Morgunblaðið - 06.01.2012, Side 10
Svart á hvítu er skemmtilegt blogg
um hönnun, heimili og hugmyndir. En
það er ungur vöruhönnuður í Reykja-
vík sem heldur úti síðunni.
Á blogginu má skoða alls konar
skemmtilegar útfærslur að hug-
myndum til að fegra heimilið. Þar er
meðal annars að finna leiðbeiningar
um hvernig búa megi til geómetríska
skál eða box úr pappír. Einfalt og
ódýrt og oft vantar mann svona lítil
box undir lykla og ýmiskonar smádót
sem þvælist um án þess að eiga fast-
an samastað. Ef þú ætlar að breyta
til í herberginu þínu eða á heimilinu
er hægt að fá margar sniðugar hug-
myndir á Svörtu og hvítu og er sjón
sögu ríkari. Breytingar þurfa nefni-
lega stundum hvorki að vera miklar
né dýrar til að manni takist að breyta
og fegra umhverfi sitt þannig að það
sýnist sem allt annað. Svona geta
ýmsir lausnir virkað sem töfrabrögð.
Vefsíðan www.svartahvitu.blogspot.com
Smáhlutir Ýmis konar litríkir hlutir lífga upp á heimilið og lífið um leið.
Samastaður smáhlutanna
Nú er árið 2011 liðið í aldanna skaut en nýir ogspennandi tímar taka við. Forseti vor, herraÓlafur Ragnar Grímsson, hefur þegar af-sannað spár helstu völva og véfrétta landsins
um næstu forsetakosningar og sýnt fram á að löngu liðinn
kollegi hans, Abraham Lincoln, hafði rétt fyrir sér þegar
hann sagði að framtíðin vitjaði okkar bara einn dag í einu.
En það á kjósa víðar og verða forsetakosningarnar
vestanhafs án efa meðal helstu frétta ársins. Gaman er að
velta því fyrir sér hvaða fleygu ummæli Lincoln léti falla,
fylgdist hann með tilburðum nútíma-frambjóðenda en sitt
sýnist hverjum um hver muni fara með sigur af hólmi;
sitjandi forseti eða frambjóðandi repúblikana? Eitt er þó
víst að ósigur Obama hefði miklar breytingar í för með
sér fyrir Bandaríkjamenn og hafa menn m.a. áhyggjur af
því að sjálfur Roe gegn Wade-dómurinn sé í hættu. Svo
ekki sé talað um fyrirhugaðar breytingar Obama á heil-
brigðiskerfinu.
Rick Santorum, eitt forsetaefna Repú-
blikanaflokksins, lét einmitt þau ummæli
falla í vikunni að sjúkratryggingum,
matarmiðum og öðrum velferðar-
úrræðum á vegum hins opinbera mætti
helst líkja við fasisma. Santorum, sem varð
annar í forkosningum í Iowa, vill banna
fóstureyðingar í öllum tilfellum og
Mitt Romney, sem bar sigur úr
býtum í Iowa, sagðist mundu
styðja það sem forseti að
Roe gegn Wade yrði snú-
ið.
Og hann er „sá frjáls-
lyndi“ í frambjóð-
endahópnum.
Nei, þótt Obama hafi
ekki staðist væntingar og
mörgum þyki hann hafa fest
sig í neti voldugra þrýstihópa og fyr-
irtækja ekki síður en fyrirrennarar hans,
hlýtur hann að teljast skömminni skárri
en hinn kosturinn. Síðasti forseti repú-
blikana setti lög sem gengu mjög á mannréttindi banda-
rískra ríkisborgara en sá næsti gæti bætt um betur.
Eru einhverjar líkur til þess að Bandaríkjamenn muni
verðlauna frambjóðanda flokksins sem vildi afnema
skattaívilnanir fyrir almenning en standa vörð um skatta-
fríðindi þeirra ofurríku? Ja, repúblikanar vilja meina að
þeir hafi Guð í liði með sér og það finnst varla öflugri fylg-
ismaður. Þrátt fyrir að vegir hans séu órannsakanlegir
virðast þeir í Bandaríkjunum liggja ansi langt til hægri.
Og hann ku vera afar hrifinn af teboðum.
Þá er nú öllu skemmtilegra að velta fyrir sér forseta-
kosningum á Íslandinu góða. Hversu mikinn skaða getur
íslenskur forseti gert? Ókei, það er kannski orðið um-
deilanlegt.
En hvern viljum við í embættið? Ég gæti nefnt hinn
og þennan sem mér finnst að myndu smellpassa á
Bessastaði en vandamálið er að ég er nokkuð viss um
að þeir, og aðrir sem hafa verið nefndir í
þessu samhengi, hafa eitthvað annað
betra að gera.
Menn hafa til dæmis talað um Pál
Óskar sem næsta forseta, hann
sem er uppteknasti maðurinn
á landinu! Ekki þar fyrir að
ég myndi reyndar styðja
hann 175%. En það þyrfti
að bóka hann fjögur ár
fram í tímann.
Pál Óskar á Bessastaði
2016?
»Þá er nú öllu skemmtilegra aðvelta fyrir sér forsetakosningum
á Íslandinu góða. Hversu mikinn
skaða getur íslenskur forseti gert?
HeimurHófíar
Hólmfríður Gísladóttir hofi@mbl.is
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ísland hefur ekki farið var-huga af Bieber fever en sá„sjúkdómur“ er kenndur viðkanadíska söngvarann Just-
in Bieber. Aðdáendahópur Biebers
á Íslandi kallar sig IceBeliebers og
heldur úti virkri Facebook-síðu.
