Morgunblaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2011 Þegar höfuðborgarbúar vöknuðu í gærmorgun var alhvítt yfir að líta. „Meðaldagsetning“ þegar fyrst verður alhvítt í Reykjavík að hausti er 6. nóvember, þannig að snjórinn er nú 19 dögum seinna á ferðinni en að með- altali, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings. Síðast var alhvít jörð í Reykjavík 2. maí í vor. Frá því að mælingar hófust í Reykjavík 1921 varð fyrst alhvítt hinn 9. september en það var árið 1926. Að sögn Trausta er mánuðurinn enn í þriðja sæti hlýrra nóvembermánaða í Reykjavík og hiti enn 4,6 stig yfir meðallagi. „En gangi spár eftir fyrir þessa síðustu daga mun hann hrapa niður listann – ekki er gott að segja hversu langt,“ segir Trausti. sisi@mbl.is Snjórinn 19 dögum seinni en í meðalári Morgunblaðið/RAX Fyrsti alhvíti dagurinn í höfuðborginni síðan í byrjun maí Björn Jóhann Björnsson Kristján Jónsson Atvinnuveganefnd Alþingis fundaði aftur í gær um kolefnisgjaldið umdeilda, sem á að hækka um ára- mótin og leggja einnig á stóriðjufyrirtæki frá árs- byrjun 2013. Til fundarins komu fulltrúar frá fjár- málaráðuneytinu, Samtökum álframleiðenda og Íslandsstofu. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra segir að boðað hafi verið til fundar á mánudag með fulltrúum ráðuneytisins og Samtaka atvinnulífsins þar sem ræða á kolefnisgjaldið. Hann vísar því algerlega á bug að nokkur tvísköttun hafi verið á döfinni eða samningar verið brotnir. Tryggt verði að fyrirtæki hérlendis verði áfram samkeppn- ishæf þótt spornað verði við mengun. Eftir fund atvinnuveganefndar sagðist formaður nefndarinnar, Kristján L. Möller, þingmaður Sam- fylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, líta svo á að aukakolefnisgjald á stóriðjufyrirtækin væri fallið um sjálft sig. Aldrei hefði staðið til að tvískattleggja fyrirtækin, leggja á einhverja aukaskatta umfram Evrópu og aukaskatt á aðföng eins og kol og koks. Taldi Kristján að um einhvern misskilning eða mis- tök hefði verið að ræða í málinu, ekki hefði staðið til að skattleggja stóriðjufyrirtækin umfram það sem gerðist í samkeppnislöndunum. Vel gæti verið að orðalag í frumvarpi fjármálaráðherra hefði ekki verið nógu skýrt. Kristján gerir ráð fyrir að málið standi óbreytt inni í frumvarpi fjármálaráðherra, bandorminum svonefnda, og verði rætt við aðra umræðu um fjár- lögin. Fulltrúar allra fyrirtækjanna, bæði úr ál- og kísiliðnaði, hafi verið vel meðvitaðir um hvað sé framundan í evrópska viðskiptakerfinu með losun- arheimildir, ETS-kerfinu. Kristján sagði að það væri fjármálaráðuneytisins að útfæra nánar hvernig staðið verður að kolefn- isgjaldinu. Hann liti a.m.k. svo á að ekki stæði til að leggja á stóriðjufyrirtækin sérstakt kolefnisgjald á aðföng eins og kol og koks frá ársbyrjun 2013. „Nóg komið af mistúlkunum“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður at- vinnuveganefndar og þingmaður Vinstri grænna, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig efnislega um þetta gjald fyrr en þessi fundur með hagsmunaaðilum hefði farið fram á mánudag. Nóg væri búið að vera um mistúlkanir í þessu máli. „Það er réttast að málið upplýsist á þessum fundi þannig að menn skilji hver annan í þessum efnum,“ sagði Lilja og taldi að ákveðinn misskilningur hefði farið af stað í málinu. Spurð út í álagningu kolefnisgjalds sagði Lilja mikilvægt að jafnræði væri almennt innan atvinnu- greina í landinu varðandi álögð gjöld. „Við erum öll að taka þátt í að reisa efnahag þessa lands, jafnt stórir sem smáir, og þar eiga allir að koma að borð- inu hvort sem það er stóriðjan eða einhverjir aðrir. Allir verða að taka á sig hlut, breiðu bökin líka.