Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012 ✝ Svavar GuðniGuðnason fæddist í Reykjavík 25. ágúst 1930. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 30. des- ember 2011. Foreldrar hans voru Guðni Jó- hannesson sjómað- ur, f. 20. mars 1893, d. 12. nóv- ember 1984 og k.h. Lovísa Svava Jónsdóttir, f. 18. október 1896, d. 1. janúar 1933. Svavar var næstyngstur sjö alsystkina en þau voru Þóra Sigríður, f. 14. júlí 1922, d. 2. maí 1990, Steinunn Guðrún, f. 19. sept- ember 1924, d. 30. janúar 1984, Jóhannes Páll, f. 6. október 1925, Kristrún, f. 10. febrúar 1927, d. 4. apríl 2009, Mark- úsína, f. 18. júlí 1928, d. 28. mars 2003, Lovísa Svava, f. 31. desember 1932, d. 7. júní 1935. Hálfsystir Svavars, dóttir Guðna og sambýliskonu hans Andrés. Sambýliskona hans er Margrét Helga Skúladóttir og dóttir þeirra Telma Svava. 3) Guðni Birgir, f. 3. janúar 1960, kvæntur Kristínu Guðrúnu Ólafsdóttur. Þau eiga þrjú börn: a) Svavar Guðni, kvæntur Bryn- hildi Dögg Guðmundsdóttur. Þau eiga þrjú börn: Karen Dögg, Alexander Guðna og Elv- ar Breka. b) Elín Hrund. Hún á tvo syni, Mikael Mána og Kristi- an Helga. c) María Björk. 4) Rannveig Elín, f. 20. ágúst 1970. Hún á eina dóttur, Sigríði Krist- ínu, með fyrrverandi eig- inmanni sínum, David Beiter. Svavar vann ýmis störf sem ungur maður og vann m.a. í nokkur ár hjá Vegagerð rík- isins. Stærstan hluta starfsævi sinnar vann hann hjá Smjörlíki/ Sól hf. sem síðar varð að Sól- Víking og sameinaðist loks Víf- ilfelli. Svavar var mikill áhuga- maður um íþróttir, sérstaklega fótbolta og var dyggur stuðn- ingsmaður Manchester United. Hann hafði einnig mikið yndi af tónlist. Blús og jazztónlist var í uppáhaldi og hann var dugleg- ur að sækja margs konar tón- leika. Útför Svavars fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 6. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Jónu G. Tóm- asdóttur, er Vil- helmína Svava, f. 18. júlí 1948. Eftir andlát móður sinn- ar ólst Svavar upp hjá föður sínum og miðkonu hans Kristínu Sigfús- dóttur. Eftir að þau skildu ólst Svavar upp hjá Kristínu. Svavar kvæntist 12. nóvember 1955 Sigríði Andrésdóttur, f. 26. september 1936, d. 2. nóvember 1993. For- eldrar hennar voru Andrés Andrésson vélstjóri, f. 20. júní 1901, d. 16. október 1980 og k.h. Rannveig Elín Erlends- dóttir húsmóðir, f. 7. maí 1902, d. 11. september1981. Svavar og Sigríður eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Andrés, f. 24. nóvember 1955, kvæntur Þóru Stephensen. Þau eiga tvö börn Örvar og Dagbjörtu. 2) Kristín Svava, f. 1. apríl 1957, gift Við- ari Gíslasyni. Þau eiga einn son Í dag er kvaddur tengdafaðir minn, Svavar Guðnason. Með honum hef ég átt samfylgd í líf- inu síðastliðin þrjátíu og fjögur ár. Það er því margs að minnast og fyrir margt að þakka. Mér var strax tekið af mikilli hlýju og um- hyggju í Hraunbænum þegar ég kynntist Andrési syni Svavars og Sísíar konu hans. Vinir barna þeirra voru alltaf velkomnir á heimilið og eldhúskrókurinn var oft þétt setinn unglingum sem höfðu um margt að spjalla. Það vakti fljótt athygli mína að í fjöl- skyldu Andrésar þurfti aðeins örsjaldan að kalla til iðnaðar- menn til að sinna viðhaldi. Þetta sáu menn um sjálfir og þar fór tengdapabbi fremstur í flokki. Ég var ekki vön þessu úr minni fjölskyldu, þar hringdum við í rafvirkja ef