Morgunblaðið - 14.04.2012, Síða 25

Morgunblaðið - 14.04.2012, Síða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012 Mjólkursamsalan (MS), sem er af- urðafyrirtæki í eigu íslenskra kúa- bænda, hyggst á næstu mánuðum ráðast í 1,5 til 2 milljarða fjárfest- ingar og breytingar á skipulagi í stærstu afurðastöðvum sínum. Fram kemur í fréttatilkynningu að mark- miðið sé að ná fram frekari hagræð- ingu, sem ætlað er að skili sér í vöru- verði til neytenda og hráefnisverði til bænda, auk þess að skapa nýja möguleika til að flytja út skyr, osta og mysuafurðir. Gert er ráð fyrir að endurnýja og stækka ostaframleiðslu á Akureyri, endurnýja framleiðslu á sýrðum mjólkurvörum á Selfossi, færa sam- an á Selfossi mjólkurpökkun sem hefur verið þar og í Reykjavík og endurnýja ostapökkun í Reykjavík og byggja þar upp stóra birgða- og dreifistöð. Í tilkynningu er haft eftir Einari Sigurðssyni, forstjóra félagsins, að Mjólkursamsalan hafi „á undanförn- um árum náð umtalsverðum árangri í hagræðingu og sparnaði. Kostnað- ur við söfnun, vinnslu og dreifingu mjólkur og mjólkurafurða hefur ver- ið lækkaður um 2 milljarða króna á ársgrunni. Þessi ávinningur hefur átt mestan þátt í að halda hér niðri verði mjólkurvara á sama tíma og eldsneytisverð, orkuverð, erlend að- föng og hráefnisverð til bænda hefur hækkað verulega.“ Með því að setja nýjar mjólkur- pökkunarvélar niður á Selfossi skap- ast möguleikar til að byggja upp stóra birgða- og dreifistöð í núver- andi húsnæði félagsins á Bitruhálsi. Markmið félagsins er að þessum breytingum verði lokið fyrir mitt ár 2013. Gert er ráð fyrir að breyting- arnar í starfseminni leiði til þess að á nokkrum misserum verði fækkun í starfsliði Mjólkursamsölunnar, sem mest kemur fram í Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn MS Byggja á stóra birgða- og dreifistöð í húsnæði félagsins á Bitruhálsi. MS ræðst í milljarða króna fjárfestingu Þrátt fyrir að meðalgengi erlendra gjaldmiðla hafi hækkað á milli fimm og sex prósent gagnvart íslensku krónunni á síðustu tólf mánuðum þá hafa helstu hækkunarliðir neyslu- verðsvísitölunnar á sama tíma verið innlendir. Þetta kemur fram í Vís- bendingu, vikuriti um viðskipti og efnahagsmál, en þar segir að í ljósi þess að tólf mánaða verðbólga á EES-svæðinu er 2,9%, borið saman við 6,4% á Íslandi, þá hefði mátt ætla að erlendar vörur hefðu hækkað um 8,5%. Reyndin sé hins vegar önnur. Þótt hækkun á bensínverði, sem má rekja að stærstum hluta til verð- hækkana erlendis, hafi verið um 13% á undanförnum tólf mánuðum þá hefur sú hækkun verið meiri í prósentum talið erlendis en sem nemur hækkuninni á Íslandi. Það vekur aftur á móti athygli, segir í grein Vísbendingar, hvaða liðir hækka mest fyrir utan bensínið. Opinber þjónusta hækkaði um 11,1%, búvörur um 9% og þjónusta almennt um 7,4%. Helstu hækk- unarliðirnir eru því allir innlendir og er hækkunin umfram það sem tólf mánaða verðbólga mældist yfir sama tímabil. Með öðrum orðum virðist verðbólgan því ekki vera inn- flutt, eins og svo oft áður, heldur fremur beinlínis upprunnin á Ís- landi. Vísbending bendir ennfremur á að það veki sérstaka athygli að er- lendar mat- og drykkjarvörur hafa ekki hækkað á síðastliðnu ári sem neinu nemur. Þetta þýðir því að er- lendir birgjar, innflytjendur og smá- salar, hafa tekið á sig þá 8-9% hækk- un sem hefði að öðrum kosti átt að falla á neytendur ef aðeins er litið á veikingu krónunnar og erlendar verðhækkanir. hordur@mbl.is Tólf mánaða hækkun á helstu vöruflokkum á Íslandi mars 2011-12 16% 14% 12% 10% 8% 6% 4% 2% 0% Bú vö ru r á n gr æ nm et is Gr æ nm et i ( in nl en t o g i nn flu tt) Að ra r i nn len da rm at v. Að ra r i nn len da r v ör ur In nfl .m at - o g d ry kk jar vö ru r Ný r b íll og va ra hl ut ir Be ns ín In nfl ut ta r v ör ur að ra r Áf en gi og tó ba k Hú sn æ ði Op in be r þ jó nu st a Ön nu r þ jó nu st a Heimild: Vísbending - vikurit um viðskipti og efnahagsmál Verðbólgan er ekki innflutt Cosmetic without limits Facial Mask www.casmara.is Snyrtivörumerkið Casmara með sinn heimsþekkta “Gummí mask” leitar að nýjum umboðs og dreifin- garaðila fyri Ísland. Möguleikarnir og tækifærin eru gífurlega spennandi fyrir fyrirtæki eða aðila sem hefur vilja og áhuga. Vörurnar hafa fengist á Íslandi í nokkur ár og eru því þekktar. Nánari upplýsingar info@casmara.is 0046 70 44 55 300 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.