“ Telur gjaldið ekki til staðar  Atvinnuveganefnd Alþingis ræddi kolefnisgjaldið aftur  Formaður nefndar- innar telur gjaldið fallið um sjálft sig  Fundað á mánudag með hagsmunaaðilum Lilja Rafney Magnúsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Kristján L. Möller Dómstólaráð hefur samþykkt beiðni Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkis- saksóknara um að fá send jafnóðum afrit af dómsúrskurðum vegna hler- ana, skráningar t.d. á ferðum bif- reiða og sambærilegra úrræða við rannsókn meintra sakamála. Dóms- málaráð ákvað þetta á fundi sínum 18. nóvember síðastliðinn. Ríkissaksóknari mun fá afrit af dómsúrskurðum hvort sem beiðnum lögreglu um heimild til hlerana, eða önnur úrræði, er hafnað eða þær samþykktar. Sigríður sagði að þessi upplýsingagjöf væri nú þegar hafin en verið væri að finna leiðir til að framkvæma hana á sem bestan hátt. Til að byrja með verða afrit af úr- skurðum dómara send til ríkis- saksóknara á pappír. Sigríður sagði að finna þyrfti leið til að senda gögn- in rafrænt á öruggan hátt. Það yrði auðveldara fyrir alla auk þess sem það sparaði pappírinn. Um er að ræða úrskurði um hler- anir, hvort heldur símhleranir, upp- lýsingar um tengingar við símanúm- er, hlerun á herbergjum, eftirlit með tölvusamskiptum, búnað sem skráir ferðir bíla eða annað slíkt sem kveðið er á um í lögum um meðferð saka- mála (88/2008) varðandi ýmis úrræði í þágu rannsóknar á meintum saka- málum. Bjarni Benediktsson alþingismað- ur vakti máls á því á þingfundi 8. nóv- ember sl. að skort hefði á lögbundið eftirlit með símhlerunum. Ögmund- ur Jónasson innanríkisráðherra tók undir að eftirlit með þessu þyrfti að vera fyrir hendi. gudni@mbl.is Upplýst um hleranir  Dómstólaráð hefur samþykkt beiðni ríkissaksóknara um að fá send jafnóðum afrit af dómsúrskurðum vegna hlerana Hlerað Ríkissaksóknari fær jafn- óðum úrskurði um hleranir. Ekki hafa borist merki í rúma viku frá hnúfubaknum sem merktur var í Eyjafirði í byrjun mánaðarins. Síð- asta merkið heyrð- ist frá hvalnum að morgni 17. nóv- ember. Þá hafði hann haldið sig nærri Vestmanna- eyjum í um þrjá sólarhringa en að sögn sjómanna hefur talsvert verið af síld á þeim slóðum undanfarið. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, óttast að merkið hafi losnað úr hnúfubaknum. Hann er þó ekki tilbúinn að afskrifa hann með öllu og minnir á að hrefna sem merkt var árið 2004 sendi sitt fyrsta merki þremur mánuðum eftir merkingu. Hafrannsóknastofnun á enn tvö gervitunglamerki og verður þess freistað á næstunni að skjóta þeim í hvali. aij@mbl.is Engin merki frá hnúfubak Verkfalli sjómanna á skipum Haf- rannsóknastofnunarinnar, sem staðið hefur undanfarnar átta vikur, hefur verið frestað. Gert er ráð fyrir að rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson fari til mælinga á ungloðnu og í sjórannsóknir á mánudagsmorgun og að þessum leið- öngrum ljúki í kringum 10. desember. Á heimasíðu Hafrannsóknastofn- unar segir að ungloðnumælingarnar séu grundvöllur tillagna um upphafs- kvóta við loðnuveiðar haustið 2012 og beinast þær einkum að svæðinu yfir landgrunnsbrúninni frá Vestfjörðum og að norðausturhorni landsins. Sjó- rannsóknirnar eru liður í lag- tímavöktun umhverfisaðstæðna á Ís- landsmiðum og verða þær gerðar á föstum stöðvum á grunn- og djúpslóð allt í kringum landið. Ekki hefur verið gengið frá kjara- samningi á milli sjómanna og samn- inganefndar ríkisins, en hins vegar hefur náðst sátt um ramma að nýjum kjarasamningi sem vonast er til að gengið verði frá á næstu dögum. aij@mbl.is Mæling á ung- loðnu og sjó- rannsóknir Morgunblaðið/Árni Sæberg Toyota Land Cruiser 120 VX Árgerð 2006. Ekinn 121 þ. km. Fallegur og vel með farinn. Sex strokka bensínvél sem skilar 250 hestöflum. Upphækkaður á nýlegum 33“ heilsársdekkjum. Leðurklæddur með öllum helsta aukabúnaði. Sérstakt tilboðsverð kr. 3.990.000. Áhugasamir hafið samband í síma 567 2277 eða 587 7007 Til sölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.