Morgunblaðið - 30.11.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 30.11.2011, Síða 11
Skrúbbur Bananar eru mjög góðir í líkamsmeðferðir.Olía Barnaolíunæring mýkir hárið og gefur því prótín. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2011 Hér fylgja með þrjár uppskriftir úr bókinni Náttúruleg fegurð. Banana- og sykurskrúbbur Bananar eru mjög góðir í líkams- meðferðir. Þeir eru róandi, nær- andi og rakagefandi fyrir húðina. Þessi skrúbbur fjarlægir dauðar húðfrumur á mildilegan hátt og strekkir húðina. 1 banani, vel þroskaður 4 msk. sykur ½ tsk. vanilludropar glerskál Aðferð Stappið bananann vel og blandið sykrinum og vanilludrop- unum saman við í skál. Ekki hræra of mikið því þá verður blandan of blaut. Nuddið þessu á líkamann fyrir sturtuna (fínt að gera það samt í baðkarinu svo skrúbburinn fari ekki út um allt). Ef þið viljið fá í andlitið líka maukið þá banana án sykurs og berið á andlitið. Skol- ið svo vel af. Jólamaski Tilvalið í öllu jólastressinu að setja þennan yndislega jólailm- andi maska á andlitið og slaka að- eins á. 2 msk. hunang 2 msk. nýmjólk 1 tsk. vanilludropar ½ tsk. kanilduft glerskál Aðferð Blandið öllum hráefnunum vel saman í skál og berið á andlit. Bíðið í 15 mínútur. Andið inn jóla- lyktinni og slakið á. Hreinsið að lokum af með volgu vatni. Barnaolíunæring Mýkir hárið og gefur því nátt- úrulegt prótín. 3 msk. vatn 1 egg 2 msk. barnaolía glerskál Aðferð Hrærið allt hráefnið vel saman í skálinni og berið í blautt hár. Vefjið handklæði um höfuðið og bíðið í 15 mínútur. Skolið svo úr með sjampói. Notist samdægurs. Jólamaski með kanil UPPSKRIFTIR Við eigum mikið af hæfileikaríku ungu fólki og söngnemarnir í Söngskóla Sigurðar Demetz eru einmitt þesslags fólk, með fagrar söngraddir á bjartri leið til framtíðar. Þetta unga fólk býð- ur til óperusýningar í kvöld kl. 20 í Skógarhlíð 20 (Ýmis-húsinu). Í til- kynningu segir að þar verði sannkölluð tónlistarveisla en nemendur setja þar upp óperuna „Arthúr konung“ eftir Henry Purcell með skemmtilegum og líflegum hætti. Undir söng nemenda spilar 13 manna alþjóðleg hljómsveit og verður ævintýrabragur yfir verkinu. Söngvararnir skipta að meðaltali um búninga fjórum sinnum meðan á óper- unni stendur. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari sér um leikgerð og leik- stjórn og hljómsveitarstjóri er Gunn- steinn Ólafsson. Almennt miðaverð er 1900 kr en 1000 kr fyrir nemendur og eldri borgara. Miða má nálgast í síma 552-0600 og við innganginn. Endilega... ...sjáið og heyr- ið söngnema Ljósmynd/Sigrún Sig. Skagfirðingur Árni Geir Sigur- björnsson syngur í óperunni. Það er bæði skemmtilegt og hag- kvæmt að búa til eig- in snyrtivörur og ég kaupi ekkert lengur sem ég get búið til. Kerry Taylor Auctions kallast fyrirtæki sem starfrækt er í London. Það sérhæfir sig í sölu á vönduðum, notuðum fatnaði. Oft merkjavöru eða fatnaði sem þekktir einstaklingar hafa átt. Nú í vikunni voru boðin upp kjóll sem söngkonan Amy Winehouse klæddist í á plötuumslagi plötunnar Back to Black og kjóll sem leik- konan Audrey Hepburn klæddist á Ósk- arsverðlaunahátíðinni árið 1954 þar sem hún tók við Óskarsverðlaunum. Tískuuppboð í London Óskarsverðlaunakjóll Hepburn Kjóll Amy Winehouse klæddist þessum á plötuumslagi. Gersemar Balenciaga sarí Elizabeth Taylor og kjóll Audrey Hepburn. Reuters Brúðarskór Sömu gerðar og þeir sem Díana prinsessa gifti sig í um árið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.