Morgunblaðið - 14.04.2012, Qupperneq 45
Revíuhöfundur kvenfélagsins
Magnús er mikill útivistarmaður
og munar þar mest um hesta-
mennskuna og samviskusamlega
skíðaiðkun. Hann hefur haldið hesta
um árabil, reynir að komast í hesta-
ferðir á hverju ári og hefur yfirleitt
farið í lengri eða skemmri hálend-
isferðir á hverju sumri í mörg ár. Þá
hefur hann verið einkar duglegur við
að kenna barnabörnunum á skíði á
undanförnum árum. Hann er auk
þess býsna laghentur ef á reynir og
haldinn prýðilegu verksviti.
Í hámenningarmálum hefur
Magnús áhuga á sögu og bók-
menntum en er þó líklega sterkastur
á svellinu þegar kemur að leiklist-
inni. Hann nánast krefst þess að fá
að koma að samningu skemmtiatriða
þorrablóts Kvenfélagsins á Skaga-
strönd þó þar sé yfirleitt gert
grimmt grín að sveitarstjórninni.
Þau hjónin eru nú í siglingu um
Miðjarðarhafið í tilefni afmælisins.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 26.12. 1977 Guð-
björgu Bryndísi Viggósdóttur, f. 1.4.
1954, húsmóður. Hún er dóttir Vig-
gós Brynjólfssonar, f. 3.5. 1926,
vinnuvélstjóra, og Arndísar Ólafar
Arelíusdóttur, f. 19.10. 1936, húm-
óður.
Börn Magnúsar og Guðbjargar
eru Viggó Magnússon, f. 14.8. 1971,
byggingatæknifræðingur, en kona
hans er Magnea Ingigerður Harð-
ardóttir, f. 21.6.1971, og eru dætur
þeirra Telma Rán Viggósdóttir, f.
29.7. 1993, Glódís Perla Viggósdótt-
ir, f. 27.6.1995, og Bára Bryndís
Viggósdóttir, f. 20.11.1998; Baldur
Magnússon, f. 3.8. 1974, sjómaður,
en kona hans er Þórunn Valdís Rún-
arsdóttir, f. 29.6.1980, og eru börn
þeirra Magnús Sólberg, f. 26.11.
2003, Valdimar Viggó, f. 25.4. 2007,
og Aþena Guðbjörg, f. 25.7. 2008;
Jón Atli Magnússon, f. 29.7.1988,
sölufulltrúi.
Systkini Magnúsar eru Fjóla
Jónsdóttir, f. 10.10. 1947, búsett á
Skagaströnd; Gunnar Jón Jónsson,
f. 23.12. 1956, búsettur í Danmörku;
Ragnar Hlynur Jónsson, f. 28.12.
1963, búsettur í Bandaríkjunum.
Foreldrar Magnúsar: Jón Jóns-
son, f. 21.5. 1921 í Asparvík í
Strandasýslu, d. 9.7. 1991, versl-
unarmaður og framkvæmdastjóri
Rækjuvinnslunnar á Skagaströnd,
og María Magnúsdóttir, f. 1.5. 1919 á
Syðra-Hóli í Vindhælishreppi, kenn-
ari og verslunarmaður.
Úr frændgarði Magnúsar B. Jónssonar
Hólmríður Guðjónsdóttir
húsfr. í Neðstabæ
Albert Björnsson
b. í Neðstabæ
María Ögmundsdóttir
húsfr. á Syðra-Hóli
Guðrún Sigfúsdóttir
frá Skarði
Guðmundur Pálsson
b. í Kjós, af Pálsætt
Sigurrós Magnúsdóttir
frá Veiðileysu
Magnús B.
Jónsson
Jón Jónsson
framkvæmdastj. á Skagaströnd
María Magnúsdóttir
kennari á Skagaströnd
Magnús Björnsson
kennari á Syðra-Hóli
Jóhanna Albertsdóttir
húsfr. á Syðra-Hóli
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. á Svanshóli
Jón Kjartansson
b. á Svanshóli
Kjartan Guðmundsson
b. á Skarði í Bjarnarf.