setja þurfti upp ljós og málara ef lyfta þurfti pensli, við vorum bara betri í öðru. Ekki hafði Svavar hlotið iðnmenntun en var sjálflærður í þessum greinum og handlaginn. Þegar við Andrés hófum búskap og tók- um til við húsbyggingu nutum við aðstoðar Svavars. Hann var ávallt boðinn og búinn að leggja lið og það munaði ekki bara um handaverkin hans heldur var hann líka hvetjandi og uppörv- andi þegar þreytan var farin að segja til sín eftir langar vinnu- tarnir. „Það verður gott að fá hann pabba í málninguna,“ sagði sonur hans einhverju sinni „hann kjaftar þetta alltaf einhvern veg- inn upp á veggina.“ Svavar miðl- aði mikilli verkþekkingu áfram til næstu kynslóðar og var ekki síður fyrirmynd hvað varðaði við- horf til vinnunnar. Jákvæðni, samviskusemi og snyrtimennska voru hans aðalsmerki. Svavar og Sísí áttu góð ár saman. Með eljusemi og dugnaði komu þau sér upp fallegu heimili og börnum sínum vel til manns. Allt virtist ganga þeim í hag. En lífið er óútreiknanlegt og þeirra beið þungt verkefni. Seinni hluta ársins 1992 fór heilsu Sísíar að hraka. Hún fékk heilablæðingar- sjúkdóm sem síðar kom í ljós að var arfgeng heilablæðing. Heilsa Svavars fór líka að bila. Þetta hafði margvísleg áhrif á hagi þeirra og svo fór að á árinu 1993 missti Svavar eiginkonu sína, heilsuna og aleiguna. Það var mikið á einn mann lagt en hann tók þessum áföllum af ótrúlegu æðruleysi. Honum tókst að kom- ast til góðrar heilsu á ný og stunda vinnu vel fram yfir sjö- tugt. Sísíar saknaði hann auðvit- að alltaf, enginn gat komið í hennar stað. En hann ræktaði vel sambandið við börnin sín, barna- börn og góða vini. Hann lagði sig fram um að sjá jákvæðar hliðar hlutanna og njóta þess sem lífið gat boðið honum þó svo margt væri öðru vísi en áður. Sjúkdóm- urinn sem tók Sísí frá honum fylgir fjölskyldunni áfram og enn lagði Svavar börnum og barna- börnum lið, nú með hvatningu, æðruleysi og bjartsýni. Skömmu fyrir jólin sagði hann „Nú er ég alveg viss um að þetta fer að lagast hjá okkur, Tóta mín“. Sannfæringarkrafturinn var ein- lægur og ég fylltist líka bjartsýni um að þannig yrði það einmitt. Tengdapabbi minn var einn af hversdagshetjunum sem vinna sín afrek svo lítið ber á. Hann tókst á við erfiðleika með já- kvæðni og æðruleysi að vopni. Hann var sannur heiðursmaður, verðug fyrirmynd fyrir okkur öll. Þóra Stephensen. Fyrir rúmlega 33 árum kynnt- ist ég tengdaforeldrum mínum, hún var hæg og falleg kona, hann snaggaralegur, örlítið þéttur á velli, hárið aðeins farið að þynn- ast og með vindilinn í öðru munn- vikinu. Þetta voru þau sómahjón Sísí og Svavar. Allt frá okkar fyrstu kynnum þótti mér afar vænt um þau og hef ætíð talið mig lánsama að eiga þau að. Því miður lést Sísí langt um aldur fram aðeins 57 ára eftir stutt veikindi. Harmur Svavars var mikill að missa ástina sína svona unga. Svavar var einstaklega mikið snyrtimenni, óburstaðir skór sáust aldrei á fótum hans og brotin í buxunum alltaf stíf. Oft stríddi ég honum á því að Sísí hefði straujað nærbuxurnar hans því ekki máttu þær vera krump- aðar. Hann vildi nú aldrei viður- kenna að svo hefði verið. Bóngóður og vinnusamur var hann, alltaf til í að rétta hjálp- arhönd við að mála og flytja fyrir börnin sín og aðra. Fyrst var mætt á staðinn með pensla, rúll- ur og auðvitað plast á gólfið svo ekki kæmu slettur eða