Milli mála - 01.01.2013, Page 328
328
milli þessara tveggja andstæðna með þessum hætti: yngstu og
hraustustu menn liðsins geymdi hann til þess að vernda land sitt og
þjóna því og sendi þá til baka. Og með þeim sem minni skaði var í
að missa ákvað hann að verja skarðið og láta óvinina kaupa sér
dýrustu inngöngu sem hann mögulega gæti með dauða þeirra:
þannig fór það. Vegna þess að innan skamms var hann umlukinn
Arkadíumönnum á alla vegu og eftir mikið blóðbað urðu hann og
allir hans menn sverðinu að bráð. Eru þau sigurlaun til sem þeir
sigruðu eiga ekki frekar skilið en sigurvegararnir? Hinn eini sanni
sigur er í bardaganum, ekki því að komast undan og heiður hug-
rekkisins felst í því að berjast, ekki að sigra.
Ef við snúum okkur aftur að sögunni okkar þá er langt frá því að
þessir fangar gefist upp þrátt fyrir allt sem þeim er gert, þvert á
móti, þessa tvo eða þrjá mánuði sem þeir eru fangar eru þeir glað-
legir, hvetja húsbændur sína til þess að drífa nú í því að leiða þá til
þrautarinnar, þeir ögra þeim, móðga og gagnrýna þá fyrir heiguls-
háttinn og alla bardagana sem þeir hafa tapað gegn óvinunum. Ég
þekki lag sem samið var af fanga þar sem segir: Megi þeir koma
allir sem einn og safnast saman til þess að eta hann vegna þess að
þeir munu samtímis eta feður sína og forfeður sem hafa nært hann
og fóðrað. „Þessir vöðvar, segir hann, þetta kjöt og þessar æðar,
þetta eru ykkar menn, vesalings aumingjarnir ykkar. Þið áttið
ykkur ekki á því að kjötið af útlimum forfeðra ykkar er þarna enn,
smjattið vel á þeim, þið munuð finna bragðið af ykkar eigin holdi.“
Þessi hugmynd er á engan hátt villimannsleg. Þeir sem mála fang-
ana þegar þeir deyja og þegar verið er að rota þá, sýna hvernig fang-
inn hrækir framan í þá sem drepa hann og ygglir sig. Það er satt að
til seinustu stundar ögra fangarnir þeim með orðum sínum og fram-
komu. Hér eru sannarlega villimenn á okkar mælikvarða vegna þess
að annað hvort er eitthvað að þeim eða okkur: Það er furðu langt á
milli þeirra lífshátta og okkar.
Karlmennirnir eiga margar konur og þeim mun fleiri sem þeir
eru þekktari fyrir dirfsku. Eitt er sérlega fallegt þegar þeir giftast
og það er að rétt eins og öfundin kemur í veg fyrir að við getum
notið ástar og umhyggju annarra kvenna þá nota konur þeirra hana
til þess að verða þeim úti um einmitt þetta tvennt. Heiður eigin-
mannanna skiptir þær meira máli en nokkuð annað og þær leggja
AF MANNÆTUM