Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012 Látinn er góður félagi minn og vinur, Ingólfur Bárðarson. Fyrir viku heimsóttum við hjónin hann á Borgarspítalann, hann sagðist vera í rannsókn og verða kominn heim eftir 4 daga. Ég hafði rætt við hann fyrir nokkrum dögum um veikindi hans, hann sagðist vera mjög hraustur líkamlega að öllu leyti öðru en því sem væri að angra sig í brjóstholinu, en nú væru læknavísindin komin á það hátt stig að þeir hlytu að ráða við það sem væri að honum, en það fór á annan veg. Við hjónin kynntumst þessum indælu hjónum, Dóru og Ingólfi, fljótlega eftir að við komum til Njarðvíkur árið 1965, þegar ég hóf störf hjá rafveitunni þar. Fljótlega varð Ingólfur formaður rafveitunefndar svo við unnum þar saman að ýmsum málefnum á vegum hennar. Sum af börnum Dóru og Ingólfs voru á sama aldri og börn okkar hjónanna og hefur vinátta þeirra haldist æ síðan. Við Ingólfur vorum saman í mörgum félögum og fórum með okkar konum í ýmis góð ferðalög bæði hér innanlands og erlendis, þær ferðir voru ógleymanlegar og þar var oft glatt á hjalla. Hlý- legt var að koma til þeirra hjóna í sumarbústað við Langá og dvelj- ast hjá þeim næturlangt. Ekki ætla ég að nefna öll þau störf í þágu félagsmála, félögum, og stjórnmálum, sem Ingólfur tók þátt í fyrir utan að reka sitt eigið rafmagnsverkstæði með prýði í yfir 40 ár, það munu aðrir gera, heldur að minnast hans sem vin- ar og hans góðu fjölskyldu. Dóra mín. Þessar fáu línur sem ég skrifa eru einungis til að minna á þá vináttu sem við Elsa áttum með ykkur hjónum saman. Við vitum að okkar vinátta mun haldast með þér og þínum af- komendum. Megi góður guð gefa þér styrk og blessun um ókomin ár Jóhann Líndal. Í dag kveð ég einn af mínum bestu og traustustu vinum til margra ára, Ingólf Bárðarson. Það einkenndi lífshlaup hans að hann var hamhleypa til allra verka og vildi láta hlutina ganga hratt fyrir sig. Í kringum hann var engin lognmolla. Hann var reglusamur og traustur. Hans lokastríð var stutt og hart barist, en því lauk á aðeins þremur mán- uðum. Ég kynntist Ingólfi fyrst er hann var um tvítugt og var ásamt bróður sínum Olgeiri að byggja sitt fyrsta hús í Njarðvíkunum. Það var ekki að minni gerðinni, einar þrjár hæðir og mikið að flatarmáli. Þeir þóttu afar stór- huga bræðurnir að ráðast í þessa framkvæmd. Seinna lágu leiðir okkar sam- an þegar okkur þótti orðið veru- lega vanta upp á skemmtana- haldið fyrir ungt fólk á Suðurnesjum. Við vorum þá bún- ir að festa ráð okkar. Dóra búin að klófesta Ingó og Björg búin að næla í mig. Við stofnuðum skemmtiklúbb ásamt fleirum og kölluðum hann Unghjónaklúbb Suðurnesja. Ingó var kosinn for- maður. Hver skemmtun hófst með ávarpi formanns. Það þótti ekki hægt að byrja að skemmta sér fyrr en Ingó var búinn að ávarpa gesti. Þegar félagar í klúbbnum voru orðnir 40 ára gengu þeir sjálfkrafa úr klúbbn- um. Við brugðum því á það ráð að stofna Nýja hjónaklúbbinn því ekki ætluðum við að hætta að skemmta okkur. Seinni árin fór að bera á því að fólk mætti seint á böllin. Brugð- um við þá á það ráð að