Morgunblaðið - 26.11.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.11.2011, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  278. tölublað  99. árgangur  JÓLABLAÐIÐ 128 SÍÐUR AF UPPSKRIFTUM, VIÐ- BURÐUM, GÓÐUM GJÖFUM O.FL. 3 - 110 R. 10 R. R. hálsi 3 - 110 R . . . Morgunblaðið/Árni Sæberg Kolefnislosun Álverið í Straumsvík er eitt fyrirtækjanna sem borga skattinn.  Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að aldrei hafi staðið til í bandorminum að tví- skatta fyrirtæki sem borga kolefn- isskatta, tryggt verði að Ísland verði að öllu samanlögðu vel sam- keppnishæft. „Við erum meðvituð um það hér í ráðuneytinu að losunarheimild- irnar og kaup á þeim eru að koma til sögunnar [á Evrópska efnahags- svæðinu] og um það er fjallað í greinargerðinni með lögunum,“ segir Steingrímur. „Þar af leiðandi segjum við að það þurfi að stilla þessa hluti af við þá framtíð.“ Aldrei hafi staðið annað til en að samræma þá kolefnisskatta sem hér yrðu á notkun við þá skatta sem yrðu settir á losun hjá sumum greiðendum skattsins. »4 Hyggst tryggja að Ísland verði vel samkeppnishæft Kristján Jónsson kjon@mbl.s Samfylkingarmenn eru sumir afar ósáttir við þá ákvörðun innanríkis- ráðherra að hafna beiðni um undan- þágu vegna kaupa kínverska auð- mannsins Huangs Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum. Talsmaður Huangs á Íslandi, Halldór Jóhanns- son, kvartar undan því að innanrík- isráðuneytið hafi ekki svarað tölvu- skeytum hans og ráðherra aldrei átt fund með honum eða Huang. Bergur Elías Ágústsson, sveitar- stjóri Norðurþings, segir menn hafa reynt að hafa frumkvæði en allt sé slegið af, fyrst álver og nú eigi að stöðva kísilverksmiðju með sköttum. „Við vorum svo heppin að fá hingað Huang Nubo sem var tilbúinn að fjárfesta í sveitarfélaginu og taka virkan þátt í að efla ferðaþjónustuna en það verður ekki leyft. Það er ekki laust við að maður verði hugsi.“ Verkalýðsleiðtoginn Aðalsteinn Baldursson segir að ástandið sé farið að líkjast „einelti“ gagnvart Norður- þingi. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra sagði niðurstöð- una óhjákvæmilega vekja spurning- ar um stjórnarsamstarfið og fram- hald þess. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir aðspurður að mikið hugarflug þurfi til að kom- ast að þeirri niðurstöðu að málið ógni stjórnarsamstarfinu. „Þetta snýst ekki um pólitík heldur um það eitt að fara að landslögum,“ segir hann. En eru líkur á að stjórnin falli vegna máls Huangs? „Menn eru mis- jafnlega fúlir yfir þessu,“ sagði Öss- ur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra. „Sumir eru verulega óánægðir en þetta mál er þrátt fyrir allt ekki af þeirri stærðargráðu að það steypi stjórninni.“ MFordæmalaus stærð »6 Ósætti vegna synjunar  Össur segir mál Huangs ekki af „þeirri stærðargráðu að það steypi stjórninni“  Fulltrúar Norðurþings segja allar fjárfestingarhugmyndir slegnar af Ljósmynd/Birkir Fanndal Deiluefni Grímsstaðir á Fjöllum. Fyrsta helgin í aðventu er gengin í garð og má búast við því að í kvöld og næstu vikur sæki fjöldi manns jólahlaðborð með tilheyrandi glöggi til að hita sig upp fyrir hátíðarnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hóf í gær sitt hefðbundna átak gegn ölvunarakstri á aðventu. Hátt í 200 bílar voru stöðvaðir og var einn bílstjóri látinn hætta akstri, en flestir voru þó til fyrirmyndar líkt og þetta unga fólk sem lögreglan ræddi við. Gluggað að glöggi í umferðinni á aðventu Morgunblaðið/Júlíus Fjöldi fólks sem tapaði stofnfé sínu við fall sparisjóðanna gerir sér nú vonir um að skuldirnar verði felldar niður, eftir að dómur Hæstaréttar féll í máli stofnfjáreigenda Byrs spari- sjóðs. Samtök stofnfjáreigenda margra sparisjóða meta nú hvort forsendur dómsins eigi við um fleiri. Málin eru mörg og mismunandi, en dæmi eru um heimili sem skulda á annað hund- rað milljónir króna vegna stofnfjár- kaupa í sparisjóðum sinnar heima- byggðar. Algengt var að sparisjóð- irnir veittu lán til einstaklinga sem vildu styðja sjóð- inn með auknu stofnfé. Eignin er í flestum tilvikum glötuð, en lánin standa eftir. Í Húnaþingi vestra og Bæjarhreppi var ekki óalgengt að einstaklingar keyptu stofnfé fyrir 20 milljónir með lánum sem voru að hluta gengistryggð og standa nú í um 30 milljónum. Dæmi eru um að fólk hafi tekið enn hærri lán. Svo voru aðr- ir sem tóku ekki lán fyrir stofnfénu en þeir hafa tapað sínu fé. Ekki eru allir stofnfjáreigendur vongóðir um lausn. „Við erum að borga og munum borga út ævina,“ segir Stefán Sigurjónsson, stofnfjáreigandi í Sparisjóði Vest- mannaeyja en þar fjármagnaði hver kaupin fyrir sig. „Ég er hættur að líta á þetta sem eign. Maður fær ekki einu sinni koníak á fundum, aðeins malt og appelsín.“ »20 Dómurinn vekur vonir  Stofnfjáreigendur víða um land eygja von um niðurfellingu  Vatnavinir hafa kynnt fyrir borg- aryfirvöldum og fleirum marg- breytilega möguleika á að efla bað- og sundmenningu Íslendinga. Þetta væri hægt að gera í smáum skref- um, sums staðar þyrfti að ráðast í töluverða uppbyggingu en annars staðar ekki. „Til að gera sjóböð að- gengilegri á Seltjarnarnesi og Álftanesi þarf bara aðstöðu til að skipta um föt og kannski eina sturtu og einn heitan pott,“ segir Olga Guðrún Sigfúsdóttir, einn vatnavina. »18 Efla menningu með fleiri möguleikum til að fara í bað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.