dropar á það. Því næst var farið í ljósu málningarbuxurnar Móaderhúf- an sett á kollinn og London Docks í munnvikið, þá var karl- inn til í slaginn. Þegar að flutn- ingi kom þá mætti hann galvask- ur á smjörlíkisbílnum og flutti allt hafurtaskið á nýjan og ný- málaðan stað. Eftir að Svavar fór að eldast var hann sérlegur ráðgjafi hjá yngri kynslóðinni í meðferð á penslum og rúllum. Og naut hann sín ekki síður í því hlutverki. Mikla umhyggju bar hann til barna sinna og fjölskyldna þeirra. Alltaf sýndi hann því áhuga hvað barnabörnin tóku sér fyrir hendur og gladdist með sigrum þeirra. Langafabörnin eru orðin sex og gladdi það hann mikið að vera samvistum við þau. Þung hafa sporin verið hjá þessum mæta manni síðastliðin fjögur ár. En alltaf var hann svo jákvæður og vongóður og gladd- ist yfir litlu skrefunum. Minningar um góðan tengda- föður munu ylja mér um ókomna tíð. Takk fyrir allt og allt. Farðu í friði vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Kristín Guðrún. Elsku besti afi minn. Það er erfitt og sárt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okk- ur. En ég veit að núna ertu kom- inn til Sísíar ömmu og ert á miklu betri stað þar sem þér líður vel. Amma hefur örugglega tekið vel á móti þér og eldað handa þér uppáhaldsmatinn þinn. Þú varst frábærasti afi í heimi. Mér var alltaf mikill styrkur í að hafa þig með þegar ég söng á tónleikum eða keppti á sundmót- um. Þú sýndir alltaf einlægan áhuga á því sem við barnabörnin þín höfðum fyrir stafni og þreytt- ist aldrei á að tala um það við bæði okkur og fjölskylduna. Þegar við horfðum á Stöð tvö á föstudagskvöldum buðum við þér oft að koma og horfa með okkur á Idolið. Þér fannst það svo skemmtilegt og okkur fannst miklu meira fjör að hafa þig með því það spunnust oft langar rök- ræður og pælingar um hver væri bestur. Þú vildir alltaf veðja við mig hver héldi áfram og oftast hafðir þú nú rétt fyrir þér þó það yrði lítið úr veðmálum. Þér þótti líka gaman að fara með okkur í ýmsar ferðir eins og t.d. til Þing- valla, á Veiðisafnið eða á tón- leika. En ég held nú að þér hafi þótt best að koma með Þóri afa og Döggu ömmu heim til okkar í sunnudagsmat og spjalla um allt og ekkert milli þess sem þú hrós- aðir matnum óspart. Þú komst líka oft og passaðir mig þegar ég var yngri og þá horfðum við gjarnan á skemmti- legar bíómyndir. Ég man enn hvað þú hlóst mikið að sumum þeirra og talaðir lengi um þær á eftir. Þú elskaðir snúða. Snúður með bleikum glassúr var uppá- haldið þitt. Ef þú fórst í búð keyptirðu alltaf snúð til að eiga heima. Þér þótti ómissandi að eiga suðusúkkulaði eða gott kaffi í skápnum „ef einhver kemur að heimsækja karlinn“, eins og þú sagðir. Þér þótti alltaf svo gaman að fá heimsóknir. Þú hafðir mikla ánægju af hundum enda fjölskylduhunda- rnir hændir að þér. Þú heilsaðir Fífu okkar alltaf með því að segja „Hvað segir þú litla vinkona?“ Ég veit að hún á eftir að sakna þín afar sárt eins og við öll. Þú varst einn hjálpsamasti maður sem ég þekkti. Ef einhver var í framkvæmdum varst þú alltaf kominn á stundinni til að hjálpa, t.d. við að mála eða flísa- leggja. Í erfiðleikum stappaðir þú alltaf í okkur stálinu með já- kvæðni og rósemi. Ef einhver spurði um líðan þína sagðir þú alltaf „Ég hef það fínt!