allir sem mættu eftir kl. 10 yrðu látnir skemmta. Ingó var fæddur leik- ari og hafði troðið upp víða á sín- um yngri árum. Þetta skipti sköpum og fólk kom hlaupandi í sínu fínasta pússi til að ná inn fyrir kl. 10. Konurnar okkar gengu saman í Húsmæðraskólann og síðar stofnuðu þær saumaklúbb með fimm öðrum skólasystrum. Eru þær búnar að halda hópinn í 55 ár. Það er föst venja hjá sauma- klúbbnum að bjóða eiginmönn- unum í ferðalag minnst einu sinni á ári utan lands eða innan. Þá komu hinir meðfæddu hæfileikar Ingós fram í því að sjá um skemmtiatriði og láta félagana sprella. Síðasta ferð okkar var farin sl. sumar og var gist í Stykkishólmi. Farið var í dags skoðunarferð um Snæfellsnesið, kringum Jökul og annaðist Ingó fararstjórn. Hann var svæðinu þaulkunnugur enda átti hann þangað ættir að rekja. Kæri Ingó, við þökkum allar þær ánægjustundir sem við átt- um með þér í gegnum lífið. Guð blessi minningu þína. Elsku Hall- dóra, börn, tengdabörn, barna- börn og langafabörn, við sendum ykkur samúðarkveðjur og biðj- um guð að styrkja ykkur á erfiðri stundu. Hilmar og Björg. Ég hitti Ingólf Bárðarson í fyrsta sinn á miðju ári 1990, þá sem einn af umsækjendum um stöðu bæjarstjóra í Njarðvík. Ingólfur var forseti bæjarstjórn- ar Njarðvíkur eftir bæjarstjórn- arkosningarnar 1990 og voru hann og Sólveig Þórðardóttir bæjarfulltrúi að kanna umsækj- endur. Þetta voru fyrstu kynni mín af Njarðvíkingum sem leiddu til þess að fjölskylda mín hefur verið þar síðan. Ég tel mig hafa verið lánsaman að koma til Njarðvíkur og hefja störf með þáverandi bæjarstjórn Njarðvík- ur undir leiðsögn Ingólfs Bárð- arsonar. Honum var mikið í mun að fjölskyldu minni liði vel í Njarðvík og lagði sig fram um að svo gæti orðið. Ingó var einstak- lega þægilegur í umgengni, já- kvæður og áhugasamur. Hann hafði fyrir venju að líta við á skrifstofunni hjá mér á hverjum degi og var mikill stuðningur í því fyrir mig því hann þekkti allt og alla. Ingó var alltaf mjög heill í öllum okkar samskiptum og vildi ávallt leiða mál til betri veg- ar. Það var mikið um að vera í málefnum bæjarins þau ár sem við störfuðum saman og Ingó vildi koma sem flestu í verk en hann var einn af þeim sem vilja láta verkin tala. Okkar fyrsta verkefni var í umhverfismál- unum og varð Njarðvík fljótlega eitt af fremstu bæjarfélögum á því sviði og má þar nefna inn- komuna í gegnum Njarðvík, hreinsun bæjarins og upphafið að skolphreinsikerfinu í Njarð- vík. Atvinnuleysi var mikið um tíma og tókst að leysa það far- sællega. Mikil landakaup voru á þessum árum og keypti bærinn m.a. allan Stapann, Sólbrekkur og Seltjörn. Fundir með bæj- arbúum voru árviss viðburður í bæjarlífinu þar sem bæjarstjóri ásamt bæjarstjórn héldu hverfa- fundi með fólkinu. Þetta voru góðir fundir sem sköpuðu mikil og góð tengsl við íbúana. Það var alltaf mikið líf og fjör í kringum Ingólf og fengum við oft að njóta þess, gamla bæjar- stjórnin. Það hafði skapast sú hefð að bæjarstjórnin ásamt mökum færi saman í eina ferð á ári og kynnti sér aðstæður í öðr- um sveitarfélögum. Var þá farið í