Morgunblaðið - 30.11.2011, Síða 24

Morgunblaðið - 30.11.2011, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2011 ✝ Oddur Björns-son fæddist í Ásum í Skaft- ártungu 25. október 1932. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. nóv- ember 2011. Foreldrar hans voru Guðríður Vig- fúsdóttir, húsmóðir frá Flögu í Skaft- ártungu, f. 2.6. 1901, d. 12.4. 1973, og séra Björn O. Björnsson, f. 21.1. 1895, d. 29.9. 1975. Systkini: Ingibjörg Ragn- heiður, f. 14.9. 1925, Vigfús, f. 20.1. 1927, d. 6.1. 2010, Sigríður, f. 5.11. 1929, Sigrún, f. 11.11. 1942. Fyrsta eiginkona Odds var Borghildur Thors, f. 27.5. 1933. Þau skildu. Oddur og Borghildur áttu börnin Hilmar, f. 19.1. 1957, og Elísabetu Álfheiði, f. 13.7. 1958. Hilmar á með Þóreyju Sig- þórsdóttur, f. 25.11. 1965, börnin Heru, f. 27.12. 1988, og Odd Sig- þór, f. 7.9. 2001. Elíasabet Álf- heiður á með Ómari Jóhannssyni, f. 22.3. 1948, börnin Odd, f. 3.1. 1993 og Arnar, f. 1.11. 1994. Önn- ur eiginkona Odds var Bergljót Halldórsdóttir, f. 22.4. 1936. Þau skildu. Unnusta Odds frá árinu 1983 er Bergljót Gunnarsdóttir, f. 27.1. 1940. Hún var áður gift Stef- áni Ólafssyni, f. 27.2. 1938, d. 2.12. 1970. Þau áttu Gunnar, f. 30.8. ureyrar og Ríkisútvarpið. Þá var hann um skeið leikhúsgagnrýn- andi. Oddur skrifaði fjölda leik- rita fyrir leiksvið, útvarp og sjón- varp og hafa mörg þeirra verið gefin út á bók. Meðal leikrita Odds má nefna Amalíu, Jóðlíf, Hornakóralinn 1967, Dansleik 1972, Meistarann 1977 og 13. krossferðina 1993. Auk þess skrifaði hann tvö barnaleikrit. Meðal útvarpsleikrita Odds má nefna Einkennilegan mann frá 1963, Kirkjuferðina frá 1966, Brúðkaup furstans af Fernara frá árinu 1970, Skemmtigöngu frá 1973 og K 421 frá 1984. Út- varpsleikrit eftir Odd hafa verið flutt við erlendar útvarps- stöðvar, m.a. BBC. Oddur skrif- aði handritin að sjónvarpsleikrit- unum Postulíni og Draugasögu. Auk þess hafa nokkur leikrita hans verið endurunnin fyrir sjón- varp. Hann skrifaði skáldsöguna Kvörnina 1967 og barnabók tveimur árum síðar. Hann mynd- skreytti barnabækur, m.a. svo- nefndar „strákabækur“ Vigfúsar Björnssonar bróður síns. Hann skrifaði gagnrýni um útgefna tónlist í Morgunblaðið um árabil. Oddur fékk menningarverðlaun DV árið 1981 fyrir leikstjórn á Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett og heiðursverðlaun Grímunnar – íslensku leiklist- arverðlaunanna í júní á þessu ári fyrir framlag sitt til íslenskra sviðslista. Útför Odds fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 30. nóvember 2011, og hefst athöfnin kl. 15. 1957. Hann kvæntist Önnu Reynisdóttur. Þau skildu. Dætur þeirra eru Selma Björk Isabella, börn hennar Ágústa, Mikael og óskírð, og Stefanía, barn henn- ar Ísabella. Seinni kona Gunnars er Arna Kristín Garð- arsdóttir. Þau eiga Hildi Ýri. Arna á frá fyrri sambúð Mariu Liv Arn- ardóttur. Hrefna, f. 16.2. 1961, á með Eiríki Stefánssyni (látinn) Stefán, Brynju og Eirík. Hanna, f. 9.2. 1964, gift Hirti Sigurðssyni. Börn þeirra eru Bergljót, Sig- urður og Jóna Kristín. Bergljót á frá fyrri sambúð, með Ólafi Jóns- syni, Elínu Jónínu, f. 21.10. 1976. Hún er gift Rúnari Sigurbjörns- syni, synir þeirra eru Rúnar Breki og Sindri Hrafn. