Morgunblaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2011 Nú er rúmur ald- arfjórðungur síðan Ís- lendingar byrjuðu að feta sig inn á fisk- veiðistjórnun sem gengur í daglegu tali undir nafninu kvóta- kerfið. Fyrst voru sett lög til skamms tíma en þegar sá tími var að renna út var ákveðið að halda til- rauninni áfram eftir mikil átök. Mér er sérstaklega minnisstæð ræða sem þáverandi fram- kvæmdastjóri LÍÚ flutti á þingi félagsins eftir að hafa kynnt sér vísindalega nálgun Kanadamanna að viðfangsefninu. Inntak ræð- unnar var á þá leið að í Kanada væru menn ekki að véfengja vís- indalega þekkingu, þeir ætluðu bara að veiða 250 þús. tonn af þorski til að geta eftir einhvern tíma veitt 700-800 þús. tonn á ári upp frá því. Síðan nefndi fram- kvæmdastjórinn Norðmenn sem víti til varnaðar og gaf í skyn að þeir væru búnir að eyðileggja Barentshafið. Staðfesta Kan- adamanna lét ekki að sér hæða og innan nokkurra ára stöðvuðu þeir þorskveiðar til að nýta betur ávöxtunargetu hafsins. Á Íslandi hertu menn tökin smátt og smátt. Áróðurinn um hinn gráðuga og óá- byrga sjómann sem tæki fiskinn „okkar“ án þess að leyfa hon- um að njóta ávöxt- unar hafsins var not- aður til að kæfa allar mótbárur og um- framafli umfram ráð- gjöf notaður til að af- saka hve seint gekk að byggja upp þorsk- stofninn. Á tímabili var því jafnvel haldið fram að ekki væri til svo dýrt fjármagn í veröldinni að ekki borgaði sig frekar að taka það að láni en veiða þorskinn, svo mikil væri ávöxtunargeta hafsins. Norðmenn voru drulluhræddir um þessar mundir og ef þeim hefðu borist varnaðarorð fram- kvæmdastjórans til eyrna er ekki ólíklegt að þeir hefðu stöðvað veiðar líkt og Kanadamenn gerðu. Ef það hefði gerst er eins líklegt að þeir væru ekki byrjaðir að veiða þorsk aftur. Niðurstaða síðustu tuttugu ára liggur nú fyrir. Þorskveiðar Kan- adamann hafa verið svipur hjá sjón. Íslendingar hafa verið á hálfum afköstum, fiktandi með bíómassa aflareglur og verndandi smáfisk ef hlutfall hans í veiðum verður of hátt. Hvílík snilld! Norðmenn, Rússar og aðrir hafa síðustu tvo áratugina tekið 12 milljónir tonna af þorski úr Barentshafsþorsk- stofninum sem sérfræðingar töldu í mikilli lægð í upphafi tímabilsins. Það er mín skoðun að ef þeir hefðu ekki veitt þennan fisk hefði megnið af honum aldrei getað orð- ið til og í besta falli ættu þeir þorskstofn sem væri lítið eitt stærri en hann er en í versta falli ættu þeir lítinn úrkynjaðan þorsk- stofn. Ef þetta er rétt skoðun er ljóst að veiðar sjómanna bjuggu til meginhlutann af lönduðum þorski úr Barentshafinu síðustu tvo ára- tugina. Geri aðrir betur! Það er eðli skynsamlegrar nýt- ingar að skapa rými fyrir nýjan vöxt og draga um leið úr orkusóun sem á sér stað ef of margir eru um hituna og auka þannig holds- köpun (maðurinn eyðir samkeppni annaðhvort með fóðrun eða grisj- un og fær í staðinn vöxt). Jafn- framt má vera ljóst að hámarks hlutdeild í vextinum fæst með því að komast eins nálægt sólinni og kostur er. Þetta gildir líka innan stofna þar sem ljóst má vera að bak við hvert kíló af t.d. 10 ára þorski liggur mun meira fóður en bak við