Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 12
FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Þetta var eitt af þeim stóru málum sem við sömdum um og lái mér hver sem vill fyrir að nota um þetta sterk lýsingarorð, vegna þess að ég er bú- inn að reyna að eiga þessar samræð- ur við ríkisstjórnina síðan í septem- ber og það gengur ekkert að koma þeim í skilning um að þetta er for- senduákvæði,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti Alþýðusambands- ins. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og Guðbjartur Hann- esson velferðarráðherra hafa báðir lýst undrun á ASÍ fyrir að láta falla „óþarflega stór orð“ í gagnrýni á rík- isstjórnina og vara við því að kjara- samningum verði sagt upp í janúar. Létu þeir báðir hafa eftir sér í gær ríkisstjórnin hafi staðið ríkulega við sín loforð og skilað kjarabótum til bótaþega eftir ýmsum leiðum. Því þurfi að skoða heildarmyndina. Gylfi segir hins vegar að þótt stjórnvöld hafi valið að standa ríku- lega við fyrstu liði kjarasamninga þýði það ekki að gefa megi afslátt gagnvart öðrum. „Ef menn vilja gera betur en umsamdar hækkanir um lágmarkskjör kveða á um þá má það og við hvetjum til þess. Hluti launa- fólks fékk meiri hækkanir en um var samið, en það gefur ekki rétt til að skerða næstu hækkun.“ Í kjarasamningunum í sumar samþykktu stjórnvöld að endur- skoða bætur almannatrygginga. ASÍ vildi þá binda í samning upp- hæðina 11 þúsund krónur, í sam- ræmi við hækkun lágmarks- taxta. Þetta vildu stjórnvöld hins vegar ekki heldur lögðu til orðalagið að bætur skyldu endurskoðaðar „með hlið- sjón af niðurstöðum kjara- samninga milli ASÍ og SA“. Það orðalag virðist mega túlka nokkuð vítt, því í fjárlagafrum- varpinu nú er gert ráð fyrir að hækk- un lægstu bóta taki mið af 3,5% hækkunum milli- og hátekjuhópa. Gylfi segir að sér virðist sem stjórnvöld hafi frá upphafi viljað slá varnagla við samkomulaginu. Þar með sé ein forsenda samninganna brostin. „Við höfðum ákveðnar efa- semdir um heilindi ríkisstjórnarinn- ar til þess að efna þetta og því miður reyndust þær vera á rökum reistar.“ Endurskoðun kjarasamninga á að vera lokið 20. janúar. Gylfi segist nú munu funda með sínum félagsmönn- um. „Ég hef ekki umboð til að segja upp kjarasamningum, en mínir fé- lagsmenn greiddu atkvæði með samningunum meðal annars út af þessu og ég verð að leita til þeirra um hvað þeir vilja gera núna, þegar þetta hefur verið svikið.“ Segir ríkisstjórnina svíkja forsendu kjarasamninga  ASÍ gagnrýnt fyrir stór orð  Samningar lausir að nýju í janúar að óbreyttu Morgunblaðið/Ernir Fiskvinnsla Jöfnun lífeyrisréttinda var eitt af megin viðfangsefnum kjarasamninganna sem náðust síðasta sumar. Auk skerðinga á hækkun bóta gagnrýnir ASÍ fyrirætlanir ríkis- stjórnarinnar um að leggja beinar álögur á lífeyrissjóðina, sem muni óhjákvæmilega skerða lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði. ASÍ bendir á að á sama tíma muni lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna standa óbreytt eða aukast. Samanlagt muni þessar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar því ekki aðeins leiða til þess að markmið kjarasamninga um að jafna lífeyrisréttindi náist ekki, heldur muni bilið milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins aukast verulega. Samiðn, samband iðnfélaga, gagnrýnir einnig skattlagn- ingu á eignir lífeyrissjóðanna og segir hana stríða gegn sátt kynslóðanna um að fólk greiði í sjóði til að mæta kostnaði þegar það hverfi af vinnumarkaði, en lífeyrir þess sé ekki eingöngu fjármagnaður af samtímasköttum þeirra yngri. Gagnrýna álögur á lífeyrissjóði REIKNINGUR SENDUR Á BÖRN FRAMTÍÐARINNAR Gylfi Arnbjörnsson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011 Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Sigríður Eyrún Friðriksdóttir fékk nýverið verkefnastyrk frá Félagsstofnun stúdenta til að vinna lokaverkefnið sitt við Háskóla Íslands en hún mun ljúka námi í grunnskólakenn- arafræðum, með sérhæfingu í ensku, í vor. Hún er menntaður leikari og mun lokaverk- efni hennar snúast um hvernig hægt er að nýta leiklist, trúða- og spunatækni til að fá grunnskólabörn til að slaka á og hafa gaman af enskukennslu. „Ég fékk þessa hugmynd af því ég fór út til Bretlands í