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri nam Oddur leikhúsfræði við Háskól- ann í Vínarborg 1954-1956. Hann starfaði sem bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur og kennari við Iðnskólann í Reykja- vík. Hann vann um árabil fyrir Þjóðleikhúsið og var leiks- hússtjóri hjá Leikfélagi Akureyr- ar 1978-1980. Oddur starfaði mestallan starfsferil sinn sem rit- höfundur og leikstjóri, m.a. við Þjóðleikhúsið, Leikfélag Ak- Oddur Björnsson hefur kvatt okkur eftir stutta sjúkrahúslegu. Hans er sárt saknað. Hann var tengdafaðir minn og afi barnanna minna og búinn að vera hluti af mínu lífi í um ald- arfjórðung. Það var gaman að heimsækja hann og Beggó á heimili þeirra á Njarðargötunni og ég á margar góðar minningar þaðan. Við Hilmar bjuggum þar veturinn 1987-88 og eignuðumst þar okkar fyrsta barn, hana Heru. Þá voru þau hjónin í Se- villa, bjuggu þar í ár að sækja sér innblástur í spænska menn- ingu. Seinna, mörgum árum síð- ar, áttum við eftir að búa aftur á Njarðargötunni um tíma. Þá voru Oddur og Beggó komin til Kína þar sem þau dvöldu lang- dvölum síðustu ár. Mikið vatn var runnið til sjávar og Oddur Sigþór hafði bæst í barnahópinn. Að koma á Njarðargötuna eða dveljast þar var alltaf innblástur og heimilið bar íbúum sínum fag- urt vitni. Mikill menningarbrag- ur á öllu, úrval af klassískri tón- list í hæsta gæðaflokki, þar var gott að vera. Oddur var hæglát- ur og hlýr maður, hafði góða nærveru og gaman að spjalla við hann um heima og geima. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum sem manneskju. Oddur var eitt okkar merki- legasta leikskáld, oft nefndur faðir absúrd stefnunnar í ís- lenskri leikritun. Lífsverk hans sem leikskálds getum við þakk- að fyrir enda voru honum veitt heiðursverðlaun Eddunnar á þessu ári fyrir lífsstarf sitt. Ég var svo heppin að fá tækifæri árið 1993 til að leika í síðasta verki hans sem fór á fjalir Þjóð- leikhússins, 13. krossferðinni í leikstjórn Þórhildar Þorleifs- dóttur. Það var spennandi og skemmtileg glíma. Mikil áskor- un. Nýtt verk, fullt af höfund- areinkennum Odds og metnað- arfullt í uppsetningu. Það var gefandi að fá að vera hluti af því ferli og mikill hugur var í hópnum. 13. krossferðin var stórt verk í sniðum. Leikhóp- urinn var sannfærður um að við værum með tímamótaverk í höndunum, algjöran gullmola. Ég veit að þetta verk á eftir að hljóta sérstakan heiðurssess í íslenskri leikritaflóru þegar fram líða stundir. Oddur er farinn frá okkur, kominn á annað svið en verkin hans munu lifa um ókomna tíð. Ég þakka honum fyrir það sem hann var mér og mínum. Minn- ingin um glettinn og elskulegan tengdaföður og afa lifir. Elsku Oddur, far vel. Þórey Sigþórsdóttir. Oddur bróðir minn er látinn. Hann var þremur árum yngri en ég. Ég er þakklát fyrir allt það góða og skemmtilega sem Oddur gaf mér – allt frá fyrstu tíð. Þegar hann var 16 ára sagði hann við mig: „Sigga mín, nú langar mig til að mennta þig svolítið í breskri ljóðagerð.“ Síðan skellti hann á borðið hjá mér nokkrum ljóðabókum eftir fræg bresk ljóðskáld. Nokkrar bókanna voru þýddar á íslensku en tvær voru á frummálinu. Minningarnar hrannast upp: Þegar við Oddur vorum litlir krakkar í sveitinni vorum við nánir leikfélagar. Yfirleitt lék- um við úti – sumar, vetur, vor og haust. Á sumrin vorum við dugleg við að vera í „búleik“ og gátum endalaust mótað og búið eitthvað til úr drullumallinu eða þá, að við vorum að spá í skýin og keppa um hvort okkar væri duglegra að sjá myndir og spinna út frá þeim; – það voru engin takmörk fyrir því, hvað hægt var að sjá út úr skýjunum. Svo þóttumst við stundum vera dýr og Oddur stakk upp á, að við skyldum hvorki vera kýr eða kindur né önnur húsdýr, heldur