Morgunblaðið - 06.01.2012, Page 15
Í síðasta mánuði var landað um 1100 tonnum í Bol-
ungarvík og var róið stíft, enda gæftir þokkalegar. Þrír
aflahæstu bátarnir fóru í 23 róðra í þessum mánuði
jóla og áramóta og komu þeir að landi með 120-135
tonn hver. Á síðasta fiskveiðiári komu þeir að landi
með 1366-1449 tonn, en hafa ber í huga að verið er að
tala um 15 tonna línubáta.
Frá Bolungarvík eru að staðaldri gerðir út sex slíkir
bátar. Einn stærri línubátur beitir um borð og er á úti-
legu. Þá hafa ýmsir gert út tímabundið frá Bolungar-
vík eins og Valbjörn sem róið hefur þaðan í haust og
fyrrahaust, en fer síðan á rækju. Bátar af Snæfells-
nesi lönduðu drjúgum afla í Bolungarvík í haust. Ekki
má gleyma strandveiðunum en um 30 bátar í því kerfi
lögðu upp í Bolungarvík í fyrrasumar.
23 róðrar í desember
GÓÐUR AFLI LÍNUBÁTANNA
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012
VIÐTAL
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Nú er gott að búa í Bolungarvík,“ segir
Guðmundur Halldórsson, tæplega átt-
ræður eldhugi og skipstjóri, sem enn rær
í strandveiðikerfinu. „Línuívilnunin var
lykillinn að nýrri uppbyggingu hér í pláss-
inu og hefur skipt sköpum fyrir mörg
minni byggðarlög. Nú er verið að byggja
þrjá 15 tonna báta fyrir útgerðir í pláss-
inu og það er hugur í fólki,“ segir hann.
Út úr samantekt Fiskistofu má lesa að
útgerðir í Bolungarvík hafa haft veru-
legan ávinning af línuívilnun síðastliðin
átta ár. Niðurstaðan er sú að Bolungarvík
hafi fengið 1360 tonn af steinbít á þennan
hátt, 1560 tonn af ýsu og tæplega 2300
tonn af þorski. Á meðalverði á fiskmark-
aði á síðasta ári gæti verðmætið numið
um 1650 milljónum króna og munar um
minna.
Guðmundur rifjar upp að um aldamótin
hafi verið farið að skerðast um aflaheim-
ildir í Bolungarvík Þegar ýsa og stein-
bítur hafi verið kvótasettar árið 2001 hafi
öll sund virst lokuð. Línuívilnun hafi kom-
ið í umræðuna og árin í kringum aldamót-
in hafi margvísleg barátta verið fyrir
framtíð atvinnulífs víða á landsbyggðinni
Með neyðarblys á Austurvelli
„Við reyndum allt til að vekja athygli á
málstað okkar, því tilveruréttur byggð-
arlaganna var í hættu. Þetta var upp á líf
eða dauða,“ segir Guðmundur. „Eitt árið
stóðum við sjóklæddir á Austurvelli með
brennandi neyðarblys, í annað skipti stóð
ég fyrir fjölmennum fundi á Ísafirði og
loks sá ég að ég þyrfti að vinna þetta mál
á vettvangi Sjálfstæðisflokksins. Þar var
tillaga um línuívilnun naumlega felld í
sjávarútvegsnefnd eins landsfundarins, en
ég gafst ekki upp og bar tillöguna um
línuívilnun upp á sjálfum landsfundinum.
Þar hafði ég sigur og ég var stoltur af
flokknum. Hjólin fóru að snúast, þrátt fyr-
ir öfluga andstöðu LÍÚ og fleiri.“
Guðmundur er ánægður þegar hann lít-
ur til baka og aðrir kunnu að meta dugn-
að hans. Hann var kjörinn Vestfirðingur
ársins eitt árið og heiðursfélagi í Lands-
sambandi smábátasjómanna og Eldingu,
smábátafélaginu á Vestfjörðum.
Bátarnir öflugir og öruggir
Flestir þeir bátar sem róa frá Bolung-
arvík eru undir 15 tonnum og eru í da-
gróðrum. Línan er beitt í akkorði í landi
og starfa 60-70 manns við beitinguna.
Guðmundur segir ekki hafa verið vanda-
mál að fá fólk til þeirrar vinnu, einkum Ís-
lendinga, en einnig útlendinga og hafi
sumt af þessu fólki aldrei unnið önnur
störf en við beitingu. Um borð í bátunum
eru tveir hverju sinni, en gjarnan eru þrír
í áhöfn og þá alltaf einn í tveggja daga
fríi.