kynningu til að læra af þeim þar sem vel hafði til tekist. Þrátt fyr- ir að bæjarstjórnin í Njarðvík hafi skilað af sér 1994 hefur gamla bæjarstjórnin haldið áfram að fara í ferðir ásamt mök- um og víkkuðum við ferðahring- inn út og þá til ferðalaga til út- landa. Það var ávallt mikið líf og fjör í þessum ferðum og ævinlega hægt að treysta því að Ingó héldi upp stuði með leikjum og sprelli langt fram á nótt. Þessi hópur kallar sig í dag Átthagafélag bæjarstjórnar Njarðvíkur. Ingólfur var mikill Njarðvík- ingur og vann ötullega að fé- lagsstörfum, m.a. í Lionsklúbbi Njarðvíkur, og það skarð sem Ingólfur skilur eftir í Njarðvík er því stórt. Við í Átthagafélaginu munum minnast starfsins og ferðanna með Ingólfi og þeirrar miklu lífsgleði sem ávallt fylgdi honum. Að leiðarlokum færum við honum miklar þakkir fyrir góðar samvistir. Kæra Dóra, þinn miss- ir er mikill. Við í Átthagafélaginu viljum færa þér og fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls góðs eiginmanns og vinar. Blessuð sé minning Ingólfs Bárðarsonar. Kristján Pálsson. Ég kveð góðan vin og félaga með þakklæti fyrir einlægan stuðning og hvatningu til að byggja upp betra samfélag í Reykjanesbæ. Ingólfur Bárðarson, rafverk- taki og fyrrverandi forseti bæj- arstjórnar Njarðvíkur, var ötull talsmaður framþróunar í okkar samfélagi. Háttur hans var að hvetja menn áfram, hrósa fyrir vel unnið verk og koma svo með ábendingar um það sem bæta mætti. Það gerði hann á svo skynsamlegan og vingjarnlegan hátt að ekki var um annað að ræða en taka á því fullt mark og fylgja eftir. Þannig var Ingólfur leiðtogi löngu eftir að hann hætti formlegum afskiptum af bæjar- stjórnarmálum. Þá hafði hann einnig safnað gríðarlega víðtækri reynslu af störfum á sínum starfsvettvangi, í félagsstörfum og í stjórnum og nefndum á veg- um Hitaveitunnar og sveitarfé- lagsins. Vingjarnleiki hans og hvatn- ing hefur haft mikil jákvæð áhrif á mig og veitt kraft til að fylgja verkum fast eftir. Ingólfur kom auga á tækifær- in og kunni leiðir til að vinna úr þeim jákvæðar lausnir. Við hjónin erum afar þakklát fyrir góðar og vinsamlegar mót- tökur þeirra hjóna þegar við komum fyrst í bæinn. Ég færi Halldóru, börnum, barnabörnum og barna-barna- börnum innilegar samúðarkveðj- ur með þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast og starfa með Ingólfi Bárðarsyni. Árni Sigfússon bæjarstjóri. Lífið gengur sinn vanagang þó að það séu jól og á sama tíma og flestir nutu kyrrðar og friðar á hátíð ljóssins áttu aðrir um sárt að binda. Sorg kom beint í kjölfar hátíðar þegar fréttir bárust af andláti Ingólfs Bárðarsonar sem háði stutta og snarpa baráttu við þann illvíga sjúkdóm sem krabbameinið er og mátti lúta í lægra haldi. Niðurstaða sem var Ingólfi ekki töm á lífsleiðinni, þar sem hann hafði oftar sigur. Ég var 17 ára þegar Ingólfur kom að máli við mig í kjölfar kosninga til sveitarstjórna og bað mig að taka sæti í nefnd á vegum Njarðvíkurbæjar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Ég hafði aðeins lítillega tekið þátt í vinnu flokksins þá um vorið þó