fann hann upp nýja dýrategund sem hann kallaði „á-dýrin“ því þau vældu sífellt: „á-á, á-á“ – svo skriðu „á-dýrin“ um í gras- inu og bitu hundasúrur og fífl- ablöð, því þau átu ekki gras eins og hin dýrin. Árið 1941 hætti pabbi prests- skap til þess að geta helgað sig útgáfu á tímaritinu sínu sem hann nefndi „Jörð“ og flutti þá fjölskyldan úr sveitinni til Reykjavíkur. Þetta var mikil breyting – og allt annar heimur en sveitin hafði verið okkur Oddi. Við fórum í Mýrarhúsa- skóla. Hernámið var á fullu og til þess að komast í skólann á morgnana þurftum við að ganga fram hjá hermannakampi og al- vopnuðum verði sem var á vakt við kampinn. Oddur eignaðist nýja vini og einnig ég. Leikir okkar breyttust. Pabbi lét okkur Odd fara á barna-námskeið í Myndlistar- og handíðaskólan- um, þar sem Kurt Zier kenndi okkur. Heima var Oddur síteikn- andi. Hann fékk stílabækur til að teikna í og teiknaði viðstöðu- laust eina síðu eftir aðra og fyllti þannig margar stílabækur. Það var mikill kraftur og mikil frá- sögn í þessum teikningum hans. Þegar Oddur var 17 ára fórum við með öðru ungu fólki á sveita- ball. Þar settist hann við píanóið og spilaði Boogie Woogie af miklum krafti. Ég varð stein- hissa, því ég vissi ekki að hann kynni að spila á píanó. Enda þótt Oddur gæti verið mjög al- vörugefinn þá streymdi frá hon- um svo fín glettni og einlæg hlýja að ætíð var það mér and- leg næring. Ég þakka hjartan- lega fyrir það, að hafa átt Odd fyrir bróður, og bið honum og fjölskyldu hans allrar blessunar. Sigríður Björnsdóttir. Elsku Oddur bróðir minn. Ég rændi frá honum sæti litla barnsins með því að fæðast. Hann var nýorðinn tíu ára og nú næstyngstur fimm systkina. Mér er sagt hann hafi arkað um allar götur með köttinn í barnavagn- inum áður en ég fæddist. Og þegar mamma tók léttasóttina sagði hann: „Mamma mín, ég held ég þekki þessa verki!“ Odd- ur hlaut lítið eða ekkert form- legt nám í tónlist, en ólst upp við hlustun á klassík á heimilinu. Á unglingsaldri var hann djúpt sokkinn í þá iðju, frá barokk- meisturunum til þeirra síðróm- antísku. Hann var feiknafær teiknari og síteiknandi. Málaði líka. En sneri sér alfarið að ri- tæfingum um tvítugt. Hann var ákaflyndur ungur maður, hrifnæmur og djúpur. Líka geislandi glettinn. Fór í „fíluna“ í HÍ. Skrifaði norður að hann hefði hitt svo dásamlega stúlku að hann væri ákveðinn í að biðja hennar. Þetta var Borg- hildur Thors orðin konan hans áður en október var liðinn. Nokkrum vikum seinna voru þau gift og sigld til Vínarborgar. Tíminn líður hratt og áður en varði var ég gift honum Ragnari mínum, sem var náttúrlega tón- listarmaður. Oddur og Ragnar urðu strax miklir vinir. Skemmt- um okkur mikið saman, þessi fjögur. Áhugamálin féllu líka saman. Fylgdumst náið með störfum hvert annars. Oddur las oft fyrir okkur frumdrög verka sinna. Skeggrætt og skoðað. Ja, í nærfellt 20 ár! Svo skildu leiðir Odds og Borghildar. Ekki auð- veldur tími. – En stundum eru erfiðir tímar frjósamir tímar. Leikritin streymdu frá Oddi. Oddur orðinn fimmtugur. Hann í heimsókn, svakalega drjúgur með sig. Ég spurði hvort hann væri búinn að ná sér í konu. „Ertu hissa á því?!“ „Fær maður kannski að sjá hana?