Morgunblaðið - 14.04.2012, Síða 23
eyrir lengur
Morgunblaðið/Ómar
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
gagnrýnir það harðlega að samn-
ingurinn milli ríkisins og sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu feli
í sér að öllum meiriháttar sam-
gönguframkvæmdum verði slegið á
frest næstu tíu árin.
„Kynning á samkomulaginu hef-
ur gengið út á að það sé verið að
efla almenningssamgöngur og setja
fjármagn sérstaklega til þess verk-
efnis og það er auðvitað mjög já-
kvætt og gott að verið sé að auka
stuðning við þær. En það þarf líka
að koma fram að á sama tíma er bú-
ið að slá samgöngumannvirkjagerð
á höfuðborgarsvæðinu út af borð-
inu þar til 2022,“ segir Júlíus.
Markmiðið með samkomulaginu
er m.a. að auka notkun almennings-
samgangna a.m.k. tvöfalt og segir
Júlíus hugsunina á bakvið fyrir-
komulagið þá að ef fólk nýti sér al-
menningssamgöngur í auknum
mæli, dragi það úr þörfinni fyrir
samgöngumannvirkjagerð. Dæmið
gangi þó ekki upp.
„Íbúum á höfuðborgarsvæðinu
mun t.d. fjölga
um 17 þúsund á
þessu tímabili og
þannig mun engu
að síður verða
aukning í um-
ferðarkerfinu.
Bættar almenn-
ingssamgöngur
koma ekki í stað-
inn fyrir bygg-
ingu umferðar-
mannvirkja,“ segir Júlíus.
Hann segir höfuðborgarsvæðið
aðeins hafa fengið um 10% af fram-
kvæmdafé til vegamála undanfarin
ár og að með samningnum verði
það hlutfall ekki bara fest heldur
veitt til annarra verka. Þá telur
hann útilokað að slá á frest fram-
kvæmdum sem tengjast gatnakerf-
um sem liggja að Landspítala.
„Árið 2017 er gert ráð fyrir að 97
þúsund fm bygging muni rísa við
Landspítalann og það er alveg ljóst
að það mun kalla á gífurlega aukn-
ingu umferðar um svæðið. Og það
er óábyrgt að reikna ekki með
framkvæmdum því tengdum.“
Útilokað að fresta
framkvæmdum
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Slegið á frest
» Hringvegur – mislæg gatna-
mót við Hallsveg/Úlfarsfells-
veg, Korpúlfsstaðabraut og
Skarhólabraut.
» Hringvegur – mislæg gatna-
mót við Breiðholtsbraut og
Norðlingaholt.
» Hafnarfjarðarvegur – mislæg
gatnamót við Kringlumýrar-
braut – breikkanir.
» Reykjanesbraut – breikkanir
sunnan Breiðholtsbrautar –
mislæg gatnamót við Bústaðav.
» Nesbraut – stokkalausn frá
Lönguhlíð að Stakkahlíð.
» Hlíðarfótur – göng undir
Öskjuhlíð.
» Ofanbyggðavegur.
» Vífilsstaðavegur.
» Höfðabakki – breikkun hluta
Stekkjarbakka.
» Hallsvegur – milli Víkurvegar
og Vesturlandsvegar.
» Sundabraut – nýr vegur frá
Sæbraut að Hringvegi á Kjal-
arnesi.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Umhverfisstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Samfélagssjóður Landsbankans veitir fimm milljónir
króna í umhverfisstyrki. Markmið umhverfisstyrkja
er að styðja við umhverfis- og náttúruvernd.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2012.
Verkefni sem einkum koma til greina:
Verkefni á sviði náttúruverndar, t.a.m. skógrækt, landgræðsla
og hreinsun landsvæða.
Verkefni er tengjast rannsóknum á náttúrugæðum.
Verkefni er styðja betra aðgengi fólks að náttúru landsins.
Verkefni er nýtast til verndar landsvæðum, t.d. vegna ágangs
búfénaðar eða ferðamanna.
Verkefni er auka þekkingu og vitund almennings á umhverfismálum.
Verkefni er hvetja til umhverfisvæns hátternis.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur vegna umhverfisstyrkja er til og með 30. apríl 2012.
Dómnefnd verður skipuð sérfræðingum á sviði náttúru- og umhverfis-
verndar. Sótt er um umhverfisstyrki rafrænt, á landsbankinn.is.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki
til verðugra verkefna. Árlega eru veittar fimm tegundir styrkja:
Afreksstyrkir, námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir
og umhverfisstyrkir.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Hótel-
verkefni
í miðborginni
KONTAKT fyrirtækjaráðgjöf hefur verið falið
að annast sölu á glæsilegu húsnæði
á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur
sem hentar mjög vel sem 100 herbergja
hótel en gæti einnig komið vel út
sem hostel með mun fleiri gistirýmum.
Húsnæðið er laust til afhendingar
og tilbúið til innréttinga.
Endanleg hönnun og útfærsla yrði í höndum
kaupanda.
Spennandi verkefni fyrir fjárfesta, verktaka
eða aðila í ferðaþjónustu.
H
a
u
ku
r
0
4
.1
2