundurinn að hvetja sveitarfélög á
sambandssvæðinu til að beina við-
skiptum sínum til jreirra stofnana,
sem nú eru þar staðsettar eða síðar
kunna að verða jjað."
Áætlanagerð
Allsherjarnefnd A lagði fram
svofellda tillögu, sem var sam-
þykkt:
„Aðalfundurinn óskar þess, að
stjórn SSA lilutist til um, að áætl-
anir, sem Austurland varða og
93
SVEITARSTJÓRNAUMÁL