“ Það næsta sem ég man er flott kona í dragt sitjandi í stofunni. Bergljót Gunnarsdóttir. Konan sem varð hans góða kona og gæfa, stoð og stytta ævi hans á enda. Síðan eru liðin 28 ár. Við Ragnar áttum margar gleðistundir með þeim Oddi og Beggó. Í ferðalögum hér og þar. Á þeirra fallega heimili. Hjá okkur Ragnari. Fyrir rúm- um 13 árum missti ég elsku Ragnar minn. Ekki lengur fjög- ur. En mikill kærleikur og gott að hittast. Sumarið síðasta var mér ómetanlegt. Að eiga ynd- islegar stundir á spjalli við Odd á sólpallinum þeirra. Fá tækifæri til að fara með þeim um átthaga móður okkar austur í Skaftár- tungu á liðnu sumri og alla leið austur í Jökulsárlón var einstök upplifun. Líka ferðin með þeim á frumsýningu Töfralautunnar í Hörpu og ræða málin á eftir. Oddur veiktist alvarlega 12. nóvember. Á spítala í níu daga. Var þá allur. Ef einhver maður var umvafinn ást og kærleika á banabeði, var það Oddur. Berg- ljót kona Odds, börnin hans Hilmar og Beta, stjúpbörnin hans, makar þeirra, börn og systur hans gömlu, voru hjá hon- um til skiptis. Þau sem höfðu sinnt honum mest og best, Berg- ljót og Hilmar voru hjá honum þegar andlátsstundin kom. Og í faðmi Bergljótar hvarf hann af þessum heimi í friði og öryggi. Guð blessi elsku Odd minn og taki hann í faðm sinn. Og styrki og styðji Bergljótu mágkonu mína, börnin hans og aðra ást- vini. Sigrún Björnsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Oddur Björnsson kom inn í líf fjölskyldunnar fyrir ríflega ald- arfjórðungi þegar þau Beggó tóku saman. Oddur var mikið ljúfmenni með góða nærveru. Margvíslegar minningar tengjast samverustundum með þeim Beggó, ekki síst á Njarðargöt- unni, en einnig í athvarfi þeirra á Bíldudal, og ávallt var tekið á móti manni af örlæti og hlýju. Minnisstæðar eru ferðir í Arn- arfjörðinn þar sem tengslin styrktust í fjallakyrrð og nátt- úrufegurð. Í skoðunarferðum um fjörðinn nutum við sagnagáfu Odds, þekkingar og glettni. Oft- ar en ekki var brugðið á leik og þar lét Oddur ekki sitt eftir liggja og kryddaði spaugið hár- fínni dramatískri tilfinningu, enda listamaður af lífi og sál. Seint gleymist er hann brá sér í gervi prests í kirkju nokkurri vestur þar. Það var á slíkum stundum að rifjaðist upp að þessi samferðamaður okkar var raunar eitt fremsta leikskáld þjóðarinn- ar. Hann var annars ekkert að flíka því, enda að eðlisfari hæg- látur og hógvær. Velvild hans í garð annarra, áhugi á lífinu og listrænt næmi, gerði það að verkum að í samskiptum við hann fundu aðrir til sín, í já- kvæðasta skilningi þess orðalags, ekki síst unga fólkið en við vor- um sum hver á unglingsaldri við fyrstu kynni. Far vel, Oddur, þökk fyrir vináttu þína og góða samfylgd á lífsleiðinni. Hanna mágkona, Anna og Ástráður, Heiða og Björn, Magnús og María. Fyrstu minningarnar um Odd móðurbróður minn tengj- ast Hálsi í Fnjóskadal. Sendi- bréf hefur borist. Ég veit að það kemur frá Vínarborg, þekki rithöndina. Stóru kringlóttu skrifstafina úr breiða lindar- pennanum með græna blekinu. Í andaktugri tilhlökkun söfn- umst við saman í stofunni. Afi sker umslagið og út flæða ótelj- andi síður, þéttskrifaðar. Hann les upphátt. Amma birtist svo með kvöldkaffið á bakka. Á fón- inn eru settar 78 snúninga frá Columbia eða Decca sem Oddur hefur sent að utan. Ekki til að dansa eftir, heldur til að hlusta á. Verstar af öllum eru þó þess- ar með hundinum sem starir forviða niður í lúðurinn. Þá býttar engu hvort Berlínar sin- fónían spilar Tchaikovsky í E moll eða H. Eftir sjö mínútur á hverri hlið þarf að snúa fyrir aðrar sjö. Þá að skipta yfir á næstu plötu, og sama sagan endurtekur sig. Alls sex sinnum þar til verkinu lýkur. Sömu reglur gilda og við fréttatíma útvarpsins, ekki má tala á með- an. Allir flytja suður og árin líða. Á Víðimelnum hjá Oddi og Borghildi hlaupa um tvö ynd- isleg börn, svo geislandi bros- hýr. Hilmar og Beta vefja handleggjum um háls barnapí- unnar til næstu sex ára eða svo. Stofuna prýða tveir leðurstólar frá Vínarárunum og á milli þeirra ógleymanlegt borð úr langskorinni harðviðarrót sem aðeins er pússuð á þeirri hlið- inni sem upp snýr. Meðfram veggjum standa bækur, lífs- vökvi þyrstrar barnapíu. Umrót er í listum um viðtekið innihald og form, og mikið að gerast í leikhúslífi bæjarins svo heppnin er með henni. Barnapían vingast við óræða karaktera, Sölkur Völkur og þá nafna Hreggviðsson og Marteinsson, og skemmtir sér með þeim fram á rauða nætur. Þegar hún er síðar tekin í kristinna manna tölu er ekki mikið um lausafé. Oddur fer í bókaskápinn, finnur þar sex binda ritsafn í skinn- bandi, og það færa þau ferm- ingarbarninu að gjöf. Í Auðarstrætinu les barnapí- an Frjálsa þjóð. Yfir pönnus- teiktum rófum með raspi vakna spurningar um Keflavíkurgöng- ur, stefnu Þjóðvarnarflokksins gegn veru bandarísks herliðs á Miðnesheiði og veru landsins í Nató. Það vakna spurningar um hernaðarbrölt og ljótleika. Andúð Odds á stríðsrekstri, þeirri afskræmingu mennsk- unnar, lætur skátastúlkuna skoða allt upp á nýtt, alveg frá Búastríði að sumardeginum fyrsta. Hvers vegna varð Oddur leikskáld en ekki tónlistarmað- ur eða teiknari? Hann taldi leikritun fullnægja rannsókna- eðli sínu um mannlega hegðun. Taldi hana fullnægja listrænum þörfum sem fyrst og síðast snérust um að skapa. Tónlistina vefur hann inn í verkin og frjó- ustu stundirnar í leikhúsi segir hann vera þær að sitja einn í salnum með autt svið fyrir framan sig og kompónera í tómarýminu. Kannski er það þess vegna sem mér þykja leik- verkin hans svo myndræn? Eða er það vegna þess að málverk- in, teikningarnar, kol og krít eru hluti bernsku minnar? Vænst þykir mér auðvitað um blýantsteikningu af Öddu 3ja ára, og málverkið frá Hálsi það- an sem fyrstu minningarnar eru. Á því kjagar sú stutta upp túnið með hendur fyrir aftan bak. Fyrir mér var Oddur alltaf teiknari. Teiknari sem skipti um miðil. Guðríður Adda Ragnarsdóttir. Oddur Björnsson  Fleiri minningargreinar um Odd Björnsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Okkar ástkæri VILHJÁLMUR GRÍMSSON tæknifræðingur sem lést laugardaginn 12. nóvember, var jarðsunginn föstudaginn 18. nóvember. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, Vigdís Pálsdóttir, Páll Vilhjálmsson, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Garðar Vilhjálmsson, Inga María Vilhjálmsdóttir, ✝ Við sendum innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar elskulegu dóttur, systur og stjúpsystur, ELVU ÝRAR ÓSKARSDÓTTUR, Eyrarflöt 10, Siglufirði. Elín Björg Jónsdóttir, Óli Andrés Agnarsson, Óskar Ingólfsson, Áslaug Melax, Gunnar Örn Óskarsson, Jón Einar Ólason, Þórir Ólason, Ástrós Óladóttir, Viktor Ólason, Birnir Ólason og aðrir ástvinir. ✝ Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐJÓN TÓMASSON, Kleppsvegi 62, áður Álftamýri 53, lést á Landspítalanum mánudaginn 21. nóv- ember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 2. desember kl. 13.00. Sigríður Guðjónsdóttir, Jón Ingvarsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Guðjón Axel Guðjónsson, Katrín Björk Eyvindsdóttir, Kristín Laufey Guðjónsdóttir, Óðinn Vignir Jónasson, Kristmann Óskarsson, Bergljót Hermundsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.