Morgunblaðið - 09.03.2012, Page 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2012
✝ Kristján Daní-elsson fæddist
7. apríl 1946 á
Beigalda í Borgar-
hreppi. Hann lést
á Landspítalanum
sunnudaginn 26.
febrúar 2012. For-
eldrar Kristjáns
voru Daníel Krist-
jánsson skógar-
vörður frá Hreða-
vatni, f. 25. ágúst
1908, d. 24. apríl 1982, og Ásta
Guðbjarnadóttir, f. 9. nóv-
ember 1907, d. 1. júlí 1984.
Systkini Kristjáns eru Guð-
mundur Daníelsson, f. 3. októ-
ber 1938, og Hrefna Daníels-
dóttir, f. 19. janúar 1942.
Bróðir samfeðra var Ragnar
Daníelsson sem er látinn.
Kristján kvæntist Ingibjörgu
Stefánsdóttur, f. 4. janúar
1947, d. 18. desember 2005,
hinn 26. desember 1971 í Ár-
Jónasson, f. 28. janúar 1969.
Börn þeirra eru Salka Björk, f.
4. september 2003, og Nökkvi
Freyr, f. 15. nóvember 2009. 4)
Silvía Kristjánsdóttir, f. 3.
ágúst 1985.
Kristján ólst upp á Hreða-
vatni til 13 ára aldurs og flutti
þaðan til Reykjavíkur með
móður sinni. Þrátt fyrir það
bar hann sterkar taugar til
Hreðavatns og eyddi þar öllum
sumrum og fríum.
Kristján lærði matreiðslu á
Hótel Holti og var fyrsti mat-
reiðsluneminn sem útskrifaðist
þaðan. Hann starfaði á ýmsum
veitingastöðum. Hann var
lengi veitingastjóri á Hótel
Esju og síðar í Þórskaffi. Hann
var virkur í Klúbbi matreiðslu-
manna og keppti fyrir þeirra
hönd á Norðurlandamótum.
Þau hjónin fluttu upp á Hvann-
eyri 1996 og störfuðu í mötu-
neyti Bændaskólans þar til
ársins 2002. Síðustu árin starf-
aði hann sem matreiðslumaður
í Fossvogsskóla.
Kristján verður jarðsunginn
frá Grafarvogskirkju í dag, 9.
mars 2012, og hefst athöfnin
kl. 13.
bæjarkirkju. For-
eldrar Ingibjargar
eru Stefán Krist-
inn Sveinbjörns-
son, f. 24. júní
1919, d. 20. apríl
1999, og Ólína El-
ínborg Kristleifs-
dóttir, f. 11. októ-
ber 1921. Börn
Kristjáns og Ingi-
bjargar eru: 1)
Ásta Sjöfn, f. 9.
nóvember 1971, g. Guðmundi
Ólafssyni, f. 9. apríl 1954.
Barn Ástu með Steinari Þór
Kristinssyni er Hekla Karen, f.
15. febrúar 1992. Börn Ástu og
Guðmundar eru: Tindur Ólaf-
ur, f. 2. júní 2003, Ketill Ingi,
f. 12. janúar 2005, og Kristján
Steinn, f. 10. desember 2007.
2) Drengur Kristjánsson, f. 9.
maí 1974, lést 15. maí sama ár.
3) Dagný, f. 24. apríl 1976,
sambýlismaður Jónas Bragi
Elsku pabbi!
Nú ert þú farinn frá okkur og
kominn til hennar mömmu. Ég
verð nú að játa að mér finnst líf-
ið vera ósanngjarnt að taka ykk-
ur bæði frá okkur í blóma lífsins.
Á svona stund langar mann til
að segja svo margt en oft skortir
mann orð til þess að koma því
frá sér. Ég var pabbastelpa þeg-
ar ég var lítil og leit ofsalega
upp til þín. Enda var ég ákveðin
í að fara í veitingageirann eins
og þú. Mamma tók að sér að
strauja allar skyrturnar okkar
og voru þær ófáar. Ósjaldan
hringdi ég í þig þegar ég var á
eldhúsbílnum til þess að fá ráð
hvernig ég ætti að elda hitt og
þetta. Ég hefði aldrei komist í
gegnum fyrstu ferðina mína
nema hafa þig í símanum. Það
var svo frábært að koma til ykk-
ar mömmu á Hvanneyri og var
það annað heimili hennar Heklu.