ekki hefði ég haft aldur til að kjósa. Beiðnin var því óvænt en um leið ánægjuleg og að henni nokkur virðing. Í kjölfarið kynnt- ist ég Ingólfi vel og varð okkur vel til vina. Ingólfur var atorkusamur, bæði í leik og starfi, áhugasamur um að koma málum áfram og dugmikill þegar vinna þurfti mál- um fylgis. Hann var kappsamur um framgang Sjálfstæðisflokks- ins og lagði honum lið allt sitt líf. Eftir að hann hætti sjálfur í bæj- arstjórn, var hann formaður Sjálfstæðisfélagsins Njarðvík- ings um árabil og vann þannig óbeint að málefnum bæjarfélags- ins í samstarfi við okkur sem tók- um við keflinu í bæjarstjórn. Hann var úrræðagóður og ávallt tilbúinn til viðræðna. Velviljaður og jákvæður, bar hag sveitarfé- lagsins og íbúa þess fyrir brjósti. Þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið nokkrum dögum fyr- ir jól og hans eigin lífsklukka var farin að telja hratt niður vildi hann lítið tala um sína eigin líðan en lagði höfuðáherslu á að menn héldu áfram að berjast fyrir bættu samfélagi og aukinni at- vinnu. Það mætti ekki gefast upp. Þó að kveðjustund hafi komið allt of fljótt og Ingólfur hefði get- að unnið að mörgum framfara- málum til viðbótar þá var ævi- starfið orðið viðamikið og verkin fjölmörg sem hann vann að. Allir gætu farið sáttir frá þeim verk- um sem Ingólfur lætur eftir sig. Ég sendi Halldóru og fjöl- skyldunni allri samúðarkveðjur um leið og ég kveð vin minn, Ing- ólf Bárðarson, með virðingu og þakklæti fyrir góða vináttu, traust og stuðning. Böðvar Jónsson. Fallinn er nú frá góður vinur okkar til margra ára, Ingólfur Bárðarson. Kynni okkar hófust er ég fór að vinna hjá Geisla raf- verkstæði, en þar starfaði Ing- ólfur einnig. Þar tókust með okk- ur góð kynni, en þá var hann að undirbúa stofnun á eigin fyrir- tæki sem og varð. Ingólfur rak eigið fyrirtæki í 47 ár af miklum myndarskap, það eru ekki marg- ir sem geta státað af því. Ég starfaði einmitt hjá honum um tíma og líkaði mjög vel. Seinustu árin rak Guðmundur sonur hans fyrirtækið með honum. Við störf- uðum mikið saman sem verktak- ar, tókum að okkur mörg stór verkefni svo sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt Rafiðn og Geisla. Okkar samstarf gekk ávallt vel. Við höfðum oftast mjög svip- aðar skoðanir varðandi landsmál- in og fylgdum Sjálfstæðisflokkn- um. Einnig atvikaðist það þannig að við fórum báðir að vinna að sveitarstjórnarmálum, Ingólfur fyrir Njarðvík og ég fyrir sveit- arfélagið Garð. Við unnum sam- an í ýmsum nefndum á vegum SSS og sátum m.a í stjórn H.S. Við unnum líka að málum raf- verktaka í mörg ár og var Ing- ólfur í stjórn LÍR til margra ára. Það var því ánægjulegt að stjórn Rafverktakafélags Suðurnesja skyldi gera Ingólf að heiðurs- félaga á jólafundi í desember sl. Hann átti það svo sannarlega skilið. Við hjónin áttum margar ánægjulegar stundir með þeim hjónum Ingólfi og Dóru. Það var ávallt gleði og skemmtilegt í kringum þau hjón. Um leið og við hjónin þökkum Ingólfi samfylgdina vottum við Dóru og fjölskyldu okkar dýpstu samúð og biðjum þeim Guðs blessunar. Sigurður Ingvarsson