hvert kiló af 4 ára þorski svo ekki sé talað um seiði. Ellin er náttúrunni margfalt dýrari en æskan þegar kemur að bindingu orku. Bankabækur hafsins hafa það eðli að þær gefa aðeins góða ávöxtun að tekið sé út af þeim. Ef það er ekki gert breytast þær í orkusóandi vígvöll lífsbaráttu þar sem lítil eða jafnvel neikvæð ávöxtun er möguleg. Skíðishvalir taka fæðu sína út úr vistkerfinu þar sem endurnýjunin er hröðust. Það er engin tilviljun að þeir eru stærstu skepnur sem þessi jörð hefur alið. Ég tel líklegt að í Barentshafinu hafi orðið til um 15 milljónir tonna af þorski síðustu tvo áratugina (landaður afli + stofnstærð- araukning) vegna veiðanna en ekki þrátt fyrir þær. Ef Norð- menn og Rússar hefðu látið undan ótta sínum um 1990 og stöðvað veiðar til að ávaxta fiskinn í haf- inu hefði mjög lítill hluti þess þorsks getað orðið til. Ef ég segði bændum að auka af- rakstur túna sinna með því að hætta að slá myndu þeir eflaust hlæja að mér. Ef þeir færu að ráði mínu mundu þeir fljótlega þurfa að brenna tún sín til að ná upp ræktun á ný. Hvers vegna ættu sjómenn að hafa samviskubit vegna skyn- samlegra veiða sem skapa fisk? Og hvers vegna kemst fiskifræðin upp með að mæra verndun og logna ávöxtun sem augljóst er að skapar oftar vanda í lífríkinu en leysir? Líffræðingar sem líta á manninn sem afgangsstærð þegar kemur að samspili hans við nátt- úruna ættu ekki að fá að koma ná- lægt ráðgjöf í nokkru landi. Við þær aðstæður sem íslenska þjóðin hefur búið undanfarin þrjú ár er það hneyksli að ekki skuli veiddur meiri þorskur á Íslands- miðum jafnvel þó að sumir teldu sig taka með því einhverja áhættu. Lifið heil. Á valdi óttans Eftir Sveinbjörn Jónsson » Bankabækur hafsins hafa það eðli að þær gefa aðeins góða ávöxt- un að tekið sé út af þeim. Ef það er ekki gert breytast þær í orkusóandi vígvöll. Sveinbjörn Jónsson Höfundur hefur starfað við sjávar- útveg í áratugi, m.a. sem smábátasjó- maður, uppfinningamaður og beitu- framleiðandi. Morgunblaðið birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í sam- ráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í um- ræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein“, valinn úr felliglugg- anum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lyk- ilorð og er þá notandasvæðið virkt. Móttaka aðsendra greina Bjartar og glæsilegar íbúðir miðsvæðis í Reykjavík, Suðurlandsbraut 58-62• Verslanir og önnur þjónusta í göngufæri• Heilsulind með sundlaug, heitum potti og gufubaði• Glæsilegt útivistarsvæði með upphituðum göngustígum og púttvelli• Innangengt úr bílakjallara í matsal, leikfimi, hárgreiðslu, sjúkraþjálfun ofl.• Leiguíbúðir með íbúðarréttarfyrirkomulagi - leigutakar kaupa íbúðarrétt• að upphæð um 1/3 af verði íbúðar og greiða auk þess mánaðarlega leigu Nokkrum íbúðum óráðstafað• Allar nánari upplýsingar fást í símum 560 1900, 618 9200 og 897 8080. Einnig er hægt að skoða teikningar á vefslóðinni www.morkin.is Íbúðir fyrir 60 ára og eldri Glæsilegar íbúðir fyrir sextíu ára og eldri A U G LÝ SI N G A ST O FA N D A G SV ER K / 1 1 1 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.