Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012
Páll Vilhjálmsson dregur álykt-anir af nýliðnum atburðum:
Steingrímur J. Sigfússon og klík-an í kringum hann lítur á
Vinstrihreyfinguna grænt framboð
sem sína prívatfasteign sem megi
selja eða veðsetja eftir hentug-
leikum pólitískra hrossakaupa.
Grundvallarmálflokksins fara
fyrir lítið ef í boði er
feitt ráðherraemb-
ætti.
Framferði Stein-gríms J. og fé-
laga grefur undan
stjórnmálamenn-
ingu landsins.
Þegar félagsmenn og kjósendurstjórnmálaflokka geta ekki
lengur treyst því að margítrekaðar
samþykkir landsfunda haldi er
skammt í pólitíska upplausn.
Líkt og aðrir stjórnmálaflokkarmeð fulltrúa á alþingi fær
Vinstrihreyfingin grænt framboð
opinbert fé til rekstursins.
Almannafé til pólitískrar starf-semi er réttlætt með vísun til
þess að í lýðræðisþjóðfélagi skuli al-
menningur eiga valkosti í stjórn-
málum.
Lágmarksvirðing forystu stjórn-málaflokka fyrir flokkssam-
þykktum er forsenda fyrir því að
þessir valkostir séu raunverulegir
en ekki blekking.
Kjósendur Vinstrihreyfingarinn-ar græns framboðs fengu
stefnu Samfylkingarinnar eftir síð-
ustu kosningar vegna svika forystu
Vinstri grænna þann 16. júlí 2009.“
Páll Vilhjálmsson
Flokkur eða
fasteign?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Veður víða um heim 5.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 alskýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -3 skýjað
Kirkjubæjarkl. -2 skýjað
Vestmannaeyjar 2 alskýjað
Nuuk -12 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló -6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 skúrir
Stokkhólmur -1 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 8 léttskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 5 skúrir
Hamborg 5 skúrir
Berlín 5 skýjað
Vín 8 alskýjað
Moskva 1 léttskýjað
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 heiðskírt
Róm 12 skýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg 2 skýjað
Montreal -6 léttskýjað
New York 0 alskýjað
Chicago 2 léttskýjað
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:14 15:54
ÍSAFJÖRÐUR 11:53 15:25
SIGLUFJÖRÐUR 11:37 15:06
DJÚPIVOGUR 10:51 15:15
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Almenningur keypti tvöfalt fleiri
nýja fólksbíla í fyrra en árið 2010.
Alls seldust 5.042 nýir fólksbílar hér
á landi í fyrra, samkvæmt tölum
Umferðarstofu. Af þeim voru 2.547
bílar seldir öðrum en bílaleigum, að
sögn Bílgreinasambandsins. Árið
2010 keypti almenningur 1.266 nýja
fólksbíla og því meira en tvöfaldaðist
salan á nýjum fólksbílum til almenn-
ings á milli ára.
Í fyrra seldist mest af Toyota-
fólksbílum eða 787 bílar. Þar næst
kom Volkswagen með 614 bíla og svo
Suzuki með 516 bíla.
Íslenskir bílablaðamenn völdu
Volkswagen Passat Eco Fuel, sem
er sérstaklega smíðaður fyrir metan,
bíl ársins 2012. Kaupendur tóku
þessum bíl vel í fyrra og seldust þá
125 bílar í metanútfærslu. Einnig
seldist á þriðja tug Volkswagen
Caddy sendibíla í metanútfærslu.
Marinó Björnsson, sölustjóri
Heklu, sagði Passat-metanbílinn
vera með tank fyrir 34 m3 af met-
angasi og 31 lítra bensíntank. Bíllinn
kemst 450 km á metanfyllingunni og
430 km á bensíninu eða 880 km alls.
Volkswagen Passat er án vöru-
gjalda vegna þess að hann er met-
anknúinn. Marinó sagði að útreikn-
ingar í júní í fyrra hefðu sýnt að
miðað við ekna 1.000 km hafi verið
helmingi ódýrara að aka á metankn-
únum bíl en á bensínknúnum miðað
við samskonar tegundir bíla.
101% fleiri fólksbílar til almennings
Almenningur
keypti 2.547 nýja
fólksbíla í fyrra
101% aukning
í sölu nýrra bíla til almennings
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
2010 2011
1.266
2.547
Heimild: BGS
Morgunblaðið/Kristinn
Metan Marinó Björnsson sölustjóri við metanknúinn Volkswagen Passat.
Sími 555 2992 og 698 7999
VERIÐ VIÐBÚIN
VETRINUM
Hóstastillandi
og mýkjandi
hóstasaft frá
Ölpunum
NÁTTÚRUAFURÐ
úr selgraslaufum
Þeir tveir ráð-
herrar sem hurfu
úr ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurð-
ardóttur um ára-
mótin; Jón
Bjarnason og
Árni Páll Árna-
son, eiga rétt á
biðlaunum í sex
mánuði hvor, þ.e.
þeir halda ráð-
herralaunum í þann tíma að frá-
dregnu þingfararkaupi. Samkvæmt
upplýsingum úr forsætisráðuneyt-
inu gera þetta 2,7 milljónir króna á
hvorn ráðherra, eða samanlagt 5,4
milljónir króna.
Til viðbótar eiga aðstoðarmenn
ráðherranna rétt á biðlaunum í þrjá
mánuði hvor en forsætisráðuneytið
segir kostnaðinn
óljósan. Fari að-
stoðarmennirnir í
annað starf falla
biðlaunin niður
eða að þeir fá
greiddan mis-
mun.
Áform eru uppi
um frekari sam-
einingu ráðu-
neyta á þessu ári,
og þá í eitt atvinnuvegaráðuneyti
með samruna sjávarúvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins annars vegar
og iðnaðarráðuneytisins hins vegar.
Einnig gæti hluti verkefna efna-
hags- og viðskiptaráðuneytisins far-
ið þar inn í. Kostnaður við þessar
breytingar liggur ekki fyrir en und-
irbúningsvinna er hafin. bjb@mbl.is
5,4 milljónir króna
í biðlaun ráðherra
Árni Páll
Árnason
Jón
Bjarnason