Morgunblaðið - 07.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.12.2011, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Almenningurer magnaðfyrirbæri og mjög breytilegt. Mótmæli hann lít- ur hann út sem lýður, sem yfir- völd hafa gætur á. Seðla- bankar láta reglubundið mæla almenning sem neytanda og þegar hann spýtir í sem slíkur verður fögnuður í kauphöllum og bréf hækka í verði. Það ger- ist þótt kaupæði neytandans hafi einkum beinst að óbrúk- legu rusli. En fótanuddtæki og önnur uppátæki almennings eru hagvaxtarvæn um stund, en fara síðar illa í viðskipta- jöfnuðinn og skapa gengisóróa. Og almenningur er véfrétt nútímans. Seðlabankarnir, þ.m.t. sá íslenski, leita þar svara og greiða fyrirtækjum fúlgur fyrir að mæla „vænt- ingar almennings“ og sérfræð- ingar láta væntingavísitölur sem þannig fást verpast í myndir á grafi sem þeir rýna í og skrifa um langt mál. Grafið hefur svo áhrif á vaxtaákvarð- anir og spár sem birtar eru með viðhöfn og standast sjald- an, sem er þá almenningi að kenna. Allt rúmast þetta innan hagvísindalegrar starfsemi. Á fárra ára fresti breytist al- menningur í kjósendur og þá hækka hlutabréfin í honum. Flokkarnir láta mæla hvernig kjósandagen almennings eru stemmd og laga loforð sín að því. Slík nálgun á kjósandann hefur stundum endað verr en væntinga- vísitalan. Almenningur er ekki endi- lega yfir sig trúaður nema þá helst í farþegaþotu í 30 þúsund feta hæð í miklum hristingi. Við þær aðstæður fækkar vantrúuðum niður í næstum ekki neinn. Það eru helst fullu karlarnir sem láta almættið eiga sig við þær aðstæður. Þegar almenningur er lentur og fer í kirkjur á stórhátíðum og jarðarförum verður hann söfnuður í klukkutíma. Og ein- hvern daginn verður hann sjúklingur og með áberandi hætti sést þá að hann sé nú „eign þvottahúss ríkisspítal- anna“. Þegar ekki verður þverfótað fyrir einkabifreiðum á göt- unum er almenningur þó ekki á ferð. Hann tilheyrir almenn- ingssamgöngum, jafnvel þótt hann sé eini farþeginn í löngum köldum bíl. Fari far- þeginn í vagninum að syngja er þó ekki víst að þá heyrist al- mannarómur, né heldur að skoðun farþegans sé almenn- ingsálitið sjálft, sem stjórn- málamenn þykjast iðulega hafa umboð fyrir. En þeir ættu að gæta sín. Þótt almenningur sé karlkyns vill hann alls ekki láta taka sig eins og sjálfsagð- an hlut. Almenningur er ekki alltaf almennilegur}Almenningur leynir á sér Iðnaðarráðherrasagði í gær að mikilvægt væri að Ísland kæmist út úr því matskennda umhverfi sem ríkti um þessar mundir. Ummælin féllu á fundi um erlenda fjárfestingu og ráðherrann vildi á þennan hátt skýra skort á erlendum fjárfestingum. Nú er það auðvitað svo að rekstrarumhverfi fyrirtækja þarf að vera skýrt til að fjár- festar hafi áhuga á að setja upp ný fyrirtæki eða auka við rekstur þeirra sem fyrir eru. En er „matskennt umhverfi“ það sem helst fælir fjárfesta frá Íslandi? Með orðum sínum er iðn- aðarráðherra vafalítið að senda innanríkisráðherra enn eina pilluna fyrir að hann skuli hafa farið að lögum vegna umsóknar um stórfelld landakaup erlends fyrirtækis. Í ljós hefur komið að tals- mönnum Samfylkingarinnar þykir óhæfa að farið sé að lög- um þegar tilteknir fjárfestar eiga í hlut og er þetta bæði gamalt vandamál og nýtt hvað þenn- an stjórnmála- flokk snertir. Vitaskuld er það ekki „matskennt umhverfi“ sem fælir frá. Vandinn hér á landi þegar kemur að er- lendri fjárfestingu er fjand- samlegt umhverfi fjárfestum. Og þetta gildir ekki aðeins um erlenda fjárfesta, heldur alla fjárfesta. Ríkisstjórnin hefur með ýmsum hætti lagt steina í göt- ur þeirra sem vilja byggja upp íslenskt atvinnulíf. Sjávar- útvegurinn hefur orðið hvað verst fyrir barðinu á þessari stefnu og stórnotendur raf- orku hafa fengið sinn skerf af fjandskapnum. En almennur fjandskapur í garð