Þegar ég tók við Bjarkalundi
varstu boðinn og búinn að koma
vestur og hjálpa mér. Ef eitt-
hvað þurfti að skutlast þá varstu
þú alltaf tilbúinn. Það var gaman
að ferðast með þér, því að þú
þekktir hvern krók og kima á Ís-
landi. Tvær ferðir eru mér sér-
staklega eftirminnilegar, þegar
við ferðuðumst um Norðaustur-
land með móðurfjölskyldu minni
1994 og þú og Hekla tókuð
þrjóskukast í Hólmatungum og
þegar við fjölskyldan fórum á
Vestfirði árið 2009, þegar þú
fórst með strákunum mínum í
gegnum safnið á Hnjóti og svar-
aðir öllum spurningum þeirra
með mikilli þolinmæði. Þú eld-
aðir frábæran mat og ert að
mínu mati einn besti kokkur sem
ég þekki. Þetta var þitt áhuga-
mál og það eru til drög að alls-
kyns matseðlum hjá þér. Þér
fannst gaman að kynna þér nýj-
ungar í matreiðslu og það voru
ófáir nýir veitingastaðir sem við
heimsóttum með þér. Það var
gaman að tala við þig um þjóð-
mál, þar varst þú vel inni í öllu
og hafir miklar skoðanir á hlut-
unum, ég minnist margra stunda
þegar ég kom suður og við sát-
um í sófanum og spjölluðum um
allt á milli himins og jarðar. Ef
mig vantaði ráð þá varst þú allt-
af fyrsti kostur til að hringja í og
undantekningarlaust gast þú
hjálpað að sjá hlutina í réttu
ljósi. Þú varst duglegur að segja
strákunum mínum frá ýmsum
hlutum, t.d. síðastliðið sumar
þegar þú sast með Katli og
fræddir hann um flugvélar og
helgina áður en þú lést varst þú
að segja þeim frá því að Sund-
höll Reykjavíkur hefði verið
skotfærageymsla í seinni heims-
styrjöldinni og það fannst þeim
merkilegt. Ég er þakklát fyrir
að hafa átt þig sem pabba, þú
hefur mótað mig í það sem ég er
í dag. Ég er þakklát fyrir að
hafa átt með þér frábæra sum-
arbústaðaferð í Munaðarnesi síð-
astliðið sumar, þar sem þú
kenndir Heklu að grilla nauta-
prime og kynntir skaðvaldinn
lúpínu fyrir yngri barnabörnun-
um. Ég er þakklát fyrir að við
systur, makar og börn gátum
verið með þér helgina áður en
þú lést og gert það sem þér
fannst vera bestu gæðastundirn-
ar, að borða saman. Ég er þakk-
lát fyrir að þér líður ekki lengur
illa og ert kominn á góðan stað
hjá henni mömmu.
Elsku pabbi, ekki hafa
áhyggjur af okkur, við systurnar
stöndum saman og tryggjum að
minning ykkar mömmu fái að
lifa áfram í barnabörnum ykkar.
Þín elskandi dóttir,
Ásta Sjöfn.
Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Minningarnar eru margar og
þráin eftir fleirum mikil. Þú
kvaddir þennan heim alltof
snemma. Þú stóðst þig eins og
hetja í baráttunni og vorum við
aldrei annað en bjartsýn á að
þetta myndi fara vel. En lífið er
okkur ekki alltaf hliðhollt og því
fór sem fór.
Þú varst yndislegur pabbi, þú
hvattir mig alltaf áfram og hafð-
ir alltaf trú á því sem ég var að
gera. Ég gat alltaf leitað til þín
um ráð og upplýsingar. Eins og
góður vinur þinn sagði þá vissir
þú allt. Það var alltaf að gaman
að tala við þig um þjóðmálin,
sögu, landafræði og bara allt
milli himins og jarðar. Þú gast
alltaf sett þig í spor manns,
hafðir skoðun á öllu og reyndir
alltaf að finna bestu lausnina.
