Morgunblaðið - 06.01.2012, Síða 13
FRÉTTIR 13innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012
Eldsneytisverð hækkar stöðugt,
síðasta hækkunin var í gær og er
dísilolía nú komin í um 250 kr. lítr-
inn. Um áramót hækkaði auk þess
vöru- og kolefnisgjald á bensín og
dísilolíu um 3,50 kr. á lítra. Ódýr-
asta 95 oktana bensínið var í gær
236,30 lítrinn hjá Orkunni.
Bensínlítrinn hefur hækkað hér á
landi á átta dögum um að jafnaði
8,7 krónur og dísillítrinn um 7,6
krónur. Magnús Ásgeirsson, inn-
kaupastjóri hjá N1, sagði í samtali
við mbl.is að tonnið af bensíni hefði
hækkað í desember um tæpa fimm-
tíu dali á heimsmarkaði. Gengi
Bandaríkjadals hafi auk þess hækk-
að, verið tæpar 119 krónur í byrjun
desember en í lok árs var dalurinn
skráður rúmar 123 krónur.
Magnús segir fréttir af mögu-
legum ófrið við Persaflóa og
ákvörðun Evrópusambandsins um
að hætta innflutningi á olíu frá Íran
ýta undir verðhækkanir á olíu-
markaði. kjon@mbl.is
Lítrinn af
dísilolíu yfir
250 krónur
Miklar hækkanir
á heimsmarkaði
Morgunblaðið/Frikki Morgunbla
Dýrtíð Dropinn af dísilolíu og bens-
íni verður stöðugt dýrari.
Gert var í gærkvöldi ráð fyrir mikilli
hláku suðvestanlands í nótt og næstu
daga en á mánudag mun sennilega
kólna á ný, varað er við mikilli hálku
meðan klakinn er að bráðna. „Hérna
suðvestanlands eru að ganga skil yf-
ir í nótt og snjóar sjálfsagt eitthvað
til að byrja með,“ sagði Elín Björk
Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veð-
urstofu Íslands. „Það er hvöss suð-
austanátt með þessu, líklega 15-20
metrar á sekúndu og gæti alveg farið
yfir 20 metra við suðurströndina í
nótt. Í fyrramálið gengur þetta yfir
landið og það verður hláka á láglendi
víðast hvar í fyrramálið.“
Elín Björk sagði að því mætti bú-
ast við flughálku á Norður- og Aust-
urlandi þar sem miklir klakabunkar
væru á vegum. En í kjölfar skilanna
myndi hann ganga í suðvestanátt og
skúraveður suðvestanlands fyrir há-
degið. „Snjórinn og klakinn ættu að
bráðna nokkuð en hitinn fyrir norð-
an verður meira í kringum frost-
mark og hlákan nær ekki þangað að
ráði núna.“ kjon@mbl.is
Mikil hláka suðvestanlands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mokað Næg verkefni hafa verið fyrir snjóruðningstæki síðustu vikur.
Hitinn hækkar í bili og gert er ráð fyrir mikilli rigningu
fram á helgi en minni hláku norðan- og austanlands
Finnbogi Jónsson
hefur ákveðið að
láta af störfum
sem fram-
kvæmdastjóri
Framtakssjóðs
Íslands en hann
hefur stýrt sjóðn-
um frá stofnun
hans fyrir um
tveimur árum.
Finnbogi segist í
fréttatilkynningu hafa ákveðið að nú
sé rétt að hætta sem fram-
kvæmdastjóri eftir tveggja ára mjög
erilsamt og krefjandi starf. „Þetta er
að mínu mati réttur tími eftir að
mikilvægum áföngum hefur verið
náð í rekstri sjóðsins sem hefur fjár-
fest mikið á undanförnum misserum.
Ég hef jafnframt fallist á að sinna
áfram sérstökum verkefnum fyrir
sjóðinn, m.a. með setu í stjórnum
einhverra þeirra fyrirtækja sem
sjóðurinn á eignarhlut í.“
Finnbogi
hættir hjá
Framtakssjóði
Finnbogi
Jónsson
ferð.is
Ferð.is flýgur til Verona
með Icelandair ferð.is
sími 570 4455
ferð.is er íslensk ferðaskrifstofa sem
einungis er starfrækt í gegnum netið.
Íslendingum gefst með ferð.is kostur á að
kaupa ódýrar ferðir á netinu án þess að
slaka á kröfum um öryggi, þjónustu og
góðan aðbúnað.
Ný ferðaskrifstofa á netinu
Verona19. janúar
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
E
R
13
21
88
0
01
/1
2
Renndu þér
á frábært
skíðatilboð
19. - 28. janúar
fljúgðu fyrir
minna
Verð frá99.900 kr.
Flug og gisting
• Pampeago Sport Hotel
• Val di Femme
19. janúar - 9 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með hálfu fæði.
Flug, flugvallarskattar og gisting með hálfu fæði. Verð á mann, flug og flugvallarskattar.
Verona19. janúar
Flug
verð frá39.900kr.