Milli mála - 01.01.2013, Síða 32
32
afstöðu málnemanna hvað varðar uppbyggingu orðaforða og þjálfun
hlustunarskilnings, rúmlega 84% annars vegar og 83% hins vegar
álitu Íslenskuþorpið koma að gagni við að byggja upp þessa þætti.
Rúm 80% þátttakenda að jafnaði töldu Íslenskuþorpið hafa jákvætt
gildi við að byggja upp skilning almennt í málinu og notkun þess í
samskiptum. Loks töldu tæplega 77% að meðaltali þorpið gagnlegt
til að þjálfa framburð málsins. Niðurstöðurnar sem hér hafa komið
fram verða að teljast mjög jákvæður vitnisburður um gildi
Íslenskuþorpsins við tileinkun málsins.
Næst verður litið á niðurstöður kannananna með tilliti til þess
hvort þjálfunin í Íslenskuþorpinu hafi nýst öllum hópum jafnvel.
Eins og áður var nefnt voru sumir nemanna byrjendur í íslensku en
aðrir höfðu grunnkunnáttu í málinu þegar haldið var í Íslenskuþorpið.
Í töflu 2 eru sýndar niðurstöður úr könnunum allra námskeiðshóp-
anna á tilraunatímabili Íslenskuþorpsins og þá m.t.t. þeirra sem
höfðu jákvæða afstöðu til þorpsins, þ.e. töldu það mjög eða frekar
gagnlegt við að byggja upp nefnda færniþætti í íslensku:
Tafla 2. Hlutfall þeirra sem telja Íslenskuþorpið mjög eða frekar gagnlegt til að byggja
upp ákveðna færniþætti í íslensku m.t.t. til allra námskeiðshópa á tilraunatímabili
Íslenskuþorpsins.
Nordkurs 1 Nordkurs 2 Minneapolis Alþjóðlegt Hagnýt ’12 Hagnýt ’13
Tal 94,70% 69,20% 100,00% 100,00% 85,00% 76,50%
Sjálfsöryggi 94,70% 61,50% 100,00% 87,50% 85,00% 79,40%
Orðaforði 89,50% 61,50% 92,80% 93,80% 92,50% 76,50%
Hlustun 89,50% 69,20% 92,80% 87,50% 82,50% 76,50%
Skilningur almennt 84,20% 53,80% 100,00% 81,30% 87,50% 73,50%
Framburður 84,20% 38,40% 100,00% 87,50% 70,00% 79,40%
Ef litið er á niðurstöður kannananna úr námskeiðunum sex þar sem
stuðst var við Íslenskuþorpið á tilraunatímabilinu má sjá í töflunni
að einn hópurinn sker sig nokkuð úr þegar á heildina er litið, þ.e.
nemarnir í Nordkurs-námskeiði 2. Hlutfall þeirra sem telja
Íslenskuþorpið hafa verið mjög eða frekar gagnlegt við máltileink-
unina er nokkuð lægra hvað alla færniþættina varðar en kemur fram
hjá hinum námskeiðshópunum. Þessi niðurstaða gefur tilefni til
vangaveltna um það hvort Íslenskuþorpið gagnist betur ákveðnum
ÍSLENSKUÞORPIð