atvinnu- lífsins sem sést best á ótrú- legri uppfinningasemi þegar kemur að nýjum og hækk- uðum sköttum, auk þess sem stjórnvöld hafa sýnt að þeim er fyrirmunað að standa við gerða samninga, er það sem vegur líklega þyngst í því að fæla fjárfesta frá Íslandi. Ráðherrar verða að skilja að það er hin almenna stjórnar- stefna sem fælir fjárfesta frá landinu} Almennur fjandskapur F rægt var haustið 1995 þegar Vigdís Finnbogadóttir, þá forseti, lét þau orð falla í heimsókn til alræðisrík- isins Kína að frelsi væri afstætt, en við sama tækifæri gagnrýndi hún konur sem mótmæltu afskiptum kín- verskra stjórnvalda af óháðri kvennaráðstefnu sem haldin var um líkt leyti. Nú ætla ég ekki að ræða ummæli Vigdísar frekar, bendi á að hún svaraði gagnrýni á þau ummæli nokkuð ítar- lega á sínum tíma, heldur fannst mér þá for- vitnilegt og finnst enn að einhverjum finnist sem frelsi og mannréttindi geti verið afstæð. Við þekkjum öll frammámenn í viðskiptalíf- inu sem berjast fyrir viðskiptafrelsi nema þeg- ar það kemur að þeirra eigin umhverfi, þá er sjálfsagt að settar séu hömlur við samkeppni og þeir styrktir af almannafé. Það kallast pils- faldakapítalismi og hefur verið ríkjandi hugmyndafræði í starfi stórra stjórnmálahreyfinga á Íslandi árum saman, nefni sem dæmi Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Samfylkinguna. Á síðustu árum hefur og borið á annarri gerð af afstæð- ishyggju sem snýr að mannréttindum og kalla má pils- faldamannréttindi. Af áberandi fyrirbærum sem stunda slíkt má nefna hina lútersk-evangelísku þjóðkirkju, eins og sannast hefur að undanförnu, og svo samtök sem kenna sig við Vantrú og eru með helstu gagnrýnendum téðrar þjóðkirkju. Trúarbrögð og umburðarlyndi eiga sjaldnast samleið, enda er það eðli þeirra sem höndlað hafa sann- leikann að líta hornauga þá sem ekki sjá heim- inn sömu augum og þaðan er stutt í fordóma. Við sjáum það til að mynda í kristni hvernig trúin hefur verið uppspretta gyðingahaturs sem náði hroðalegu hámarki um miðja síðustu öld, einnig kvenfyrirlitningar og fordóma gegn samkynhneigðum sem eru hvergi eins miklir og þar sem trúin er sterkust. Með öldunum hefur umburðarlyndi þó aukist í kristni og er svo komið að það er orðið býsna gott, en nær þó ekki alla leið. Þjóðkirkjan er nefnilega bara sátt við þau mannréttindaákvæði sem hún þarf ekki að gangast undir, eins og sjá má af um- ræðu um trúboð í skólum undanfarna mánuði. Vantrú er félagsskapur sem barist hefur gegn trúarkreddum ýmiskonar, þar með talið kristinni trú. Í þeim efnum hefur félagsskap- urinn beitt ýmsum meðulum og orðið vel ágengt, bæði með því að berjast gegn trúboði í skólum og að vekja at- hygli á forskoti því sem þjóðkirkjan hefur fram yfir önnur trúfélög og kalla má óðeðlilegt í nútímasamfélagi, í það minnsta í augum þeirra sem telja mannréttindi algild en ekki afstæð. Í baráttu sinni hefur Vantrúarmönnum hins- vegar svo sollið móður að þeir hafa unnið málstað sínum mikinn skaða – þeir hafa sýnt að til þess að berjast fyrir auknum mannréttindum eru þeir til í að fórna mannrétt- indum þeirra sem ekki eru sammála þeim. Fyrir vikið skipa þeir sér sér á bekk með þjóðkirkjunni og öðrum þeim sem iðka pilsfaldamannréttindi. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Af pilsfaldamannréttindum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Launin lækkuðu eftir hrun en hækkuðu á ný FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Launakostnaður vegnastjórnarmanna í Fjármála-eftirlitinu hefur hækkað úr12,7 milljónum árið 2007 í 24 milljónir á næsta ári. Stjórnar- menn fá í dag 200 þúsund krónur á mánuði í laun, en stjórnarformað- urinn fær 600 þúsund krónur í laun. Laun hans voru hækkuð á árinu 2009 úr 220 þúsund krónum í 600 þúsund krónur. Umræða um launakjör þeirra sem sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins hófust eftir að efnahags- og við- skiptaráðherra lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í greinargerð með frumvarpinu sagði: „Efnahags- og viðskiptaráðherra ákvarðar þóknun stjórnarmanna og að óbreyttu verður hún 24 millj. kr. á árinu 2012, sam- anborið við 13,5 millj. kr. í upphaf- legri áætlun ársins 2011. Ákvörðun ráðherra grundvallast á mati á tíðni og tímalengd funda, samanburði við þóknun stjórna eftirlitsskyldra aðila, þeim viðamiklu takmörkunum sem stjórnarmenn sæta til öflunar ann- arra tekna og hæfniskröfum sem þeir þurfa að uppfylla.“ Síðar hefur komið fram að ákvörðun um breytingu á launum stjórnarmanna var síðast tekin haust- ið 2010, degi áður en nýr ráðherra settist í efnahags- og viðskiptaráðu- neytið. Samt rata þessar upplýsingar fyrst fyrir sjónir almennings vegna fjárveitinga til FME árið 2012. Launin hækkuðu úr 220 þúsund í 600 þúsund En hver eru laun þeirra sem sitja í stjórn FME? Stjórnarformað- urinn er með 600 þúsund krónur á mánuði, en aðrir eru með 200 þúsund krónur. Launin voru í ársbyrjun 2007 120 þúsund krónur á mánuði og stjórnarformaður var með 240 þús- und krónur. Launin voru hækkuð myndarlega 1. október 2008, um svip- að leyti og bankarnir voru að falla. Þá voru laun stjórnarmanna 260 þúsund og laun stjórnarformanns 520 þúsund krónur á mánuði. Launin voru þrí- vegis lækkuð á árinu 2009 og voru haustið 2009 komin niður í 110 þús- und krónur (stjórnarformaður með 220 þúsund). Hinn 1. september 2010 voru laun stjórnarformanns hækkuð úr 220 þúsund í 600 þúsund á mánuði og gilti hækkunin afturvirkt til 1. mars. Þetta er 172% hækkun. Þau hafa ver- ið óbreytt síðan. Laun almennra stjórnarmanna voru hækkuð 1. apríl- úr 110 þúsund í 140 þúsund og 1. september í 200 þúsund. Síðan hefur einvörðungu verið gerð sú breyting að laun varamanna í stjórn eru nú þau sömu og laun aðalmanna. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hefur engin breyting verið gerð á launum stjórn- armanna í FME frá ársbyrjun 2011 og ekki er fyrirhugað að gera neina breytingu á laununum á næsta ári. Heildarlaunakostnaður vegna stjórnarmanna í FME var 12,7 millj- ónir árið 2008, 12 milljónir vegna 2009, 14,5 milljónir vegna 2010, 22,6 milljónir vegna 2011 og áætlaður kostnaður vegna ársins 2012 er 24 milljónir. Samkvæmt þessu hækkar launakostnaðurinn frá 2010 til 2012 um 65%. Samkvæmt ársskýrslu Lands- banka fyrir árið 2010 fékk stjórnar- formaður bankans um 440 þúsund krónur í laun á mánuði. Almennir stjórnarmenn í Landsbanka eru með 250 þúsund krónur í laun á mánuði. Stjórnarmenn í Íslandsbanka eru með 350 þúsund krónur í laun á mánuði, en stjórnarformaðurinn er með 525 þúsund á mánuði. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fjármálaeftirlitið Það hefur verið nóg að gera hjá stjórn Fjármálaeftirlits- ins síðustu árin. Laun stjórnarmanna hækkuðu árið 2009. „Við þetta er því að bæta að stjórn FME hefur undanfarin ár haft mikla sérstöðu í saman- burði við aðrar stjórnir stofnana hjá hinu opinbera. Álag á stjórn- armenn, eins og raunar starfs- menn stofnunarinnar, hefur ver- ið gríðarlegt. Þann tíma sem ég var ráðherra fundaði stjórnin þannig vel á annað hundrað sinnum, sem gerði um 6,5 fundi að meðaltali á mánuði. Fundir eru oft langir og fyrir liggur mikið magn gagna sem stjórn- armenn þurfa að kynna sér fyrir fundi. Það er því í mínum huga enginn vafi á því að þeir sem hafa tekið að sér þetta starf hafa þurft að vinna fyrir kaup- inu sínu.“ Þetta segir Gylfi Magnússon, fyrrverandi efnahags- og við- skiptaráðherra, í yfirlýsingu þar sem hann útskýrir þær breyt- ingar sem gerðar hafa verið á launum stjórnarmanna í Fjár- málaeftirlitinu. Hafa unnið fyrir kaupinu GYLFI MAGNÚSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.