Milli mála - 01.01.2013, Page 203
203
vitað val ásamt hæfni til að ná tjáskiptamarkmiðum sínum hverju
sinni (Kohonen 2007: 268).
Á þessum þrjátíu árum hefur þróunin leitt til nýbreytni í nám-
skrám, bæði opinberum og staðbundnum. Kennsluefni hefur verið
samið fyrir mismunandi stig málþróunar og kunnáttu.7 Sjálfs mats-
ramminn, sem oftast er vitnað til og margir þekkja, er byggður á
grunni margra (undir)skala um þróun erlenda tungumálsins í mál-
tökuferli málnema. Hann nær yfir sex skilgreind færnistig, A-1,
A-2, B-1, B-2, C-1, C-2, og mælir fimm mismunandi færniþætti:
hlustun, lestur, tal, samtöl og ritun (RelEx team 2011).
Með viðmiðunarrammanum er lögð áhersla á tungumál og
tungumálanám og er litið á málnotendur sem félagsverur með
félagsmálvísindalega nálgun á notkun tungumáls og þróun þess.
Segja má að tungumálið hafi bæði lárétta og lóðrétta vídd. Lárétta
víddin nær til þeirra verkefna sem málhafinn þarf að fást við, hvort
sem um er að ræða í formlegu námi eða í málumhverfinu. Lóðrétta
víddin tekur til þess að tjáskiptahæfi og tjáskiptavirkni þróast og
eykst, sem og getan til að beita málinu á flóknari og fágaðri hátt
(Hulstijn o.fl. 2010: 12).
Viðmiðunarramminn byggir á rannsóknargögnum sem eru mik-
il að vöxtum og á grunni þeirra hafa verið gerðir margvíslegir
(undir)skalar á frönsku, ensku og þýsku og þeir verið þyngdarpróf-
aðir.8 Skalarnir eru meðal annars notaðir til að meta málnotkunar-
hæfni nema. Mat af slíku tagi gerir öllum jafnt undir höfði (sam-
ræmt mat) og er ekki lengur eingöngu bundið við Evrópu því
Bandaríkin, Kanada og Ástralía vinna einnig eftir viðmiðum af
þessu tagi (Hulstijn o.fl. 2010: 14).
Gagnlegt er að hafa matstæki sem nota má til mats á tungumála-
kunnáttu í sem víðustum skilningi þar sem allir færniþættir máls-
ins eru jafngildir. Eftirtalin rök má tilgreina sem meðmæli með
notkun þess:
• Fólk fer í æ ríkara mæli milli landa til dvalar um styttri eða lengri
tíma, góð tungumálakunnátta auðveldar aðgengi að námi og störfum
innan Evrópu.
7 Slíkt námsefni í t.d. þýsku, frönsku og spænsku er notað í framhaldsskólum á Íslandi.
8 Þyngdarprófun verkefna fer fram með svokallaðri Rasch-greiningu, forriti sem prófar með stærð-
fræðilegum hætti þyngdarstig prófa og verkefna.
ÞÓRHILDUR ODDSDÓTTIR