Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Síða 45
lega verið hreppsíélaginu og
byggðarlaginu í lieild mikil mátt-
arstoð að mörgu leyti. Skólinn var
stofnaður fyrir forgöngu Arnórs
Sigurjónssonar, en fyrsti vísirinn
var tillaga, sem Arnór flutti í ung-
mennafélaginu Eflingu í Reykja-
dal um slíka skólastofnun árið
1913. Árið 1916, fyrir réttum 60
árum, hófst síðan barátta Sam-
bands þingeyskra ungmennafélaga
fyrir stofnun héraðsskóla, og smíði
skólans hófst síðan vorið 1924. Ári
síðar, 1925, eða fyrir hálfri öld,
var á Laugum reist fyrsta yfir-
byggða sundlaug landsins og er
liún enn í notkun. Árið 1928 var
aðalskólahúsið fullbyggt. Leikfimi-
hús var síðan reist árið 1931 og
smíðaskáli á árunum 1947—1948.
Húsmæðrasköli var reistur að
Laugum árið 1928 fyrir forgöngu
kvenfélaga í Þingeyjarsýslu. Ung-
mennafélög sýslunnar liafa lagt sig
fram um að snyrta umhverfi skóla-
húsanna og beittu sér fyrir gerð
fþróttavallar þar, svo aðstaða er
þar nú hin bezta til hvers konar
íþrótta, úti sem inni.
Arnór Sigurjónsson frá Litlu-
laugum, brautryðjandinn um
stofnun skólans, var fyrsti skóla-
stjóri hans á árunum 1928—1933.
Leifur Ásgeirsson, síðar prófessor,
var skólastjóri á árunum 1933—
1943, Hermann Hjartarson frá
1943—1950, en síðasta aldarfjórð-
unginn, frá 1950 hefnr Sigurður
Kristjánsson verið jrar skólastjóri,
nema hvað Sigurður Guðmunds-
son og Björn Pálsson hafa annazt
skólastjórn sinn hvorn veturinn í
forföllum.
Sigurjón Friðjónsson, faðir Arn-
órs, gaf land undir skólann og
hitaréttindi, og var Laugaskóli
fyrsta skólahúsið, sem liitað var
upp með liveravatni, og var skól-
anum beinlínis valinn staður með
hliðsjón af jarðhitanum.
I öndverðu var starfsemi skól-
ans sniðin eftir fyrirmynd dönsku
lýðskólanna, en færðist smám
saman í horf gagnfræðaskóla.
Skólinn hefur brautskráð nemend-
ur með gagnfræðapróf og lands-
próf og hefur starfað í þremur
bekkjardeildum. í liaust tók til
starfa 5. bekkur með námsefni,
sem svarar til 1. bekkjar mennta-
skóla.
Fyrsta starfsvetur skólans voru
nemendur um 50, urðu flestir
um 150, en voru sl. vetur um 110,
að sögn Sigurðar Kristjánssonar
skólastjóra, í samtali við ritstjóra
er Fjórðungssamband Norðlend-
inga efndi til ráðstefnu um æsku-
lýðsmál að Laugum í júnímánuði
sl. Með fækkun nemenda og til-
... - , ■ - -: , 'ií-& K—T
mm ■-*»'■■ ■ ^ Wýr-i ■■I ’ ilÍSiÍÍl BBt p i» i
Séð heim að Laugum i Reykjadal, Héraðsskólinn lengst til vinstri, þá gamla iþróttahúsið og aflan við það rýleg heimavistarhús Héraðs-
skólans og loks húsakynni Húsmæðraskólans lengst til hægri á myndinni.
SVEITARSTJÓRNAKMÁL