Morgunblaðið - 14.04.2012, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Það hefur eflaust
ekki farið framhjá
neinum að ofsaakstur
við Ánanaust hefur
fyrir löngu sprengt
öll þolinmæðismörk
íbúa á svæðinu og
berast nú hörð við-
brögð frá íbúum ann-
arra hverfa í Reykja-
vík. Eins og margoft
hefur komið fram er
þetta ekki nýtt af
nálinni, en eftir að myndbands-
upptökur birtust í sjónvarpi og á
vefmiðlum þá spyrja sig margir
hvernig slíkt getur viðgengist til
lengri tíma. Þarna setja ökuþórar
sjálfa sig, áhorfendur og grun-
lausa vegfarendur í mikla og til-
efnislausa hættu. Maður getur
því ekki annað en velt fyrir sér
raunveruleikatengslum þeirra
sem stunda þennan akstur.
Nýverið var haldinn aðalfundur
Sjálfstæðisfélags Vestur- og Mið-
bæjar og var þetta mál ofarlega á
baugi. Öll vorum við sammála um
að aksturinn væri vandamál og að
finna þyrfti lausn sem myndi
binda enda á þessa óværu. Félag-
ið sendi í kjölfarið frá sér eft-
irfarandi ályktun:
„Aðalfundur Félags sjálfstæðis-
manna í Vesturbæ og Miðbæ
skorar á lögreglu og borgaryf-
irvöld að grípa þegar í stað til að-
gerða gegn hinum mikla glæfra-
akstri, sem viðgengst í hverfinu
að kvöld- og næturlagi. Ástandið
er hvað verst við Ánanaust og á
Granda en kvartanir hafa einnig
borist frá íbúum við Hringbraut
og Mýrargötu. Um-
ræddur glæfraakstur
raskar næturró íbúa í
stórum hluta Vest-
urbæjar og stofnar
lífi vegfarenda í
hættu. Ekki er mælt
með því að umræddar
umferðargötur verði
þrengdar eða hraða-
hindranir settar á
þær, heldur löggæsla
hert og þannig komið
í veg fyrir ofsaakst-
ur.“
Persónulega tel ég
ekki rétt að afmarka lausnina við
þetta svæði enda vinnur það ekki
á rót vandans. Til að finna var-
anlega lausn tel ég mikilvægara
að koma upp aðstöðu utan við
bæjarmörk þar sem umræddur
hópur, auk annarra áhugasamra,
getur iðkað ökukúnstir sínar í
sátt við samfélagið. Þetta tel ég
vera þungamiðju málsins. Þetta
heyrir að sjálfsögðu til auk hertr-
ar löggæslu enda ber borgaryf-
irvöldum og lögreglunni að upp-
ræta þetta samfélag sem þarna
hefur sprottið upp. Hvaða að-
gerðir sem þau velja skulu þær
vera af vandvirkni valdar enda
mikil atvinnustarfsemi á Granda.
Þar eru fyrirtæki sem stunda
slíkan iðnað að greiður aðgangur
flutningabíla og annarra vinnu-
tækja er nauðsynlegur. Því má
ekki leggjast í skotgrafir og berj-
ast gegn almennri umferð á
svæðinu.
Nú er mál fyrir borgarstjórn
að bregðast skjótt og örugglega
við þeirri óværu sem Vest-
urbæingar búa við enda löngu
kominn tími á úrlausn. Einnig vil
ég hvetja lögreglu til þess að láta
ekki deigan síga í baráttunni
gegn glæfraakstri og styð heils-
hugar að henni verði veitt viðeig-
andi vopn í þeirri baráttu.
Eftir Ásmund Þór
Sveinsson »Umræddur glæfra-
akstur raskar næt-
urró íbúa í stórum hluta
Vesturbæjar og stofnar
lífi vegfarenda í hættu.
Ásmundur Þór
Sveinsson
Höfundur er formaður Sjálfstæð-
isfélags Vestur- og Miðbæjar.
Ofsaakstur í Vesturbæ
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
20% AFSLÁTTUR ÚT APRÍL
AF DREAMBOX DM800se
MEÐ 85 CM DISK
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Landsbankinn óskar eftir tilboðum
í fasteignina Laugaveg 77 í Reykjavík
Fasteignin er alls 4.729 m2 að stærð og er skrifstofu- og
þjónustuhúsnæði. Nóg af bílastæðum þar sem umtalsverður
byggingaréttur er fyrir bílageymslu og skrifstofuhúsnæði.
Tilboð skulu berast fyrir kl. 17:00 þann 25. apríl
í móttöku Landsbankans Hafnarstræti 5 merkt:
Eignadeild Landsbankinn - Laugavegur 77
Hafnarstræti 5 Reykjavík
b/t Valgeir Valgeirsson
Nánari upplýsingar veita:
Valgeir Valgeirsson sími 410 7840
Þorsteinn Egilson í síma 899 5254 eða
í thorsteinn.egilson@landsbankinn.is
Til sölu Laugavegur 77