og Kristín. Ingólfur Bárðarson ✝ Stefán Sig-urfinnur Bjarna- son fæddist í Innri- Njarðvík 29. sept- ember 1941. Hann lést á heimili sínu að Kambahrauni 19, Hveragerði, 14. des- ember 2011. Foreldrar hans voru Bjarni Ein- arsson, skipa- smíðameistari, fædd- ur að Frakkastíg 7 í Reykjavík 12. janúar 1916, d. 24. janúar 2001 og Sigríður Stefánsdóttir, fædd að Auðnum á Vatnsleysuströnd 22. desember 1918, d. 11. apríl 2001. Systur Stefáns eru Guðrún f. 11. desember 1942 og Margrét Rósa f. 26. nóvember 1947. Stefán gift- ist 2. júní 1968 Auði Ágústsdóttur, f. 18. júní 1944. Þau skildu 1978. Börn Stefáns og Auðar eru : 1) Bjarni, efnaverkfræðingur, bú- settur í Noregi, f. 25. september 1969 , eiginkona hans er Lillian G. Sørenesen f. 27. október 1974. Börn þeirra eru Guðrún f. 15. október 2007, Ole Halldór f. 13. ágúst 2009 og Ágúst Valdimar f. 10. október 2011. 2) Halldór Ás- grímur f. 12. febrúar 1972. Stefán giftist aftur 30. des. 1983 eftirlif- andi eiginkonu sinni Guðrúnu Sigríði Geirsdóttur, framhalds- skólakennara, f. 29. maí 1938 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Geir Stefánsson, stór- kaupmaður, fæddur á Vopnafirði 22. júní 1912, d. 25. maí 2001 og Birna Hjaltested, húsfreyja, fædd í Reykjavík 4. apríl 1905, d. 19. janúar 2002. Stefán ólst upp fyrstu ár ævi sinnar í Innri- Njarðvík en flutti síðar með for- eldrum sínum til Ytri-Njarðvíkur. Hann gekk í Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1953-54 og lauk gagnfræða- prófi frá Reykja- skóla í Hrútafirði 1956. Stefán nam skipasmíði við Skipasmíðastöð Njarðvíkur og Iðn- skóla Keflavíkur 1958-61 þar sem hann lauk sveins- prófi 1963. Hann stundaði nám við Tækniskólann í Reykjavík 1961- 62 og hélt utan í skipatæknifræði við Sunderland Institute of Technology í Englandi 1962-65. Vann í Skipasmíðastöð Njarðvík- ur 1966 og 1969 og hjá Lands- virkjun í Reykjavík við teikni- vinnu 1967-69. 1970-73 vann Stefán á vegum FAO (matvst. Samein. Þj.) í Malawi við að kenna bátasmíði. Hann starfaði hjá Siglingamálastofnun ríkisins frá 1973 sem sérfræðingur um varnir gegn mengun sjávar. Sá einnig um útgáfu tímaritsins Sigl- ingamál á vegum stofnunarinnar. Vann jafnframt ýmis tækni- og ráðgjafastörf í sambandi við ný- smíði skipa og breytingar á eldri skipum. Frá 1978 vann Stefán í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og kenndi einnig tækniteikningu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Á tímabilinu 1985-93 vann Stefán meðal annars við kennslu við Menntaskólann á Laugarvatni, hjá tæknideild Garðabæjar og sem sjálfstæður tækniráðgjafi. Frá 1994 til starfsloka var hann innkaupastjóri hjá SR-Mjöli og búsettur á Siglufirði. Árið 2007 flutti Stefán ásamt eiginkonu sinni til Hveragerðis. Jarðarför Stefáns fór fram frá Dómkirkjunni 5. janúar 2012. Stundum er það á lífsleiðinni að maður hittir minnisstæðara fólk en annað og einn slíkur var Stefán. Hjá sameiginlegri vin- konu í Vesturbænum varð hann á vegi mínum, skemmtilegur, áhugaverður, sérstakur og frjór. Við áttum stundum tal saman þegar ég, eins og fyrir