Morgunblaðið - 06.01.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 06.01.2012, Síða 1
Reuters Brjóstapúðar Fæstar konurnar eru sáttar við að vera með iðnaðarsílikon í brjóstunum. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Um tíu íslenskar konur sem eru með sílikon- brjóstafyllingar frá franska fyrirtækinu Poly Implant Prothese (PIP) eru að skoða málsókn vegna púðanna. „Það eru um tíu konur búnar að staðfesta að þær vilji fara fram með málið en það hafa fleiri konur verið í sambandi við mig,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, hæstaréttalögmaður hjá Vox lögmannsstofu, sem rannsakar nú mál kvennanna. Eins og staðan er í dag beinist málsóknin gegn Jens Kjartanssyni lýtalækni, sem framkvæmdi allar aðgerðirnar á konunum sem um ræðir, og að íslenska ríkinu vegna eftirlitshlutverks þess. Saga átti fund með Jens í gær og kom þar fram að hann væri að vinna í því að fá samþykkt að ef umræddir púðar væru farnir að leka yrðu þeir fjarlægðir konunum að kostnaðarlausu. Saga segir sína umbjóðendur ekki sætta sig við að vera með iðnaðarsílikon í brjóstunum þrátt fyrir að púðarnir séu ekki byrjaðir að leka. PIP-fyllingarnar voru teknar af markaði í Evr- ópu í mars 2010 vegna lélegra gæða sílikonefn- isins. Framleiðslan var viðurkennd á sínum tíma en framleiðsluferlinu var breytt árið 2000 og far- ið að nota ódýrara sílikon í fyllingarnar án leyfis. Allt bendir til þess að þessar PIP-fyllingar rofni frekar en aðrar og sílikonið leki út í brjóstvefinn með tilheyrandi óþægindum. Ein af þeim konum sem leitað hafa eftir að höfða mál vegna PIP-sílikonfyllinga segist vera mjög ósátt við viðbrögð lýtalæknisins í þessu máli. Hún vill láta fjarlægja púðana sér að kostn- aðarlausu. Málsókn vegna sílikons  Nokkrar íslenskar konur með PIP-brjóstapúða leita réttar síns  Málsóknin beinist gegn lýtalækninum og íslenska ríkinu  Ein vill láta fjarlægja púðana M„Ég vil þessa púða í burtu.“ »12 F Ö S T U D A G U R 6. J A N Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  4. tölublað  100. árgangur  ÖFLUG ÚTGERÐ OG GOTT AÐ BÚA Í BOLUNGARVÍK GJALDÞROT FYRIRTÆKJA SNORRI VILL REISA MINNISVARÐA Í SÚRÍNAM TVÖFALT FLEIRI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI 20 FYRIR ALLRA AUGUM 39LÍNUÍVILNUN LYKILLINN 15 Fréttaskýring eftir Hjört J. Guðmundsson „Það að vera kjörinn íþróttamaður ársins er tvímælalaust stærsta viðurkenning sem mér hefur hlotnast á ferlinum. Ég er mjög stoltur yfir því að hafa verið valinn. Þetta er alveg meiriháttar gaman,“ sagði Heiðar Helguson, knattspyrnumaður hjá QPR í Englandi, í samtali við Morgun- blaðið eftir að hann var útnefndur íþróttamaður ársins 2011 af Samtökum íþróttafréttamanna í gærkvöld. » Íþróttir Stærsta viðurkenningin Heiðar Helguson kjörinn íþróttamaður ársins 2011 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Formenn aðildarfélaga ASÍ gagnrýna harðlega það sem þeir segja litlar efndir ríkisstjórnarinnar á kjarasamningunum sem gerðir voru í vor. Þetta kom fram á fundi þeirra í gærmorgun. Endurskoð- un samninganna á að vera lokið 20. janúar. Oddný Harðardótttir fjármálaráð- herra sagði að bregðast yrði hratt við gagnrýni for- mannafundarins. „Ég þarf að setjast yfir þetta með bæði forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráð- herra og einnig stjórnend- um ASÍ,“ sagði ráðherra. „Við þurfum að fara yfir þessi mál og hvernig við bregðumst við gagnrýninni sem er mjög alvarleg.