SunnudagsMogginn - 18.12.2011, Síða 14
14 18. desember 2011
Með kveðju frá Íslandi
Það hefur verið ótrúleg gróska í hönnun hérlendis að
undanförnu og ætti enginn að fara í jólaköttinn í ár.
Hérna eru teknar fyrir flíkur sem hlýja og fegra,
hlutir sem ilma og gripir sem prýða. Hlutirnir eru
fjölbreyttir en allt er þetta alíslensk hönnun.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Listakonan Andrea Maack kynnir nú tvo nýja ilmi, Silk og Dark. Eins og fyrri ilmir
hennar eru þeir byggðir á teikningum, sem hafa verið túlkaðar í ilm. Þetta er fágaður
ilmur í fallegum flöskum. Ilmvötnin eru nú komin í dreifingu til 60 landa en á Íslandi
fást þau í Sparki við Klapparstíg. Glasið er 50 ml. og kostar 12.900 kr.
Fágaður ilmur í fallegum flöskum
„Ég gæti borðað heilan hest“ er spagettímælitæki hannað af Stefáni Pétri Sólveig-
arsyni. Það er algjör óþarfi að sjóða of mikið spagettí í kvöldmatinn og ennþá
skemmtilegra að mæla það með svona gamansömu tæki, sem hleypir lífi í hversdaginn.
Þeir allra svöngustu, eða öll fjölskyldan samankomin, geta síðan borðað heilan hest.
Spagettí hesthúsað
Go with Jan er merki hönnuðarins Guðjóns Tryggvasonar og er áherslan á fylgihluti.
Litríku þverslaufurnar úr smiðju hans eru tilvaldar til að ljá hvítu skyrtunni nýtt og
spennandi líf.
Nafnið Go with Jan er leikur að orðum en íslenska nafnið Guðjón reynist oftar en
ekki tungubrjótur þeim sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Línurnar frá Go with Jan hafa innihaldið meðal annars hanska, töskur, veski, sokka,
þverslaufur og hálsklúta. Að öllu jöfnu er aðeins takmarkað upplag gert af hverjum
hlut.
Þessi fallega slaufa fæst í Kiosk við Laugaveg og kostar 6.500 kr.
Ljósmynd/Katrin Bjork
Lífgað upp á hvítu skyrtuna
Ragnheiður Ösp Sigurð-
ardóttir er hönnuður
skemmtilegra púða sem allir
eru byggðir á hnútaforminu
og kallast Notknot. Í púð-
unum er leikið með hlutfall
og áferð hnútsins. Hann er
stækkaður til muna og
hnýttur úr fylltum ull-
arhólkum sem gera hann
mjúkan og hlýlegan. Notknot
er vélprjónaður úr íslensku
einbandi.
Þessi fæst á Birkiland.com
og kostar 19.900 kr.
Allt í hnút
Þessi bleika kanína er mikil
híbýlaprýði fyrir stóra sem
smáa en hún er úr smiðju
hönnunarteymisins Stáss, sem
gerir líka klukku í formi svans, ef það
skyldi hugnast einhverjum betur.
Klukkurnar, sem eru úr pólýhúðuðu
áli, fást í mörgum litum og kosta á
bilinu 10.900-12.900 kr. og eru m.a. til
sölu í Netagerðinni við Nýlendugötu.
Klukkuleg
kanína