Helsta markmið hópsins er að fá
Bieber til Íslands og er nú í bígerð
að safna undirskriftum til að
hvetja goðið til að koma.
Bieber-kröfuganga
„Við sendum póst á fram-
kvæmdastjóra Senu og þá kom í
ljós að hann er búinn að fara til
Bandaríkjanna á fund með um-
boðsmönnum Justins, en þeim
finnst þetta víst of lítið land til að
það taki því að hann komi hingað.
En Justin Bieber er fyrimyndin
okkar og hefur kennt okkur að gef-
ast aldrei upp, svo nú ætlum við að
safna undirskriftum og senda til
Senu. Kannski getur líka einhver
sem les þessa grein hjálpað okk-
ur,“ segir Olga Katrín Davíðsdóttir
Skarstad, Justin Bieber-aðdáandi
og einn meðlima íslenska aðdá-
endahópsins. Síðastliðið sumar
stóð hópurinn einnig fyrir svokall-
aðri Bieber Parade-kröfugöngu
niður Laugaveginn. Endaði gangan
á Ingólfstorgi þar sem hópurinn
söng lög með Justin. Segir Olga
Katrín það hafa verið mikið stuð
og nú séu þær að reyna að koma
myndbandi úr göngunni til Biebers
í gegnum Twitter.
„Justin Bieber bjó til síðu á
Twitter og við vitum að þetta er
ekta hann. Við erum alltaf að
reyna að senda myndbandið á hann
en það er mikil samkeppni og erfitt
að ná athygli hans,“ segir Olga
Katrín.
Varð allt brjálað
Aðspurð hvað hún myndi gera
ef hún hitti stjörnuna sjálfa segir
Olga Katrín að hún myndi líklegast
ekki koma upp orði. Það sem
heillar þær vinkonurnar við Justin
segja þær í raun vera allt, röddin,
hárið, hláturinn og útlitið. Íslensk-
ir aðdáendur Biebers eru nokkuð
margir og stelpur þar í meirihluta.
Fylgjast þær vel með því sem Bie-
ber tekur sér fyrir hendur og ræða
sín á milli í gegnum Facebook.
„Við erum alltaf að forvitnast
um hann og lesa fréttir á netinu.
Svo notum við hópinn til að spjalla
Justin Bieber-
hitasótt á Íslandi
Aðdáendur Justins Biebers á Íslandi eru margir þó að landið sé smátt. Reyna ís-
lenskir aðdáendur nú hvað þeir geta til að fá söngvarann knáa til landsins. Aðdá-
endahópurinn IceBeliebers á Facebook hefur þegar staðið fyrir Bieber Parade-
kröfugöngu og ætlar næst að standa fyrir undirskriftasöfnun. Þá reyna aðdáendur
að nýta sér samskiptavefinn Twitter til að ná til söngvarans.
Aðdáendur Vinkonurnar Ísabella, Olga Katrín og Halldóra Vera.
Bieber hlutir Safn Olgu Katrínar.
Nú er lag að sjá alla meðlimi hljóm-
sveitarinnar Reykjavík! spila saman,
en þeir ætla að vera með tónleika á
Bakkusi í kvöld. Þetta verður svokall-
að frígigg, kostar semsagt ekkert inn.
Einn af hljómsveitarmeðlimum,
Haukur Magnússon, ætlar að skipta
um starfsvettvang og hann verður
ekki á landinu næstu mánuði, og fyrir
vikið verða þetta síðustu tónleikar
með öllum meðlimum úr Reykja-
vík! … í bili. Það er því full ástæða til
að skunda niður á Bakkus og sjá og
heyra Reykjavík! sem byrjar að spila
um klukkan ellefu. PLASTIC GODS
koma einnig fram á Bakkusi í kvöld.
Endilega...
...farið á frí-
gigg í kvöld
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Sprell Hljómsveitin Reykjavík!
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Stjórn Listaháskólans hefur ákveðið
að undirbúa stofnun meistaranáms í
myndlist og hönnun næsta haust.
Ákvörðunin byggist á samþykkt Al-
þingis á 20 milljóna króna framlagi til
námsins á fjárlögum 2012. Nú þegar
eru starfræktar tvær námsbrautir á
meistarastigi í tónlist og nám í list-
kennsludeild er allt á meistarastigi.
Með stofnun námsbrautanna í mynd-
list og hönnun og fyrirhuguðum
breytingum á skipulagi náms á leik-
arabraut getur Listaháskólinn boðið
upp á heildstætt meistaranám í þeim
helstu greinum sem skólinn starf-
rækir.
Nám á nýju námsbrautunum er
skipulagt sem tveggja ára samfellt
nám til MA-gráðu á 2. þrepi, stigi 4,
samkvæmt viðmiðum mennta- og
menningarmálaráðuneytisins um
æðri menntun og prófgráður. Gert er
ráð fyrir átta nemendum í árgangi á
myndlistarbraut og tólf nemendum í
árgangi á hönnunarbraut. Námið
verður auglýst til umsóknar síðar í
vetur eða snemma í vor.
Tillögur liggja fyrir um rekstur alls
átta námsbrauta á þremur sviðum,
þ.e. meistaranám í listum og hönnun,
meistaranám í listkennslu og miðlun
og samevrópskt meistaranám í sköp-
un, miðlun og frumkvöðlastarfi auk
þverfaglegs meistaranáms fyrir fólk
með blandaðan bakgrunn úr listum,
fræðum, vísindum og atvinnulífi.
Nýtt meistaranám í LHÍ
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Myndlist Frá sýningu nemenda við Listaháskóla Íslands í vor.
Myndlist og hönnun