röð af til- viljunum, datt inn á þetta heimili. Mér er sérstakur heiður að því að senda ástvinum Stefáns nokkrar ljóðlínur til minningar um þennan einstaka öðling- smann, því þeir eru ekki svo margir sem verða fyrir manni á lífsleiðinni. Halur til himins er farinn og horfinn sjónum um sinn. Í faðmi föður fær orku því fang hans er nærri. Hvert sem litið er ljós og friður og líkn sem aldrei bregst. Veröld nýrra afla er nærri sem njóta má án kvaða. Ljúf ganga inn í nýtt líf loforð breytinga án kvíða. Í spurn horfir hissa á allt og hógværð tekur við. Allt svo létt og ljós birtast og látbragð er kyrrð. Undur efnast og bálslegið bíður líf í gleði. Einsemd hverfur í hamingju himna sem opnast í logni. Fegurð brosa bærist og lifir í birtu sem tekur við. Almættið verndar á veg í gleði og vekur upp öryggi. Fang þess er fegurð og styrkur í friði kærleikans. (J.R.K.) Jóna Rúna Kvaran Stefán Sigurfinnur Bjarnason Elsku amma. Það er skrítið að setjast niður og skrifa um þig, það er af svo mörgu að taka. Alveg frá því ég man eftir mér hefur þú alltaf verið til taks og allt- af hafðir þú svör við öllu, hvort sem það var í sambandi við saumaskap, prjóna eða blóm. Það var alltaf svo gott að vera hjá þér á Blómsturvöllum og alltaf hafðir þú tíma fyrir mig. Aðalheiður Árnadóttir ✝ AðalheiðurÁrnadóttir fæddist 7. júní 1922 í Brimnesgerði í Fá- skrúðsfirði. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 17. des- ember 2011. Útför Aðalheiðar fór fram frá Norð- fjarðarkirkju 21. desember 2011. Ég man bara ekki eftir þér öðruvísi en hafa eitthvað fyrir stafni elsku amma mín. Þegar ég var lítil að skottast á Blómsturvöllum varstu annaðhvort við saumavélina að sauma fyrir konurn- ar á Norðfirði og okkur öll, man að ég fékk alltaf tvo til þrjá kjóla um jólin þegar ég var lítil, svo þegar ég var búin að eign- ast mín börn þá saumaðir þú á þau og prjónaðir líka á þau og það var alltaf mikill spenningur þegar pakki kom að austan. Alltaf þegar við töluðumst við í síma spurðir þú um börnin mín, hvernig þeim gengi og svo fram- vegis, og stundum sagði ég þér ekki alltaf alveg rétt því ég vissi að þá myndi þér sárna. Man hvað ég var oft erfið þegar þið mamma fóruð hring um húsið að skoða öll inniblómin og ég var alltaf dregin með. Svo þegar ég hélt að nú væri þetta búið var skundað út í garð og öll blómin skoðuð þar og ég var dregin með og sagt að ég hefði nú bara gott af því að læra um blómin. Mér finnst að þú hafir alltaf átt fallegasta garðinn á Norðfirði enda hugsaðir þú um hann af mik- illi natni og kærleika, og ekki nóg með að þú plantaðir í garðinn þinn heldur plantaðir þú líka við lækinn fyrir utan brattann. Þegar við komum austur í heimsókn til þín var farið með okkur eins og konungsfólk, veisla alla daga. Svo var farið í Brimnesgerði, æskuheimili þitt á Fáskrúðsfirði. Síðan máttum við til með að fara í fjöruna og tína steina sem við höfðum báðar mikinn áhuga á. Alltaf þegar við vorum hjá þér varð að fara að minnsta kosti í eina fjöruferð með nesti. Örn Rúnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.