Björn Magnússon
b. á Syðra-Hóli
Guðmundur Magnússon
læknaprófessor
Bjarni Jónsson
b. í Bjarnarhöfn
Jón Bjarnason
fyrrv. ráðherra
Hildibrandur Bjarnarson
b. í Bjarnarhöfn
Hestamaðurinn Sveitarstjórinn á góðri stundu með þrjá til reiðar. Hann
heldur hesta og fer yfirleitt árlega í langar ferðir upp á örævi landsins.
ÍSLENDINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012
Laugardagur
80 ára
Sigurður Einarsson
Sæbjörg Jónsdóttir
70 ára
Bryndís Þorsteinsdóttir
Emil Ingólfsson
Garðar Gíslason
Herborg Káradóttir
Hugrún Björk Þorkelsdóttir
Jytte Frímannsson
60 ára
Ámundi Grétar Jónsson
Guðjón Þorbjörnsson
Guðmundur R. Sveinsson
Sólveig Steingrímsdóttir
50 ára
Anna María Þorláksdóttir
Ásgerður Ólafsdóttir
Geir Sigurðsson
Georg Birgisson
Gísli Sigurður Gíslason
Guðný Árnadóttir
Gylfi Björn Hvannberg
Karl Arnarson
Kristín Magnúsdóttir
Margrét Jónsdóttir
Ómar Jónsson
Pétur Karlsson
Pétur Stefán Kristjánsson
Sigríður B. Thorarensen
Sigurður Árni Árnason
Sigurður Kjartansson
Sigurður Páll Guðjónsson
Sigurveig María Ingvadóttir
40 ára
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Bjarki Páll Einarsson
Emil Andrés Sigurðsson
Hafdís Hreiðarsdóttir
Hilmir Agnarsson
Páll Svavar Pálsson
Sigurður Kr. Hjaltested
Steinunn Rósa Einarsdóttir
Þórður Sigurðsson
Sunnudagur
80 ára
Margrét Halldórsdóttir
Sigurjón Bjarnason
70 ára
Bjarni Sævar Sigurðsson
Hörður Þórleifsson
Inga Þorkelsdóttir
60 ára
Aðalheiður Steinsdóttir
Anna Jenny Rafnsdóttir
Einar Schweitz Ágústsson
Halla Snorradóttir
Hallfríður Bára Einarsdóttir
Lilja Vikar
Loftur Guðmundsson
Sigríður K. Hjálmarsdóttir
Sigurður Örn Búason
Viðar Kristmundsson
Þorbjörg Skjaldberg
Þorvaldur Ottósson
50 ára
Atli Brynjar Sigurðsson
Auður Pétursdóttir
Ármann Birgisson
Bryndís Ploder
Eva Egilsdóttir
Jóhann F. Þórhallsson
Kristinn G. Hjaltalín
Margrét V. Kristjánsdóttir
Ólafur Thorarensen
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir
Þráinn Lárusson
40 ára
Dröfn Vilhjálmsdóttir
Eva Jóhanna Óskarsdóttir
Haukur Viðar Ægisson
Jón Þröstur Jóhannesson
Linda Þóra Grétarsdóttir
Mikael Máni Snorrason
Til hamingju með daginn
30 ára Óskar fæddist í
Reykjavík, ólst upp í
Kópavogi, lauk prófum frá
Margmiðlunarskólanum,
er að ljúka námi í við-
skiptafræði frá HÍ og
starfar hjá Össuri.
Eiginkona Dayla Lutz, f.
1985, starfsmaður hjá
Hótel Grand.
Foreldrar Daði Arn-
grímsson, f. 1961, kaup-
maður í Reykjavík, og
Anna Óskarsdóttir, f.