„Bátarnir eru í raun ekki margir, en
héðan er hörð sjósókn eins og alltaf hefur
verið og róið flesta daga,“ segir Guð-
mundur. „Sjómennirnir eru góðir og bát-
arnir öflugir og öruggir, þvert á það sem
spáð hafði verið. Þeir eru flestir byggðir
hér innanlands, sem er atvinnuskapandi
öndvert við það sem gerist með stærri
skipin. Nú er verið að smíða þrjá nýmóð-
ins 15 tonna báta fyrir Bolvíkinga og
þessir hraðskreiðu bátar hafa stækkað
heimamiðin okkar. Hvert löndunarmetið
hefur verið slegið af öðru og höfnin hér
hefur verið rekin með hagnaði þó svo að
héðan séu nánast eingöngu gerðir út
minni bátar.
Talsvert og vaxandi magn er unnið í
fiskvinnslunni hér, en ég viðurkenni að
það er blóðugt að sjá um sjö þúsund tonn-
um keyrt í burtu til vinnslu annars staðar
eða beint í útflutning,“ segir Guðmundur.
Auk heimabáta hafa m.a. línubátar af
Snæfellsnesi landað í Bolungarvík. Beitt-
um línubölum er þá ekið vestur og farmur
bílanna er svo nýveiddur fiskurinn.
Lottó og línuívilnun
Guðmundur segist enn vera litinn horn-
auga af ýmsum í stórútgerðinni en segist
ódeigur í að verja línuívilnunina: „Við
fáum það alltaf í hausinn að ívilnunin sé
tekin af öðrum,“ segir Guðmundur. „Þeir
sem mest kvarta undan þessu fengu mak-
rílinn, kolmunnann og gulldepluna á silf-
urfati á síðustu árum. Uppsjávarfiskurinn,
sem gefur mikinn hagnað, kemur að mjög
litlu leyti á land á Vestfjörðum. Þeir fengu
lottóvinning, sem hefur gert mörg fyr-
irtæki öflug, en við fengum línuívilnunina,
sem byggt hefur upp atvinnulífið hér í
Bolungarvík og víðar,“ segir Guðmundur.
Hann segir að auk byggðastefnu og at-
vinnusköpunar hafi rökin fyrir línuívilnun
einkum verið þau að styðja við minni sjáv-
arpláss og leyfa þeim sem búa þar að
njóta heimamiðanna. Með landbeittri línu
njóti byggðarlagið afla dagróðrabáta af
nærmiðum og hafi Bolvíkingar margir
tekið beitingavélar úr bátunum. Þetta sé
öndvert við það sem margir bátar með
beitingarvél ástundi, en þeir veiði gjarnan
í sig á fjórum til fimm dögum þar sem
mestur afli er hverju sinni og færi sig síð-
an um set.
Guðmundur segir óvissu í fisk-
veiðistjórnun og óttast hugmyndir um að
afnema línuívilnun: „Ef kvótakerfið verður
áfram og það litla sem þessar litlu byggð-
ir þó fá verður tekið af líst mér ekki á
blikuna. Kvótakerfið gengur ekki nema
litlu byggðirnar fái að njóta nærmiðanna.
Ég held að þingmenn, ekki síst ýmsir
þingmenn þessa kjördæmis, ættu að
staldra aðeins við og hugsa hvert þeir
vilja fara með þessar byggðir.“
Línuívilnun var lykillinn
Öflug útgerð minni báta í Bolungarvík Línuívilnun hefur skilað Bolvíkingum um 1650 milljónum
Löndunarmetin slegin og þrír bátar í smíðum Óttast hugmyndir um að afnema línuívilnun
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Baráttumaður Guðmundur Halldórsson staldrar við á bryggjunni í Bolungarvík í blíðunni í gær. Sjálfur rær hann í strandveiðikerfinu.
Vinna Baldur Ingimarsson við beitingu í Bolungarvík, en yfir 60 manns hafa þann starfa. Alþingi samþykkti að taka upp línuívilnun með
breytingum á lögum um stjórn fiskveiða 15. desem-
ber 2003. Breytingin kom til framkvæmda í ýsu og
steinbít 1. febrúar 2004 og í þorski 1. september
2004. 1. júní 2010 var línuívilnun hækkuð úr 16% í
20%.
Með línuívilnun er viðkomandi heimilt að fiska
20% umfram þann afla í þorski, ýsu og steinbít sem
reiknast til kvóta hjá viðkomandi. Með öðrum orðum
þýðir það að sá sem á 100 tonna kvóta má veiða 120
tonn á landbeitta línu.
Þegar togarar voru seldir frá Bolungarvík fór með
þeim mikill kvóti. Sókn línubáta jókst og var eitt af
veiðikerfum krókabáta kennt við þorskaflahámark,
en það var innleitt 1. september 1995. Þorskafla-
hámarkið tók mið af meðalþorskafla einstakra báta
tvö bestu árin af árunum 1992–1994. 1. september
2001 voru þorskaflahámarksbátar kvótasettir í öll-
um tegundum. Eftir það voru þessir bátar nefndir
krókaaflamarksbátar.
100 tonna kvóti gerir
120 tonn með ívilnun
MISSTU TOGARA OG KVÓTA