Við tvö áttum ekki alltaf veður
saman en eins og við ræddum
um vorum við kannski bara svo
lík. Ég mat það alltaf í fari í þínu
hvernig þú varst við fólk og
hvernig þú tókst öðrum. Þú
varst alltaf boðinn og búinn að
hjálpa okkur Jónasi, hvort sem
það var að skutla krökkunum
landshornanna á milli, klippa
trén í garðinum okkar eða passa
köttinn okkar þegar við dvöldum
í Noregi, svo eitthvað sé nefnt.
Minningarnar eru margar
sem og öll ferðalögin sem við
fórum í. Okkur Jónasi og Sölku
þótti alltaf mjög gaman að
ferðast með þér. Minnisstæð eru
ferðalög um landið eins og Snæ-
fellsnesið sumarið 2007 og svo
Vestfirðina sumarið 2009. Einnig
höfðum við mjög gaman af því að
fá þig í heimsókn til okkar í
Stavanger sumarið 2010, þar átt-
um við yndislegan tíma sama.
Einar bestu minningarnar í síð-
ari tíð eru þær hvað þú varst
alltaf að bjóða okkur systrunum
og börnunum út að borða. Þér
fannst það ekki leiðinlegt og það
voru okkar gæðastundir.
En nú ertu kominn til
mömmu og hún hefur án efa tek-
ið dansandi á móti þér með
Skottu á eftir sér. Samband ykk-
ar mömmu var alltaf svo sterkt
og kannski var sorgin við fráfall
mömmu meiri en við gerðum
okkur grein fyrir. Þú engu að
síður gerðir þitt besta og varst
stoltur AA-maður og vorum við
systurnar mjög stoltar af þér.
Ég mun alltaf sakna þín, elsku
pabbi minn, allar þínar ráðlegg-
ingar og speki gleymist seint.
Þín dóttir,
Dagný.
Elsku pabbi minn. Mér finnst
það svo sárt að þú sért farinn,
pabbi, ég bara veit ekki hvernig
ég fer að án þín. Þú varst ekki
einungis pabbi minn, þú varst
minn besti vinur og ég gat alltaf
leitað til þín. Ég hugsa til þín
með svo sárum söknuði, á eftir
að sakna þess að geta ekki
hringt í þig og spjallað um allt
og ekkert, sakna þess að fara út
að borða með þér og sakna þess
að sofna í sófanum heima hjá
þér. Þú varst mér ótrúlega góð-
ur og allt vildir þú fyrir mig
gera, þú varst alltaf bara einu
símatali í burtu. Það sýndi sig
best hvað þú varst hugulsamur
pabbi að eitt af því síðasta sem
þú sagðir við mig á spítalanum
var: „Silvía mín, er eitthvað sem
ég get gert fyrir þig?“ Ég á svo
ótal margar góðar minningar um
þig, pabbi minn, sem ég ætla
varðveita svo vel í hjartanu mínu
og segja af þér sögur og ég mun
alltaf líta upp til þín og lifa eftir
því sem þú kenndir mér. Þú
varst svo flottur maður, alltaf
svo smart í tauinu og brosmildur
varstu og myndarlegur. Það var
alltaf svo gott að koma til þín í
mat, við borðuðum svo oft saman
og elsku pabbi hvað þú gerðir
góðan mat, súpurnar þínar voru
lostæti og uppáhaldsmaturinn
minn er og verður alltaf kjötsúp-
an hans pabba.
Elsku besti pabbi minn, ég vil
fá að þakka þér fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig. Ástarþakkir
fyrir að gera mér ljóst hvað í
mér býr, þú hafðir alltaf svo
mikla trú á mér og það er mér
svo mikils virði. Þakka þér fyrir
að skynja það hvenær ég gat
staðið á eigin fótum og fyrir að
láta mig halda eina áfram, ekki
þó alveg eina, ég vissi að ég gat
alltaf hringt. Ég gekk að ráðum
þínum vísum. Þú hafðir skoðanir
á öllu og það var svo gott að leita
ráða hjá þér. Takk pabbi fyrir
allar sögurnar, allan fróðleikinn
og takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir litlu stelpuna þína.