1960, sjúkraliði.
Óskar Márus
Daðason
70 ára á sunnudag Sæv-
ar fæddist í Landeyjum
en býr á Rifi, var í útgerð
og fengsæll minkabani.
Fyrri kona Sigríður E.
Guðjónsdóttir, f. 20.5.
1948, d. 12.12. 2003.
Seinni kona Eygló Anna
Þorkelsdóttir, f. 16.1.
1964. Sævar á sjö dætur
og einn fósturson.
Foreldrar Sigríður Jóns-
dóttir, f. 1918, d. 1992 og
Sigurður Jónsson, f. 1921,
d. 1998.
Sævar
Sigurðsson
Haraldur Bessason, fyrstirektor Háskólans á Ak-ureyri, fæddist í Kýrholti í
Viðvíkursveit í Skagafirði 14. apríl
1931. Foreldrar hans voru Bessi
Gíslason, hreppstjóri þar, og k.h.,
Elínborg Björnsdóttir kennari. Har-
aldur var skyldur Davíð Stefánssyni
í föðurætt en var af miklum presta-
ættum í móðurætt og þar skyldur
skáldunum Stefáni frá Hvítadal og
Snorra Hjartarsyni.
Eiginkona Haralds var Margrét
Björgvinsdóttir og eignuðust þau
eina dóttur, en af fyrra hjónabandi
átti Haraldur þrjár dætur og Mar-
grét tvö börn.
Haraldur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1951,
cand.mag.-prófi í íslenskum fræðum
frá Háskóla Íslands 1956, hélt síðan
til Winnipeg í Kanada þar sem hann
var prófessor við íslenskudeild Ma-
nitobaháskóla í rúm þrjátíu ár.
Haraldur sinnti mjög félags-
málum og blaðamennsku í Vest-
urheimi, var m.a. ritstjóri Lögbergs-
Heimskringlu og Tímarits Hins ís-
lenska þjóðræknisfélags um árabil.
Haraldur stóð fyrir grunnrann-
sóknum á máli og menningu Vestur-
Íslendinga, skrifaði greinar og bók-
arkafla, m.a. um verk Halldórs Lax-
ness í European Writers. The
Twentieth Century (1990), þýddi A
History of the Old Icelandic Com-
monwealth (1974) eftir Jón Jóhann-
esson og ritstýrði, ásamt Baldri Haf-
stað, geinasöfnunum Heiðin minni
og Úr manna minnum.
Haraldur tók við starfi rektors
Háskólans á Akureyri við stofnun
skólans 1987 og gegndi því til 1994.
Eftir það kenndi hann við skólann en
þau Margrét fluttu vestur um haf á
ný 2003 og var hann þar búsettur til
dauðadags.
Haraldur hlaut riddarakross hinn-
ar íslensku fálkaorðu, varð heið-
ursfélagi Þjóðræknisfélags Íslend-
inga í Vesturheimi 1972;
heiðursfélagi Íslendingadags-
nefndar í Manitoba og heiðursborg-
ari Winnipeg 1987; heiðursdoktor
við Manitobaháskóla 1990 og við Há-
skólann á Akureyri 1999.
Hann lést í Toronto í Kanada 8.
apríl 2009.
Merkir Íslendingar
Haraldur
Bessason
30 ára Sólveig fæddist í
Reykjavík, ólst upp á
Álftanesinu og er að ljúka
námi í tækniteiknun.
Bræður Ragnar Karl Guð-
jónsson, f. 1976, fram-
kvæmdastjóri Panasonic
Nordic í Danmörku; Þor-
björn Jindrich Guð-
jónsson, f. 1983, nemi.
Foreldrar Guðjón Þor-
björnsson, f. 1952, verk-
taki, og Stepanka María
Vavrickova, f. 1955, versl-
unarmaður.
Sólveig Valerie
Guðjónsdóttir
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922