“ Eitt þeirra samningsat- riða sem ASÍ telur að ekki hafi verið staðið við er skattlagning á lífeyrissjóð- ina og hækkun bóta og al- mannatrygginga, en Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir fyrirhugaðar hækkanir ekki í neinu sam- ræmi við þau fyrirheit sem voru gefin. „Þetta eru at- riði sem eru mjög sár og snerta þá félaga okkar sem bera minnst úr býtum,“ segir Gylfi. Næstu daga og vikur munu formenn aðildarfélag- anna funda með félagsmönnum sínum og fara yfir forsendur kjarasamninganna. Samninganefnd ASÍ mun ennfremur funda með fulltrúum ríkisstjórn- arinnar. „Það er ljóst að það er forsendubrestur í okkar samningi og það er verkefni samninganefnd- arinnar að vinna úr því, annaðhvort með samningi eða hugsanlegri uppsögn,“ segir Gylfi Arnbjörns- son. Forsendur samninganna sem snúa að atvinnu- rekendum hafi gengið eftir og vel það. »2 Forsendu- brestur í samningum  Fjármálaráðherra segir að bregðast verði hratt við Í óvissu » Að mati for- manna innan ASÍ eru hækk- anir bóta ekki í neinu samræmi við gefin fyr- irheit stjórn- valda. » Lokaákvörðun um endurnýjun samninga tekin 19. janúar.  Þýska lág- vöruverðskeðjan Bauhaus hefur allt frá árinu 2003 verið að reyna að komast inn á íslenska bygginga- vörumarkaðinn. Loksins núna í vor, níu árum seinna, mun verslunin verða opnuð á Lambhagavegi í Reykjavík og hefur því verið auglýst eftir fólki í 60-80 störf. Af þessu til- efni tók Morgunblaðið viðtal við for- stjóra Bauhaus, Mads Jörgensen. Hann sagði að þótt þeir byggjust ekki við hagnaði í byrjun teldu þeir það fjárhagslega hagkvæmara að opna verslunina en að opna hana ekki enda kostaði það þá peninga að eiga þessa lóð og þetta hús sem þeir létu reisa árið 2008. »18 Ódýrara fyrir Bauhaus að opna  „Hér er almenn reiði yfir þessu, ekki aðeins í Neskaupstað heldur einnig í nærliggjandi fjörðum. Þetta kom eins og reiðarslag yfir okkur og er eins gerræðisleg og einræðisleg ákvörðun og mest má vera, þar sem ekki var kallaður til einn einasti aðili til samráðs,“ segir Stefán Þorleifsson, stjórnarmaður í Hollvinasamtökum Fjórðungs- sjúkrahússins í Neskaupstað, vegna áforma HSA um að loka sjúkrahús- inu í átta vikur í sumar. Sjúkrahúsinu er gert að spara um 150 milljónir króna á þessu ári og með sumarlokun nást fram um 50 milljónir í sparnað. Forstjóri HSA segir svona tillögu ekki lagða fram með neina gleði í huga. Að öðrum kosti þyrfti að segja upp fólki. »14 „Kom eins og reiðar- slag yfir okkur“ Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Neskaupstaður Fjórðungssjúkrahúsið.  Horfur eru á að raunávöxtun lífeyrissjóðanna á síðasta ári hafi verið nálægt 2%, en það er svipuð niðurstaða og varð á árinu 2010. Þetta segir Þórey S. Þórð- ardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Samkvæmt tölum sem Seðla- bankinn birti í gær námu heildar- eignir sjóðanna 30. nóvember sl. 2.078 milljörðum. Eignirnar voru 1.909 milljarðar í árslok 2010. »6 Raunávöxtun nálægt 2% í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.