Og takk fyrir matinn.
Ég veit þú ert kominn á góð-
an stað, ég veit að mamma tók á
móti þér opnum örmum. Þið er-
uð saman á ný og að vita til þess
að þú, mamma og Skotta eruð
saman hjálpar mér í gegnum
sorgina. Ég mun hugsa til ykkar
dag sem nótt og þið verðið alltaf
hjá mér í hjartanu. Ég elska
ykkur svo mikið, knús og kossar
til ykkar allra.
Saknaðarkveðja.
Þín
Silvía.
Það var blessun í mínu lífi að
eiga yndislega tengdaforeldra.
Að vera heiðarlegur og alltaf til
staðar fyrir þá sem standa
manni næst er nokkuð sem ekki
er hægt að taka sem gefnum
hlut, en þannig voru mínir
tengdaforeldrar. Ástkær tengda-
móðir mín, Ingibjörg Stefáns-
dóttir, lést 18. desember 2005 og
var mikill harmur af missi henn-
ar. Þann daginn eignuðust við
fjölskyldan engil sem fylgt hefur
okkur síðan. Sunnudaginn 26.
febrúar 2012 lést hennar ástkæri
eiginmaður og tengdafaðir minn,
Kristján Daníelsson, eftir hetju-
legan bardaga.
Við Stjáni áttum oft langar og
skemmtilegar samræður um alla
hluti og ég upplifði hann oft
meira sem vin og félaga síðustu
árin. Stjáni hafði skoðun á öllu,
hvort sem var á hinum pólitíska
vettvangi eða hvernig viðraði í
Bláfjöllum þann daginn. Hann
hafði ávallt skýringu eða í það
minnsta svar við flestu. Mér
þótti afskaplega gott að fá hans
álit þar sem hann bjó yfir mikilli
rétthugsun, hafði sterkar skoð-
anir og talaði helst aldrei illa um
neinn. Hann var á margan hátt
fræðimaður og það var ekki lé-
legt að eiga slíkan mann að. Allt-
af vildi Stjáni vera til staðar og
má þar nefna þegar við fjöl-
skyldan fórum til Noregs eitt
sumarið að hitta vini og ég að
vinna. Í Noregi höfðu margir af
mínum vinum þar hvorki fengið
fjölskyldu eða vini í heimsókn,
en við, sem höfðum verið þarna í
þrjár vikur og vissum varla hvar
pósthúsið var, fengum Stjána í
heimsókn sem vildi ólmur koma
og skoða þessa norsku borg.
Eftir fyrsta daginn þar hafði
hann arkað hana á enda og
fannst allt svo merkilegt. Hann
var bara svo forvitinn og fróð-
leiksþyrstur að maður hreifst
alltaf með þó svo að hann hefði
eina til tvær „tillögur“ ætíð klár-
ar.
Þetta sumarið blómstraði
hann tengdapabbi minn og átt-
um við fjölskyldan með honum
margar of okkar bestu stundum
og ég hélt að svona orkumikill
og lífsþyrstur maður myndi lifa
að eilífu. Mínar síðustu stundir
með Stjána voru mér dýrmætar.
Ég heimsótti hann þá reglulega í
Starengið, hellti uppá kaffi fyrir
okkur og við settumst í stofuna
hans og fórum yfir stöðu mála.
Hann hafði skýra sýn á heild-
armyndina allt fram á síðasta
dag og veitti mér mikinn styrk
og gaf mér góð ráð inn í lífið sem
ég verð ævinlega þakklátur fyr-
ir.
Ég gæti ekki hafa óskað mér
betri tengdaföður, vinar og fé-
laga.
Hvíl í friði Stjáni.
Þinn tengdasonur,
Jónas.
Elsku fallegi afi minn. Núna
ert þú búinn að kveðja fjölskyld-
una þína og farinn til Ingu þinn-
ar, Skottu og foreldra þinna.
