Morgunblaðið - 07.12.2011, Side 1

Morgunblaðið - 07.12.2011, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. D E S E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  287. tölublað  99. árgangur  Girnilegar uppskriftir á www.jolamjolk.is dagar til jóla 17 MATARHAMINGJA FRÁ JAPAN OG SUÐUR-AMERÍKU BÓK ÚR DRAUMI SEM MIG HAFÐI EKKI DREYMT ÁST HANS Á TÓNLISTINNI ER DRIFKRAFTURINN STEIDL GEFUR ÚT BÓK ORRA 30 GULLVAGNINN 32SUSHISAMBA 10  Indverskur fjárfestir, Bala Kamallakharan, hyggst byggja upp ferðaþjón- ustu á jörðinni Skálabrekku í Þingvallasveit. Kamallakharan er giftur ís- lenskri konu og er íslenskur rík- isborgari og þurfti því ekki að sækja um leyfi til innanríkisráðu- neytisins um undanþágu frá lögum um jarðakaup útlendinga. Verið er að vinna að skipulagstil- lögu um framkvæmdir á jörðinni sem er um 500 hektarar. »9 Indverskur fjárfestir hyggur á ferðaþjón- ustu í Skálabrekku Kostur Jörðin er við Þingvallavatn.  Fimm Íslendingar starfa hjá fyrirtæki í Kaliforníu, Conexant, sem þróaði hugbúnað í ódýrustu spjaldtölvu í heimi, en hún er komin á markað á Indlandi og kostar þar að jafnaði 7.000 krónur. Sverrir Ólafsson framkvæmdastjóri stýrði þróun hugbúnaðarins fyrir spjald- tölvuna. Conexant var með útibú á Íslandi 1994-2006. »4 Þróuðu hugbúnað í ódýrustu tölvuna Þegar almennilegt frost gerir í Reykjavík er vatn látið renna niður með veggjum gamals súrheysturns í Gufunesi, með þeim afleiðingum að turninn klæðist klakabrynju. Þessar að- stæður nýttu undanfarar úr Björgunarsveitinni Ársæli í gær, þ.á m. Viktor Guðnason. Morgunblaðið/Kristinn Frostið getur komið sér vel Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Mistök við tölvupóstsendingu með boði um þátttöku í rannsókn á vegum Háskóla Íslands urðu til þess að 158 netföng fólks sem meðal annars hafði sótt þjónustu á bráðamóttöku eða göngudeild geðsviðs eða kvennadeild- ar Landspítalans voru send öllum á póstlistanum. Rannsóknin mun hafa náð til nokk- ur hundruð einstaklinga og var hún send á alla þá sem höfðu sótt sér fyrr- greinda þjónustu á ákveðnu tímabili. Tilgangur var að kanna hvort fólk hefði orðið fyrir ofbeldi í nánum sam- böndum eða ekki. „Við hörmum mjög að Háskóli Ís- lands skyldi gera þessi mistök. Það eru mannleg mistök sem verða þessa valdandi og það er mjög miður að þetta skyldi gerast,“ segir Páll Matt- híasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. Hann hafði strax sam- band við Vísindasiðanefnd þegar hann frétti af málinu í gær og þar á bæ stendur til að fara yfir allar reglur og verkferla í tengslum við slíkar rannsóknir. Umræddir 158 einstaklingar fengu tölvupóst frá aðstandendum rann- sóknarinnar í gær þar sem málið var harmað og viðkomandi beðnir afsök- unar. Í bréfinu er bent á að opinber umræða auki enn hættuna á því að persónuvernd þeirra sem fengu könn- unina verði ekki virt. „Við vonum að fólk sem fékk tölvupóstinn finni ekki hvöt hjá sér til að reyna að komast að því hverjar persónurnar eru á bak við [netföngin],“ segir þar einnig. Dreifðu netföngum  Fyrir mistök var netföngum á annað hundrað manns sem höfðu leitað sér heil- brigðisþjónustu dreift á alla sem voru á póstlistanum  Mannleg mistök hörmuð Netfangamál » Miklar umræður urðu á net- inu í gær um málið að frum- kvæði fólks sem hafði verið beðið að taka þátt í rannsókn- inni. » Kvartað hefur verið yfir mál- inu við Persónuvernd og er málið í skoðun hjá stofnuninni.  Öllum Þingeyingum sem eru 55 ára eða eldri verður boðið upp á ókeypis ristilspeglun á næsta ári, þar sem skimað verður eftir rist- ilkrabbameini. Um er að ræða átak á vegum Lionsklúbbs Húsavíkur og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Verkefnið á að standa yfir í fimm ár og búið er að senda fyrsta hópn- um, fólki fæddu 1957, sérstakt boðsbréf um ristilspeglun. »14 Þingeyskt átak í ristilspeglun Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Ég fyrir mitt leyti ætla ekki að grafa undan fjárveitingum til Fjármálaeftirlitsins. Það verða aðrir að gera það. Og ef menn vilja veikja grundvöll Fjármála- eftirlitsins til þess að sinna sinni vinnu og standa í þeim rann- sóknum sem nú standa yfir þá finnst mér að menn eigi bara að segja það,“ sagði Árni Páll Árna- son, efnahags- og viðskiptaráð- herra, í umræðum á Alþingi í gær þar sem rætt var um fjárveit- ingar til Fjármálaeftirlitsins. Sagði hann ágreining vera á milli síns ráðuneytis og fjár- málaráðuneytisins um málið. Ríkislögmaður hefði komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að rýra fjárveitingu til Fjármálaeftirlitsins frá því sem segði í lögum um stofnunina með annarri lagasetningu og þar með talið fjárlögum. „Ef menn vilja breyta því þá verða menn að breyta löggjafar- umhverfi fjármálaeftirlitsins,“ sagði Árni. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, spurði Árna Pál hvers vegna fjár- málaráðherra væri að tefja málið og hvað lægi að baki því og svaraði hann því til að hann gæti „í sjálfu sér ekki útskýrt það“. Fjárlagaskrifstofa fjármála- ráðuneytisins teldi að fjárveitingar til Fjármálaeft- irlitsins ættu að falla undir hefðbundna aðferða- fræði ríkisfjármála. „Það er auðvitað sjónarmið út af fyrir sig. Ég tel eðlilegra að um það sé annars konar samtal en að frumvörp séu tekin í gíslingu og kostnaðarmat sé notað til þess að koma slíkum sjónarmiðum á fram- færi,“ sagði Árni Páll að lokum í svari sínu til Guð- laugs Þórs. »18 Frumvarp- ið tekið í gíslingu  Árni Páll skaut föstum skotum á fjármálaráðherra Árni Páll Árnason Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.