“ eða „Hva…. það er allt í lagi með karlinn“! Finnst mér þetta bera vott um hver þú varst. Jákvæður, hress, skemmtilegur og oft alveg ferlega fyndinn. Þér þótti alltaf mjög vænt um börnin þín, sem og tengdabörn og barnabörn. Og ekki fannst þér nú leiðinlegt að eiga langafabörnin þín sem þú spjallaðir svo mikið við. Væntum- þykjan lýsti af þér í hvert einasta skipti sem ég sá þig. Elsku afi, þú varst besti afi í heimi og ég á eftir að sakna þín rosalega mikið. Það er ólýsan- lega sárt að þurfa að sætta sig við að þú sért farinn en þú ert á betri stað núna og ég veit að þér líður vel og að þú vakir yfir mér og passar mig. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Þín Dagbjört. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran) Í dag kveð ég þig í hinsta sinn, elsku besti afi minn. Það er sárt að hugsa til þess að ég muni aldr- ei hitta þig á ný en nú eruð þið amma Sísí loksins saman á nýjan leik. Mig langar að þakka þér kærlega fyrir allar fallegu minn- ingarnar sem þú skilur eftir þig í hjarta mínu. Við áttum margar frábærar stundir saman, elsku afi minn, og mun ég varðveita þær í minningu um þig alla ævi. Það var orðinn árlegur siður hjá mér og þér að skrifa saman jóla- kortin. Mikið voru það notalegar stundir þar sem við sátum saman og þú sagðir mér skemmtilegar sögur af þér og þínum á meðan ég skrifaði á kortin fyrir þig. Þú talaðir alltaf svo vel um þitt fólk og varst svo stoltur af okkur öll- um. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona stund með þér fyr- ir jólin og henni mun ég seint gleyma. Þú varst gull af manni, alltaf svo hress og skemmtilegur, sama hvað bjátaði á. Þú tókst alltaf á móti manni með opnum örmum og bros á vör. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku afi minn, en ég mun halda fast utan um þær minningar sem ég á af þér alla mína ævi. Ég mun aldrei gleyma þér, afi minn. María Björk. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku afi, þau eru þung tárin sem streyma niður kinnarnar. Enn ein sorgin dynur yfir okkur áður en árið er á enda. Þú hefur kvatt okkur, yndislegi maður. Mér er létt í hjarta mínu yfir því að þetta tók ekki langan tíma. Þó sorgin sé mikil þá veit ég að þér líður vel núna. Elsku afi minn, ég er svo þakklát fyrir allar þær stundir sem ég hef átt með þér. Ég er þakklát fyrir að eiga þig sem afa. Þau voru ófá skiptin sem ég sótti þig heim í Árbæinn og við fórum saman í mat til mömmu og pabba. Þér þótti afskaplega vænt um það að vera boðinn í mat og ekki var verra að fá afganga með sér heim. Við systur heimsóttum þig á aðfangadag núna með jóla- gjöfina þína og mikið var gott að við gátum gert þér þann greiða að skutlast með þig til hennar Karolínu og í búð að kaupa kon- fekt. Þú varst mikill sætindakall enda ákváðum við systur að gefa þér gotterí og smákökur með kaffinu í jólagjöf. Það sem stend- ur upp úr eru snúðarnir með bleiku glassúri. Máninn minn er líkur langafa sínum, hann er mik- ill sætabrauðsdrengur. Þú hafðir gaman af langafabörnunum þín- um sem voru orðin 6, þú varst heppinn að vera svona ríkur. Ég er stolt af þér fyrir að hafa haldið áfram eftir að amma kvaddi þennan heim. Þér þótti svo vænt um hana og ég get rétt ímyndað mér hvað þú saknaðir hennar mikið. Það var svo sætt hvernig þú kallaðir hana mömmu þegar þú talaðir um hana. Þú varst duglegur að tala um hana og ylja okkur um hjartað með minningum um hana. Dásamleg voruð þið bæði. Ég veit að hún beið þín þegar kallið kom og fylgir þér nú í næsta ferðalag. Ég sakna ykkar í dag og mun sakna ykkar alla mína ævidaga. Þú varst, ert og verður alltaf góður maður og frábær afi. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku afi minn, minningin um þig mun ylja mér um hjartarætur ævilangt. Guð og englar geymi þig. Elín Hrund Guðnadóttir. Elsku besti afi. Ég veit að amma tekur vel á móti þér, sem þú hefur saknað svo lengi. Það rifjast upp allar góðu stundir okkar saman, bíóferðir og samverustundirnar í sum- arbústaðnum í Skorradal. Það voru ófá skiptin sem ég kom til þín í Sól hf. þar sem þú vannst hér áður og þú sýndir mér öll tækin. Ég man þegar ég kom í heimsókn til þín og ömmu á sunnudögum, þá var heilög stund hjá þér þar sem þú sast í stólnum þínum og horfðir á enska boltann og amma bakaði vöfflur. Man- chester United var þitt lið. Já og vindlarnir sem voru meira tuggð- ir en reyktir. Afi, þú varst alltaf svo hress og duglegur, mættir í öll barnaafmælin og varst ávallt með þeim fyrstu að sjá barna- barnabörnin líta dagsins ljós og ávallt fylgdu þessi orð: æðislegt, alveg æðislegt og hugsið ykkur lömbin fæðast og geta bjargað sér sjálf og við ósjálfbjarga í mörg ár eða svoleiðis. Þér þótti svo gott að fá þér súkkulaðimola og Homeblest kex og kaffi með, enda mikill súkkulaðigrís. Þú hefur ávallt sýnt fjölskyldu minni mikinn áhuga og þótti þér svo vænt um alla í fjölskyldunni. Afi, þín verður sárt saknað. Þinn nafni, Svavar Guðni. Við systkinin höfum ætíð dáð móðursystkini okkar, Svavar var einn af þeim. Ung misstu systk- inin móður sína og í kjölfar þess var þeim komið fyrir hjá ættingj- um og vinum. Við höfum dáð þau fyrir það hve vel þeim hefur tek- ist að halda hópinn frá unga aldri þrátt fyrir að vera aðskilin í æsku. Við höfum dáð þau fyrir já- kvæðni þeirra og létta lund sem hefur hjálpað þeim í gegnum lífs- ins ólgusjó og er til eftirbreytni. Við vorum svo lánsöm að Svav- ar var ekki bara góður móður- bróðir heldur urðu foreldrar okk- ar og þau hjónin Sísí og Svavar góðir félagar. Sameiginleg voru áhugamál þeirra og stutt var á milli heimilanna þegar þau byrj- uðu að búa. Það er margs að minnast af jafn hressu og skemmtilegu fólki og Svavar var. Æskuminningar af Flókagötunni spretta fram, en þangað var oft farið í heimsókn, börnin öll á svipuðum aldri. Svavar var einstaklega hjálp- legur móður okkar eftir að hún varð ekkja með tvö ung börn. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar málaði hann fyrir hana íbúðina og það var eins og reynd- ur málari væri að verki. Hann Svavar Guðni Guðnason Elsku Inga mín Með þessu ljóði vil ég senda þér mína hinstu kveðju og biðja Guð um að geyma þig. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Ingibjörg Vagnsdóttir ✝ IngibjörgVagnsdóttir fæddist í Bolung- arvík 15. júní 1957. Hún lést á heimili dóttur sinnar í Kína 20. nóvember 2011. Útför Ingibjarg- ar fór fram frá Hólskirkju í Bol- ungarvík 28. des- ember 2011. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frels- arans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góð- ur, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Elsku Ívar, Birna, Kristín og stórfjölskyldan öll, Guð gefi ykkur styrk. Ykkar vinur, Daníel Ari og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.