Núna ertu hættur að þjást og
kominn á betri stað. Elsku afi
minn, hvað það er skrítið að
hugsa til þess að þú sért farinn
og stundirnar með þér verði ekki
fleiri.
Ég þakka fyrir allar minning-
arnar okkar saman og er ég sér-
staklega þakklát fyrir síðastliðin
fjögur ár. Þegar ég flutti á Akra-
nes til að fara í framhaldsskóla
var sett sú regla að ég þyrfti að
fara suður á hverjum þriðjudegi
til þín í mat. Þetta voru okkar
kvöld, ég, afi og Silvía að borða
góðan mat og spjalla. Þessi
kvöld fara seint úr minninu, og í
söknuðinum finnst mér ekkert
betra en að hugsa til þess þegar
ég kom til þín á þriðjudags-
kvöldum. Borðuðum góðan mat
sem þú hafðir eldað handa „litlu“
stelpunum þínum, það sem þú
gerðir góðan mat, afi minn. Það
var alltaf svo gott að koma til
þín á Starengi, elsku afi, þú
varst svo góður og vildir öllum
vel.
Ég gleymi því seint þegar þú
og Inga amma bjugguð á
Hvanneyri og ég kom svo oft til
ykkar, ég hélt svo mikið upp á
ykkur.
Þegar ég komst í Morfís-liðið
á öðru ári og ég vildi fá fjöl-
skylduna mína til að koma og
horfa á mig keppa, komst enginn
nema þú, og það var svo gott að
vita af þér í salnum, vitandi af
þér fylgjast með mér uppi á
sviði.
Þú hringdir í mig nokkrum
vikum fyrir andlát þitt og sagðir
mér hvað þú værir stoltur af
mér. Stoltur af því að ég ætlaði
að verða bóndi og skammaðist
mín ekkert fyrir það. Þú sagðir
alltaf að ég hefði erft rollu-
áhugann frá Daníel, pabba þín-
um, hann hefði verið alveg eins
og ég, munað númerin á öllum
rollunum. Og svo sagðir þú hvað
þú værir stoltur af því hvað ég
væri sjálfstæð og ákveðin mann-
eskja sem gerði það sem mig
langaði.
Svo þegar ég sagði þér frá því
einu sinni að ég væri orðin svo
þreytt á skólanum og að ég
nennti þessu ekki lengur sagðir
þú: „Hekla mín, taktu einn dag í
einu og reyndu þitt besta, ef það
tekst ekki þá reynir þú bara aft-
ur.“
Ég sagði þér frá því að ég
væri að fara til Venesúela að
vinna í fimm vikur í dýragarði
og ferðast svo í fimm vikur um
Suður-Ameríku. Þú varst svo
spenntur fyrir mína hönd og sát-
um við í klukkutíma að skoða
kort af Suður-Ameríku og þú
hjálpaðir mér að bera fram nöfn-
in á löndunum og sagðir mér það
sem þú vissir um Suður-Amer-
íku. Dáðist að mér að láta verða
af þessu og spjölluðum við mikið
um þetta eftir að ég sagði þér
frá þessu plani mínu.
Elsku besti, fallegi afi minn,
þú hefur kennt mér svo margt.
Takk fyrir að vera besti afi í
heimi, maður gat alltaf treyst á
þig og þú varst alltaf reiðubúinn
að hjálpa manni ef eitthvað bját-
aði á.
Hálsmenið sem þú gafst mér
er svo dýrmætt fyrir mér og ég
veit að þú verður núna með Ingu
ömmu að fylgjast með mér.
Hvað ég vildi mikið að bræður
mínir og hin barnabörnin þín
myndu kynnast sama afa og ég,
því þú varst svo sannarlega einn
af þeim bestu.
Það er sárt að hugsa til þess
að þú sért farinn en núna líður
þér betur.
Mér þykir vænt um þig, afi
minn.
Minning þín lifir ávallt í
hjarta mínu.
Þín
Hekla Karen.
