Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 15

Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011 Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Beinagrind steypireyðarinnar sem rak á land á Skaga í ágúst 2010 hefur verið nær alveg hreinsuð en ekki hefur fundist húsnæði undir hana. Ríkisstjórnin ákvað í síðustu viku að veita þrjár milljónir króna til að koma beinagrindinni í við- unandi geymsluhúsnæði í 2-3 ár til að ljúka hreinsun beinanna og undirbúa forvörn þeirra. Jafnframt var ákveðið að á geymslutímanum mundi mennta- og menningarmálaráðuneyti, að höfðu samráði við umhverfisráðu- neyti, Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) og Náttúruminjasafn Íslands, kanna kosti þess að gera sam- komulag við Hvalasafnið á Húsavík um uppsetningu og ótímabundna varðveislu beinagrindarinnar þar til Náttúruminjasafn Íslands verður komið í framtíðarhúsnæði. Verulegt fræðslugildi Beinagrindin er sem stendur í húsnæði NÍ í Garðabæ og þar er beðið eftir að koma henni í geymslu. „Það er búið að eyða miklum peningum og vinnu í að hreinsa hana. Beinagrindina verður að geyma á góðum stað þar til hægt verður að setja hana upp í heilu lagi,“ segir Þorvaldur Þór Björnsson hjá NÍ. Samþykkt var á ríkisstjórnar- fundi haustið 2010 að varðveita beinagrind steypireyðarinnar þar sem engin slík væri til hér á landi og örfáar í heiminum öllum. Því væri rannsókna-, sýninga- og fræðslugildi verulegt. Ákveðið var að verja tveimur milljónum króna til að ná beinagrindinni og verka hana til geymslu hjá NÍ. Að sögn Þorvaldar dugði sú upphæð rétt svo til að leigja vinnuvélar til að draga steypireyðina úr flæðarmál- inu og koma henni í hvalstöðina í Hvalfirði. Dýr uppsetning Mikið starf er hinsvegar fyrir höndum við að laga beinin. „Beinin eru sum svo frauðkennd að það þarf að laga þau, sérstaklega haus- kúpuna. Hún er svo stór og mikil að það þarf að byggja hana alla upp aftur áður en hún verður sett upp,“ segir Þorvaldur. Eftir er að koma í ljós hvort milljónirnar þrjár frá ríkisstjórn- inni nægi til að standa straum af kostnaði við geymsluna og frekari vinnu við beinin. Þær eru ekki ætl- aðar til að greiða fyrir uppsetningu beinagrindarinnar sem Þorvaldur segir víst að muni reynast dýr. „Ég hef nokkrar áætlanir sem hljóða upp á nokkrar milljónir. Það er erf- itt að segja til um kostnaðinn þar sem hann fer eftir því hvort beina- grindin verður hengd upp eða sett á gólf. Það þarf járngrindur og fleira til að halda beinagrindinni uppi en hún er fjögurra metra há frá rifbeini og upp í tind á bak- hrygg. Kostnaðurinn fer eftir efn- unum sem verða keypt til að byggja beinin upp aftur og víra- virkinu sem þarf að nota.“ Nauðsyn að koma beinagrind í geymslu  Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita þrjár milljónir króna til að koma beinagrind steypireyðar í geymsluhúsnæði  Mikið og kostnaðarsamt starf fyrir höndum að laga frauðkennd beinin Ljósmynd/Valur Örn Þorvaldsson Mikið verk Steypireyðurin var 25 metrar að lengd og yfir 100 tonn að þyngd og því var mikið verk að skera kjötið utan af henni og flytja hana í Hvalfjörð. Ljósmynd/Valur Örn Þorvaldsson Bein Beinagrindin er stór og mikil enda af stærsta spendýri jarðar. Í september 2010 var steypireyðurin dregin úr flæðarmálinu við eyðibýlið Ásbúð á Skaga með stórvirkum vinnuvélum en hún var 25 metrar að lengd og yfir 100 tonn að þyngd. Kjötið var skorið utan af henni og hún svo flutt í hvalstöðina í Hvalfirði þar sem beinagrindin var hreinsuð. Í nóvember var byrjað að sjóða beinin til að ná öllu kjötinu utan af þeim og til að ná fitunni úr beinunum. „Það var sett heitt vatn á beinagrindina tvisvar í viku allan síðasta vetur til að ná fitunni úr en beinin eru gríð- arstór og mikil. Kjálkinn er um sex metra langur og stærstu rifbeinin um þrír metrar að lengd,“ segir Þorvaldur og vill koma því á framfæri að hann sé afar þakklátur Kristjáni Loftssyni fyrir að veita sér aðstöðuna í hvalstöðinni. Í apríl var beinagrindin orðin nánast laus við fitu og 1. maí flutti Þorvaldur hana í húsnæði NÍ. Steypireyður er stærsta dýrið sem lif- að hefur á jörðinni svo vitað sé. Hún getur orðið rúmlega 30 metra löng og vegið frá 110-190 tonn. Sex metra langur kjálki LANGT FERLI AÐ HREINSA BEINAGRINDINA Tannlæknafélag Íslands varar ein- dregið við tannlýsingarmeðferð sem veitt er af ófaglærðum ein- staklingum. Gagnrýnir félagið heil- brigðisyfirvöld fyrir að hafa ekkert aðhafst í málinu þrátt fyrir ítrek- aðar ábendingar tannlækna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í gær. Seg- ir þar að mjög sterk tannlýsingar- efni séu notuð í þessum meðferðum. Þá séu vísbendingar um að ljós sem sé notað geti valdið varanlegum skemmdum á kviku tanna. Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu skilur emb- ættið áhyggjur tannlækna. Því hafi borist ýmsar ábendingar og fyrir- spurnir um tannhvítun. Hins vegar heyri það ekki undir eftirlitssvið embættisins og engin lög banni notkun efnanna sem flokkist sem snyrtivara. Ekki sé lofað lækningu við meðferðina svo hún heyri ekki undir læknalög. Vísar embættið á Umhverfisstofnun um eftirlit með meðferðinni. kjartan@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Tannhvítun geti skaðað kviku tanna Jólaball Rafiðnaðarsambands Íslands 2011 Jólaball RSÍ 2011 verður haldið í Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2, sunnudaginn 18. desember kl. 14 – 16 Veitingar Hljómsveit hússins Jólasveinar Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: svava@rafis.is eða í síma 580‐5226 til 16. desember á milli kl. 9 – 16 Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir alla. Greitt við inngang. RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.