leiklistarnám með þessa al- mennu enskukunnáttu, eins og allir Íslend- ingar. Mér fannst ég alltaf vera að breyta um karakter þegar ég talaði annað tungumál, fannst ég aldrei vera ég sjálf. T.d. finnst mér ég kannski dálítið fyndin á íslensku en ekki neitt sérstaklega á ensku,“ segir Sigríður. Mistökunum fagnað Henni datt í hug að hægt væri að nýta trúða- og spunatækni, sem hún notaði sjálf í leiklistinni, til að hjálpa börnum að slaka á og læra að það sé í lagi að gera mistök, sérstak- lega þegar verið er að læra eitthvað nýtt. „Trúðatæknin snýst m.a. um að fagna mistök- um og það er gott að gera mistök því það hjálpar manni að sjá hvað maður þarf að laga.“ Sigríður segist ætla að nýta trúðatæknina og spunaleiki til að fá börnin til að slaka á. „Það er ekkert nýtt að reyna að gera kennsl- una skemmtilega en grunnurinn er að finna trúðinn í sjálfum sér þannig að börnin slappi af, finni sjálf sig og hvað það er sem gerir þau að manneskjunum sem þau eru. Eftir það er hægt að fara í spunaæfingar og ýmsa leiki.“ Í enskutímum sé lögð áhersla á að fá börn til að tala en það sé yfirleitt með því að láta þau lesa tilbúinn texta sem hljómi ekki mjög af- slappaður og eðlilegur þegar hann er lesinn upphátt. „Með spunaleikjum myndu börnin búa til sínar eigin senur með orðum sem þau myndu frekar nota og kennarinn myndi leið- beina þeim áfram.“ Sigríður mun í vor vinna með börnum í 3. og 4. bekk í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Hún mun taka viðtöl fyrir og eftir að hún beitir trúða- og spunatækninni til að kenna þeim ensku og kanna hvort viðhorf þeirra til ensku- kennslu hafi breyst, sem og hvernig þeim finn- ist að tala erlent mál og hvort þau séu hrædd við að tala annað mál fyrir framan fólk. Að- spurð segir hún nemendur á þessum aldri ekki of unga til að læra ensku gegnum spuna. „Þeg- ar ég var í æfingakennslu þá kom ég inn í 3. bekk í Hofsstaðaskóla og mér var eiginlega brugðið hvað þau eru flink. Enskan er úti um allt,“ segir Sigríður að lokum. Trúðatækni nýtt til að kenna ensku  Trúða- og spunatækni fær grunnskólabörn til að slaka á og hafa gaman af enskukennslu  Kennir þeim að það sé í lagi að gera mistök, sérstaklega þegar verið er að læra eitthvað nýtt Morgunblaðið/Kristinn Trúða- og spunatækni Sigríður Eyrún Friðriksdóttir er að þróa nýja aðferð í enskukennslu. Leikur og kennir leik » Sigríður Eyrún lærði leiklist í Bret- landi og vann svo lengi í Toronto í Kan- ada sem leikari, auk þess sem hún kenndi börnum leiklist í leikhúsinu Lor- raine Kimsa Theater For Young People. » Meðfram náminu hér hefur hún unnið sem leikari, talsett teiknimyndir, kennt söng hjá Söngskóla Margrétar Eirar og kennt grunnskólabörnum leik- list í Leynileikhúsinu. Hótel Edda, sem heyrir undir Ice- landair Hotels, hyggur ekki á hót- elrekstur á Eiðum næsta sumar líkt og undanfarin ár en samningur fyr- irtækisins við eigendur Eiða rann út á þessu ári og verður ekki endurnýj- aður. Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, seg- ir þó ekki útséð um hótelrekstur á Eiðum næsta vor. „Við bara fylgjumst með í róleg- heitum í bili, bíðum og sjáum til hvort það verði ekki aðrir aðilar sem taki við,“ segir Stefán Bogi. Bæjarstjórn hafi haft fregnir af mögulegum þreif- ingum en hafi ekki frekari upplýs- ingar um málið. Athafnamennirnir Sigurjón Sig- hvatsson og Sigurður Gísli Pálmason keyptu mennta- og menningarsetrið Eiða árið 2001 og í kjölfarið var gerð- ur samningur við sveitarfélagið um starfsemi og uppbyggingu á svæðinu. Ýmsar hugmyndir voru um nýtingu staðarins, m.a. að þar yrði starfrækt sviðslistahús, umhverfislistagarður, menntasetur með námskeiðahaldi og alþjóðleg vatnsrannsóknastofnun. „Það eru orðin nokkur ár síðan þessi samningur var gerður og það eru sjálfsagt misjafnar skoðanir á því hvernig efndir hafa verið á þeim skil- málum sem voru settir,“ segir Stefán Bogi. Sveitarfélagið sé þó fyrst og fremst í áhorfendahlutverki en setji sig í samband við eigendur þegar góðar hugmyndir um starfsemi á staðnum koma upp. holmfridur@mbl.is Óvissa um hótelrekstur Ekkert Eddu-hótel á Eiðum næsta sumar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Eiðar Óvissa ríkir um hótelrekstur á Eiðum næsta sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.