Hann Stjáni frændi minn er
farinn frá okkur, kominn í faðm
Ingu sinnar sem örugglega hef-
ur tekið vel á móti honum! Við
vorum jafnaldrar og systkina-
börn og þekktumst því vel. Hann
átti heima á Hreðavatni en ég í
Arnarholti og vorum við í skól-
anum á Varmalandi, pabbi hans
átti bíl svo ég fékk að fljóta með.
En árið fyrir fermingu flutti
hann til Reykjavíkur með móður
sinni. Fór þar í skóla, svo í
Reykholt. Lærði síðan kokkinn,
Það varð hans aðalstarf. Á heim-
ili Ástu frænku og þeirra
bræðra, Gumma og Stjána, var
gott og skemmtilegt að vera. Þar
áttum við systkinin frá Arnar-
holti athvarf um lengri eða
skemmri tíma við nám og vinnu
fyrir sunnan. Ég hugsa með
þakklæti til þess tíma. Ungur
kynntist Stjáni konu sinni, Ingi-
björgu Stefánsdóttur, sem lést
18. des. 2005, og eignuðust þau
þrjár yndislegar dætur og
barnabörnin eru sex. Þau áttu
fallegt heimili hvort sem var í
Reykjavík eða á Hvanneyri en
þar var hann kokkur við bænda-
skólann. Það var gott og gaman
að koma til þeirra, Inga var mik-
il hannyrðakona og setti það fal-
legan svip á heimili þeirra. Það
var honum þungbært að missa
konu sína eftir erfið veikindi, og
nú er hann búinn að berjast við
þessi erfuðu veikindi og ætlaði
að sigra. „Ég kem í sveitina til
þín í vor frænka, ég ætla að
komast í gegn um þetta.“ En
baráttunni er lokið og það er
tómarúm í hjarta mínu. Elsku
Ásta Sjöfn, Dagný, Silvía og fjöl-
skyldur og aðrir aðstandendur.
Guð veri með ykkur og veiti ykk-
ur hjálp í sorginni. Blessuð sé
minning Stjána frænda míns.
Elínborg Anna Guðmunds-
dóttir, Laugardalshólum.
Í dag kveðjum við góðan fé-
laga og samstarfsmann, Kristján
Daníelsson matreiðslumeistara.
Kristjáni kynntumst við fyrst
fyrir rúmum átta árum þegar
hann var ráðinn matreiðslumað-
ur við mötuneyti Fossvogsskóla
sem tók til starfa haustið 2003.
Það kom fljótt í ljós að það
var gæfa Fossvogsskóla að fá
Kristján í þetta mikilvæga starf.
Kristján var mikill fagmaður og
sinnti starfi sínu af alúð og sam-
viskusemi. Hann lagði sig fram
um að útbúa mat sem var í senn
hollur og fjölbreyttur og var
frumkvöðull í ýmsu er varðar
mötuneyti grunnskólanna. Krist-
ján lagði metnað sinn í rekst-
urinn og var vel liðinn af sam-
starfsfólki bæði innan skólans og
utan. Kristján átti góð samskipti
við nemendur og oft mátti heyra
þá ræða sín á milli um matseð-
ilinn og hvað væri í matinn hjá
Kristjáni þennan eða hinn dag-
inn enda er kokkurinn mjög
mikilvægur starfsmaður í hug-
um nemenda. Ekki var minni
eftirvænting hjá starfsfólki þeg-
ar mikið stóð til og Kristján var
fenginn til að töfra fram veislu-
mat, t.d. alls konar fína fiskrétti
sem fáir hefðu leikið eftir. Fyrir
allt þetta viljum við þakka.
Það var fyrir réttu ári að
Kristján kenndi sér þess meins
sem nú hefur lagt hann að velli
langt fyrir aldur fram. Þrátt fyr-
ir erfið veikindi var Kristján allt-
af staðráðinn í að koma til starfa
á ný, ræða heimsmálin á kaffi-
stofunni og blanda geði við börn
og fullorðna.
Að leiðarlokum viljum við
þakka Kristjáni samstarfið á
liðnum árum og sendum fjöl-
skyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd starfsfólks Foss-
vogsskóla,
Óskar S. Einarsson
skólastjóri.
Kristján
Daníelsson
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR